Krummi kom og fékk kjúkling og franskar. Hann er svo
styggur að ég varð að taka myndir af honum í gegnum
glerið á eldhúsglugganum. Þá verða myndirnar ekki eins
góðar. Honum fannst þessi matur góður
![](/fs/8a9837fb-bba8-46f7-b5da-6292f6e631a9_MS.jpg) |
![](/fs/969dcaa8-bd39-48ca-9f07-79986025e08b_MS.jpg) |
![](/fs/4d135681-3fe1-43e8-949d-9b276ff1a342_MS.jpg) |
![](/fs/8d7a0974-5a6b-4fc3-ae51-428161a0e864_MS.jpg) |
![](/fs/3aaf0caf-90d5-471e-960e-790812368440_MS.jpg) |
![](/fs/fd081542-fb35-49fa-b9ba-fcef3adc5954_MS.jpg) |
Fjórða skiptið sem Þórður fer með mér í fjárhúsin að gefa
morgungjöfina. Hann er pínu óþekkur og situr ekki bara
kyrr. Hann sópar garðana og setur moðið upp í karið. Hann
er hálfnaður í bataferlinu. Hann þarf að vera með kragann í
tæpar þrjár vikur í viðbót. Verkirnir eru enn mismiklir. Stundum
eru þeir þolanlegir og svo eru þeir miklir
![](/fs/6c7797a9-bc8e-459a-a86d-4ecfabda4c29_MS.jpg) |
![](/fs/143a7faa-9044-4fa6-ae6a-38aeaac39ef9_MS.jpg) |
Nú eru allar ærnar sem sónuðust geldar, búnar að ganga.
Ef þær halda, þá bera þær
8. júlí 1 ær
9. júlí 1 ær
16. júlí 1 ær
19. júlí 1 ær
28. júlí 1 ær
29. júlí 1 ær
04. ágúst 2 ær
Fyrir utan þessar ær, þá eru síðustu ærnar að bera 10 maí
og svo kemur ein 18. maí
Molinn kveður
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|