Þetta er síðan hennar Birgittu Lúðvíks.


Flettingar í dag: 1319
Gestir í dag: 54
Flettingar í gær: 631
Gestir í gær: 50
Samtals flettingar: 1158321
Samtals gestir: 63364
Tölur uppfærðar: 27.7.2024 05:51:15

22.02.2022 18:55

Rok í dag

Skólahald í Þelamerkurskóla féll niður vegna veðurs í dag. 

Veðrið var mjög gott í morgun, en það fór að hvessa um 

hádegið. Appelsínugul viðvörun í dag

 

Pönnuköku dagur í dag

Góður stafli. Hann verður samt fljótur að hverfa

 

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

21.02.2022 19:46

Ærnar flokkaðar fyrir snoðið

Við flokkuðum ærnar í morgun, hvítar og mislitar. Snoðið 

verður tekið af þeim um helgina

Mislitu ærnar

 

Möðruvallakirkja í morgun

 

Við hreinsuðum bílaplanið og stéttina í dag. Það var kominn 

þónokkur snjór

Glæsilegt hjá okkur

 

 

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

20.02.2022 18:56

Fjórlembur

14-143 Kiða. Hún er fjórlembingur undan 09-020 Drífu og

12-579 Blossa. Hún fékk við 21-703 Jalla

 

16-262 Mekka. Hún er tvílembingur undan 15-239 Meltu og

13-390 Andrési. Hún fékk við 20-603 Sagosen

 

19-483 Blökk. Hún er tvílembingur undan 10-023 Brák og

17-582 Maríó. Hún fékk við 18-591 Vita

 

20-522 Glósa. Hún er tvílembingur undan 15-242 Galíu og

17-586 Nóa. Hún fékk við 21-704 Tandra

 

Þessar eru allar með fjögur fóstur

 

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

19.02.2022 18:59

Flug

Mynd tekin af Moldhaugahálsinum. Séð heim að

Möðruvöllum

Smá flug í dag

Fallegt veður í dag

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

 

18.02.2022 18:49

Hlíðarfjall

Alexander og Damian að næra sig. Það er svo mikið sport

að fá sér að borða í fjallinu

Jökull og Alexander

Það var svakalegur fjöldi. Langar biðraðir. Vetrarfrí í skólum

fyrir sunnan

Þessi lyfta bilaði. Ekki var það gott. Það mynduðust lengri 

biðraðir í hinar lyfturnar vegna bilunar á þessari

Veðrið var mjög fínt

 

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

17.02.2022 18:44

Úti að leika

Búinn að hnoða nokkra snjóbolta

 

 

Þessi gullmoli kom í dag og ætlar að vera hjá ömmu og afa í

nokkra daga. Það er vetrarfrí í skólanum hans í Reykjavík

 

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

16.02.2022 19:17

Heimsókn

Við fengum góða heimsókn í dag. Bróðurdóttir Þórðar kom 

með börnin sín þrjú. Þau búa í Danmörk.  Auðvitað fórum

við með þau upp í fjárhús. Takk fyrir komuna Jónína og börn heart

Við fórum líka út að leika 

Fjórir sleðar aftan í fjórhjólinu. Við fórum í langan sleðatúr

 

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

15.02.2022 18:56

Fallega, fallega prinsessa

Nú er elsku gullið orðið mánaðargömul, og þá má 

maður aðeins heart Við fórum og knúsuðum hana í morgun

Elsku ömmu gull heart

Ég er búin að hlakka mikið til að knúsa hana heart

Afi að knúsa gullið sitt heart Hún er mikið að skoða hann

Svo flott bæði tvö heart

Stoltur afi heart

Elsku mæðgur

Fallegar elskur heart

 

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

14.02.2022 19:42

Elsku gull mánaðargömul

Elsku fallega ömmu og afa gull. Hún er

einsmánaðar gömul í dag heart

Við höfum lítið hitt hana vegna þessarar leiðinlegu veiru. 

Við ætlum að fara að bæta úr því. Hlakka til að knúsa hana heart

Nokkrar kjötbollur tilbúnar í vagumpakkningu. Ég steikti úr 

fjórum kg. af hakki smiley

Svakalega góð vagumpakkningarvél sem við eigum

 

Möðruvallakirkja í morgun

 

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

13.02.2022 18:20

Fósturtalning

Gunnar kom í dag og fósturtaldi í kindunum

 

 

Hann taldi í 240 fullorðnum ám og 11 gemlingum

 

Fullorðnu ærnar

7 eru geldar

28 með 1

163 með 2

38 með 3

4  með 4

 

Gemlingar eru 11

1 er geldur

3 með 1

7 með 2

 

 

 

Gemlingar (árgangur ´21) eru 11  

1 með 0 

3 með 1  

7 með 2

samtals 17 fóstur, af þeim munu 4 fóstur drepast

1,55 lömb á gemling

 

Veturgamlar (árgangur ´20) eru 32  

7 með 1 

22 með 2 

2 með 3

1 með 4

samtals 61 fóstur

1,91 lömb á kind

 

Tveggjavetra (árgangur ´19) eru 31  

5 með 1 

25 með 2 

1 með 4 

samtals 59 fóstur

1,90 lömb á kind

 

Þriggjavetra (árgangur ´18) eru 43

1 með 0  

1 með 1 

30 með 2 

11 með 3 

samtals 94 fóstur

2,19 lömb á kind

 

Fjögurravetra (árgangur ´17) eru 42 

2 með 1 

30 með 2 

10 með 3 

samtals 92 fóstur

2,19 lömb á kind

 

Fimmvetra (árgangur ´16) eru 33 

1 með 0

5 með 1 

20 með 2 

6 með 3

1 með 4 

samtals 67 fóstur

2,03 lömb á kind

 

Sexvetra (árgangur ´15) eru 29

4 með 0

4 með 1 

15 með 2 

6 með 3 

samtals 52 fóstur

1,79 lömb á kind

 

Sjövetra (árgangur ´14) eru 22 

3 með 1

15 með 2 

3 með 3

1 með 4

samtals 46 fóstur

2,09 lömb á kind

 

Áttavetra (árgangur ´13) eru 8

1 með 0 

1 með 1

6 með 2 

samtals 13 fóstur

1,62 lömb á kind

 

Fullorðnar ær 2,02 lömb

Gemlingar 1,55 lömb

Þetta gerir þá 2,00 í heildina

Geldar ær eru með í þessum meðaltölum

 

Alls eru þetta 501 talin fóstur

 

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

 

12.02.2022 20:46

Fósturtalning á morgun

Fósturtalning á morgun smiley

20-505 Læka og 20-506 Marey. Þær eru undan 15-249 Lufsu og

16-825 Glám

 

Stress og spenningur í sambland

 

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

11.02.2022 18:58

Hrútarnir teknir úr ánum

Við tókum hrútana úr ánum, í dag. Ekki seinna vænna, því 

það verður fósturtalið á sunnudaginn

 

Við tókum lömbin undan Dúddu og Jövu. Sólveig, Sara og Flís. 

Sólveig og Sara eru 4 mánaða í dag

 

Úti að leika

Stökk

 

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

10.02.2022 18:58

Göngin

Það hefur ekki snjóað yfir göngin. Það er smá gat

Göngin eru mjög vinsæl hjá strákunum

Þeir eru búnir að stækka gatið. Moka og moka. Bara gaman

 

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

09.02.2022 19:04

Snjóhúsagerð

Týri að hjálpa til við snjóhúsagerð

Búinn að gera smá holu

Fuglarnir létu okkur ekki trufla sig við átið. Þeir voru ekki 

styggir

Við gerðum snjóhús með fjórum útgönguleiðum

Týri var með okkur allan tímann

Ein útgönguleiðin. Snjóhúsið er innanvið þetta op

 

Langur útivistartími í dag

Brúsi

Jalli

 

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

08.02.2022 18:47

Snjór

Punktur, punktur komma strik. Já það er 

andlit þarna aftaná bílnum

 

Þórður að blása við fjárhúsin

 

Snjókoma og sól í morgun

 

 

 

Það á að fósturtelja hjá okkur á sunnudaginn smiley 

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 



clockhere

Nafn:

Birgitta Lúðvíksdóttir

Farsími:

820-7756

Afmælisdagur:

23. júlí, 1962

Heimilisfang:

Möðruvellir 3

Staðsetning:

Hörgársveit

Um:

Áhugamanneskja um sauðfjárrækt. Er með kindur á Möðruvöllum í Hörgársveit

Einar Breki, kom í heiminn

atburður liðinn í

12 ár

10 mánuði

13 daga

Haukur Nói, kom í heiminn

atburður liðinn í

10 ár

15 daga

Birgitta Ósk, kom í heiminn

atburður liðinn í

2 ár

6 mánuði

13 daga

Tenglar