Þetta er síðan hennar Birgittu Lúðvíks.


Flettingar í dag: 2688
Gestir í dag: 9
Flettingar í gær: 2337
Gestir í gær: 30
Samtals flettingar: 1964834
Samtals gestir: 83847
Tölur uppfærðar: 28.4.2025 13:44:10

07.06.2023 19:43

Garðvinna

Nú er skólinn búinn og þá byrjar vinnuskólinn. Strákarnir

hjálpuðu okkur í garðvinnu í dag. Myndirnar tala sínu máli

 

 

 

 

 

 

 

Duglegir strákar

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

06.06.2023 15:25

Elsku Fríða frænka

Elsku Fríða, móðursystir mín, lést 20. maí. Hún var jarðsungin

frá Fríkirkjunni í Reykjavík í dag. Blessuð sé minning þín elsku

frænka heartheart

Við horfðum í streymi heart

 

Í hádeginu ákváðum við að grilla, en gasið kláraðist sad Ég 

þurfti að skella þessu á pönnuna. Það tókst bara vel og 

maturinn var góður

 

Ég losaði 8 poka af brauði á túnið. Eftir smá stund var allt

horfið. Já þær eru brjálaðar í brauð

Lömbin eru líka farin að borða brauð. Það er svo gaman að 

ganga innan um féð. Þær róta sér ekki þegar ég labba um smiley

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

05.06.2023 17:40

Skólaslit Þelamerkurskóla

Skólaslit Þelamerkurskóla var í dag. Þrír luku 9. bekk og einn

4. bekk. Nú eru þeir komnir í sumarfrí

Damian fékk framfararverðlaun

Við erum svo stolt af honum

Flottur strákur

Þeir sem ekki sjá þetta, þá stendur þarna:

Sérstök framfaraverðlaun verða í ár veitt nemanda sem hefur

sýnt miklar framfarir í persónuþroska, samskiptafærni og 

ábyrgð. Þessi nemandi hefur þurft að læra að takast á við

fjölbreyttar áskoranir í daglegu lífi og hefur í vetur tileinkað

sér margvíslega nýja færni sem mun hjálpa honum mikið í

framtíðinni.

Verðlaun fyrir miklar framfarir hlýtur Damian Jakub Kondracki

 

Til hamingju elsku Damian heart

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

04.06.2023 17:54

Fjórhjólatúr

Þórður fór með strákana í fjórhjólatúr niður á engi, meðan

ég tók myndir af lömbum. Ég tók myndir af þeim, þar sem

ég var upp í fjallshólfi. Ekki mjög skýrar myndir enda teknar

af löngu færi

 

 

 

 

 

Þeir fundu æðakolluhreiður með ungum í

Hún var ekkert á því að færa sig af hreiðrinu, en gerði það

Hrútar undan 19-476 Lúnu og 22-717 Vívalda

17-358 Pysja með gimbrar undan Vívalda

18-395 Úlla með hrút undan 22-714 Ægi

18-409 Elíza með hrút og gimbur undan 17-861 Fjalla

Það er ekki auðvelt að fá að mynda lömbin hjá þessum hóp.

Yfirleitt er hægt að labba rólega innan um kindurnar og taka

myndir af lömbunum, en það var ekki hægt með þennan hóp.

Þær æddu af stað, upp í skóginn og suðureftir öllu. Ég verð

að læðast að þeim til að ná þessum lömbum. Held að þau 

séu eitthvað um 10

18-392 Murta með hrúta undan 20-603 Sagosen

Forystuærnar Hexía og Elíza

 

Ég náði að mynda 7 lömb í dag. Þá eru eftir 21 lömb

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

03.06.2023 16:39

Gullmoli í heimsókn

Elsku nafna mín kom og heimsótti ömmu og afa í dag

Hún fór að gefa kindunum brauð

 

Litla fallega gull heart

 

Við fórum í tvær fermingarveislur í dag

 

Ég skrapp í myndatöku seinni partinn í dag og náði 5 lömbum.

Þá eru 28 lömb eftir

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

02.06.2023 18:24

Plokka nagla úr dekkjum

Strákarnir að plokka naglana úr dekkjunum undan

strumpastrætónum. Það gekk mjög vel hjá þeim

Við tókum dekkið af, þeir plokkuðu naglana úr og svo var

það sett aftur undir

Þeir fengu æfingu í að skipta um dekk  

Naglarnir sem þeir plokkuðu úr

Þessi lék sér á meðan

Staraungi sem var í dráttarvélinni. Þórður er búinn að spara

vélina til að Starinn fái frið með hreiðrið. Núna fara þeir að

tínast úr hreiðrinu og þá er hægt að fara að nota vélina

Staraungi

Gimbur undan 20-502 Þykk og 21-899 Gimsteini. Hún ber

arfgerðina ARR

Þetta er systir hennar (undan Þykk og Gimsteini) Það á eftir

að greina sýnið úr henni. Við sendum það samt á sama tíma

Þetta er hálf systir þeirra. Hún er undan 18-408 Elínu og

Gimsteini. Það er eins með hana. Það á eftir að greina sýnið

úr henni. Það fór samt á sama tíma og hin sýnin

Ungur auðnutittlingur

18-410 Túla með hrút og gimbur undan 19-597 Ótta

 

Búin að mynda 237 lömb og 33 lömb eftir. Ég náði að mynda

15 lömb í dag

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

01.06.2023 16:51

48 lömb eftir

Ungur auðnutittlingur. Hann er ekki kominn með rauða

blettinn á hausinn

15-236 Hexía með hrút og gimbur undan 17-861 Fjalla

Hrútur undan 21-009 Valíu og 22-712 Króla

Gimbur undan 19-459 Feldísi og 22-714 Ægi

17-325 Litfríð með hrút og gimbur undan 22-717 Vívalda

 

Búin að mynda 222 lömb og 48 lömb eftir. Ég náði nú ekki

nema 8 lömbum í dag, því tíminn fór í annað í dag smiley

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

31.05.2023 18:26

Rok og aftur rok

Lognið er að flýta sér þessa dagana. Það er búið að vera rok

í marga daga. Ég var á báðum áttum hvort ég ætti að hengja

þvott út á snúrur. Hann var fljótur að þorna

Gimbur undan 19-463 Linsu og 22-717 Vívalda. Hún ber

arfgerðina T137

19-445 Lúra með hrút og gimbur undan 19-597 Ótta

16-291 Rakel með tvo hrúta og eina gimbur undan 22-717

Vívalda. Þau eru öll með arfgerðina T137

Gimbur undan 17-370 Karþagó og 19-597 Ótta

Hrútur undan 20-511 Dís og 22-715 Vísi

Hrútur undan 20-504 Myrju og 22-712 Króla

Skógarþröstur

Hrútar undan 17-336 Natalíu og 22-717 Vívalda. Þessi hægra

megin ber arfgerðina T137

Hrútar undan 18-414 Dýfu og 22-714 Ægi

Hrútur undan 21-753 Flís og 22-712 Króla

Hrútur undan 22-021 Kotru og 22-711 Flóna

 

Ég er búin að mynda 214 lömb og þá eru 56 eftir. Ég náði 

39 lömbum í dag smiley

 

 

 
 

 

 

Molinn kveður

 

 

30.05.2023 19:01

Myndataka í dag

Hrútur undan 20-514 Dendý og 22-712 Króla

Hrútur undan 18-415 Dýnu og 22-714 Ægi

Lömb undan 17-357 Dimitríu og 22-714 Ægi

Maríuerla að snyrta sig

 

Ég er búin að mynda 175 lömb og þá eru 95 eftir. Ég náði

12 lömbum í dag

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 
 

29.05.2023 18:52

Myndataka

Nú kemst lítið annað að hjá mér en að mynda lömbin. Ég

ætla að reyna að mynda þau öll. Núna er staðan sú að ég

er búin að mynda 163 lömb og á þá eftir að mynda 107.

Þetta smá kemur smiley

Þessi hrútur er undan 19-459 Feldísi og 22-714 Ægi

Gimbur undan 22-022 Skútu og 22-711 Flóna

Gimbur undan 20-504 Myrju og 22-712 Króla

Auðnutittlingur, karlfugl

Rauður á bringunni

Þrílembingar undan 18-422 Þrístin og 19-597 Ótta

Hrútur undan 20-514 Dendý og 22-712 Króla

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

28.05.2023 18:36

Fermingarveisla

Við fórum í Skagafjörð í dag, í fermingarveislu

Allir guttarnir okkar komu með okkur. Veðrið var rok og

rigning. Við ætluðum á húsbílnum, en hættum við það því

það var svo mikið rok. Strákarnir stóðu sig mjög vel í

ferðinni smiley

Það var verið að ferma þessa fallegu og góðu stúlku. Til 

hamingju elsku Iðunn mín og takk fyrir okkur heart

Veislan var á Löngumýri. Þarna sjáum við Varmahlíð

Auðnutittlingarnir eru duglegir að koma í garðinn okkar.

Fallegur fugl

21-004 Atería með hrúta undan 22-712 Króla

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

27.05.2023 18:46

Enn eru það lömb

Tveir vendir til styrktar Smáranum

 

Það byrjar snemma

Hörku bardagi

 

Saltsteinninn alltaf vinsæll

Þrílembingar undan 18-436 Hlökk og 19-597 Ótta

Systurnar 22-019 Krukka og 22-018 Kópelía með lömb undan

22-711 Flóna

Kópelía

Gimbur undan 22-022 Skútu og 22-711 Flóna

 

Jæja það er búið að vera gott veður hér í dag. Ekkert varð úr

þessu vonda veðri sem átti að koma

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

26.05.2023 18:42

Lömb

Gimbur undan 15-204 Fleytu og 22-717 Vívalda. Hún er með

arfgerðina T137. Við tókum sýni úr 146 lömbum. Það komu

eitthvað á milli 30 og 40 lömb með T137 og eitthvað á eftir

að bætast við, því það á eftir að koma greining úr nokkrum

sýnum. Við fengum eina gimbur sem er með arfgerðina ARR

Að fá sér brauð

Já það tókst

Gimbrar undan 20-506 Marey og 22-712 Króla

Gimbrar undan 22-019 Krukku og 22-711 Flóna

 

Og enn verður brjálað veður

Vonandi fer veðrið að skána

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

25.05.2023 15:02

Kindur og lömb

17-330 Stássa með hrúta undan 22-714 Ægi

16-279 Bytta með gimbrar undan 22-717 Vívalda

Við settum lambær út í dag. Nú eru bara 4 lambær inni

Þær voru ánægðar með græna grasið 

20-504 Marey með gimbrar undan 22-712 Króla. Hún var 

þrílembd og átti líka hrút sem fór undir 18-397 Dáfríð

Hrútur og gimbur undan 16-287 Mollu og 19-597 Ótta

Gimbrar undan 22-016 Sögu og 22-711 Flóna

 

Gimbrar undan 22-026 Mörtu og 22-711 Flóna

Hrútar undan 17-346 Potu og 19-597 Ótta

Hrútur og gimbur undan 20-500 Musku og 22-712 Króla

22-012 Gorma litla að stækka 

Hrútur undan 16-278 Seiglu og 20-604 Grilli og gimbur undan

18-423 Þyrlu og 20-603 Sagosen. Seigla var einlembd og

gimbrin var vanin undir hana

20-519 Sylla með gimbrar undan 22-715 Vísi. Hún var þrílembd

og þriðja lambið, gimbur var vanin undir17-355 Þín

Gimbrar undan 20-522 Glósu og 22-712 Króla. Hún var

þrílembd og var þriðja lambið, gimbur vanin undir 22-027 

Loppu

Hrútur og gimbur undan 18-416 Aníku og 20-604 Grilli

Gimbur undan 17-357 Dimitríu og 22-714 Ægi. Hún gengur

undir 20-491 Santínu

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

24.05.2023 15:03

Lömb

Þessa mynd tók ég um hádegi í dag. Hvíta línan var miklu

neðar í morgun. Veðrið í dag er bara búið að vera

þokkalegt. Vonandi fer þetta nú að lagast

Kindurnar og lömbin bera sig bara vel í þessu veðri sem

búið er að vera. Þetta er Hexía með lömbin sín

Gimbrar undan 19-444 Höpp 19-597 Ótta

Gimbur undan 18-416 Aníku og 20-604 Grilli

Hrútar undan 18-426 Maríku og 20-603 Sagosen

Gimbur undan 15-214 Snjáku og 22-717 Vívalda

Alltaf gaman að gefa brauð

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 



clockhere

Nafn:

Birgitta Lúðvíksdóttir

Farsími:

820-7756

Afmælisdagur:

23. júlí, 1962

Heimilisfang:

Möðruvellir 3

Staðsetning:

Hörgársveit

Um:

Áhugamanneskja um sauðfjárrækt. Er með kindur á Möðruvöllum í Hörgársveit

Einar Breki, kom í heiminn

atburður liðinn í

13 ár

7 mánuði

14 daga

Haukur Nói, kom í heiminn

atburður liðinn í

10 ár

9 mánuði

16 daga

Birgitta Ósk, kom í heiminn

atburður liðinn í

3 ár

3 mánuði

14 daga

Tenglar

Eldra efni