Þetta er síðan hennar Birgittu Lúðvíks.


Flettingar í dag: 1530
Gestir í dag: 85
Flettingar í gær: 631
Gestir í gær: 50
Samtals flettingar: 1158532
Samtals gestir: 63395
Tölur uppfærðar: 27.7.2024 09:23:57

01.08.2023 19:34

Jarðarför

Þórður fór suður, til að fylgja þessum höfðingja síðasta

spölinn. Hann kom svo aftur heim í kvöld. Blessuð sé minning

þín elsku vinur

Við fórum á fjórhjólunum niður á engi. Góður túr fyrir guttana.

Við fórum líka í sund á Hrafnagili

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

31.07.2023 17:39

Naustaskóli

Í morgun

Við fórum á Naustaskólalóðina í dag. 

Spilaður körfubolti

Og farið á hjólabretti

Þessar herþotur flugu yfir okkur og þvílíkur hávaði í þeim

Þær eru nákvæmlega eins

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

30.07.2023 19:41

Komin heim

Svona var veðrið í morgun. Þessi mynd er tekin

Ólafsfjarðarmegin við göngin

Og þessi Dalvíkurmegin þegar við komum úr Múlagöngunum.

Það var gott veður þegar við komum heim. Helgin var góð

Þrílemburnar eru ennþá hér heima. Þær hafa það nú gott

Einn þrílembingurinn er svo gæfur og vill fá dekur

Hann sígur niður að aftan þegar verið er að klappa honum

 

 

 

Brauð og aftur brauð

Það er lambamunur hjá Eyrúnu. Eitt orðið útundan

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

29.07.2023 14:59

Húsbílaferð

Morgunmatur

Við keyrðum til Ólafsfjarðar og fórum þar í sund

 

Og strákarnir fóru að veiða á bryggjunni 

 

Og þeir veiddu nokkra fiska. Við keyrðum svo til Siglufjarðar

 og svo aftur til Ólafsfjarðar 

Við keyrðum að Reykjarétt og hér ætlum við að vera í nótt

Flottu strákarnir okkar

Tveir vildu mála á steina

Og þrír fóru í fótbolta

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

 

28.07.2023 18:37

Helgarferðalag

Við lögðum af stað í ferðalag í dag/kvöld. Við ætlum nú ekki

að fara langt, þar sem þetta ferðalag verður bara um helgina

Ég græjaði kvöldmat handa liðinu. Steiktar bollur og steikt

egg

Það voru allir ánægðir með þennan mat

Svakalegt stuð heart

Við keyrðum í Svarfaðardalinn og lögðum við Tungurétt

Þeir spiluðu fótbolta meðan ég eldaði

Tungurétt

Hér verðum við í nótt. Á morgun förum við svo líklegast í 

Fljótin og gistum þar eina nótt

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

27.07.2023 19:43

Hrísey

Við fórum til Hríseyjar í dag

Hrísey

Hús hákarla Jörundar. Við fórum þangað inn

 

 

 

 

 

 

 

Við fengum okkur svo að drekka

Afi með einn afastrák

Aparólan í notkun

Og ærslabelgurinn

Við fórum í göngutúr um eyjuna

Við fórum græna hringinn

Við vorum 10 í hóp

Sáum þetta í göngutúrnum

Og þetta

 

Allir sex á hjólinu

Grenivík

Árskógssandur

Dalvík

Rjúpa á gönguleiðinni. Hún var með marga unga með sér

Á gönguleiðinni

 

Æðakolla með unga

 

Hún var að baða sig

 

Góð ferð í dag

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

26.07.2023 18:28

Kindur og fuglar

Skeið með lömbin sín

Akafía með lömbin sín

Auðnutittlingar

Þeir borða mikið af sólblómafræjum

Þessi ömmu og afa gullmoli kom í heimsókn í dag. Hann fór

á fjórhjólið í fyrsta sinn og keyrði það eins og hann hefði 

ekki gert annað. Duglegur heart

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

25.07.2023 19:04

Afslöppun í dag

Við fórum í dýragarðinn Daladýrð, í dag

Flottu ömmu og afa gullmolarnir okkar heartheartheart

Við nöfnurnar heartheartheart

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

24.07.2023 17:35

Ferðalag, dagur 6

Einn vinnumaðurinn okkar er búinn að vera hjá ömmu sinni

og afa, sem eiga heima rétt hjá Hólmavík. Við náðum í hann

áður en við lögðum af stað heim. Svona var veðrið sumstaðar

á leiðinni

Prestbakki

Við sáum þessa tvo Smyrla á leiðinni. Þetta eru ungar held

ég. Þeir eru tveir þarna

 

Ungur Smyrill

Við fengum okkur að borða í Víðigerði, á leiðinni heim. Aftur

orðin fimm í heimili

 

Ferðalagið er búið að vera æðislegt. Búin að keyra 1500 km.

Við fengum mjög gott veður allan tímann nema í gær. Þá

kom þoka. 

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

23.07.2023 15:26

Ferðalag, dagur 5

Litlibær við Skötufjörð

Ég hélt að við værum að koma að einhverju þorpi, en nei,

þetta er bílakirkjugarður

 

 

Og þetta drasl var þar skammt frá

Brúin yfir Mjóafjörð. Búið að stytta leiðina yfir fjörðinn

 

Við komum við í Reykjanesi

Þar er fín sundlaug

Ég eldaði dýrindis afmælismat. Hökkuð lifur

Með hveiti og eggjum blandað saman

Og úr varð lifrabuff

 

Sauð kartöflur og gerði stöppu

Dýrindismáltíð. Þetta borðast alltaf vel

Við erum komin á góðan stað, sem við ætlum að vera á í nótt.

Sá staður er rétt hjá Sauðfjársetrinu

 

Sauðfjársetrið

Og strákarnir komnir í fjöruna

Mjög gaman hjá þeim

Það er mikið af Teistu hér, og allskonar fuglum

Teista með fisk

Ferðalagið okkar í dag

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

22.07.2023 15:09

Ferðalag, dagur 4

Það er svo mikið logn, að sjórinn er spegill. Þarna sést til

Þingeyrar

Alveg spegill. En það er komin þoka

Flateyri

Flateyri

Minnisvarðinn um þau sem fórust í snjóflóðinu 26. október

1995

 

Snjóvarnargarðurinn á Flateyri

 

Göngin undir Breiðadals- og Botnsheiði

 

Suðureyri

Suðureyri

Og göngin til baka

 

Ísafjörður

Hnífsdalur

Bolungarvíkurgöng

Bolungarvík

Leiðin upp að Bolafjalli

Uppá Bolafjalli

 

 

 

 

 

Úff frekar hátt niður

 

Brattur vegur niður og þröngar beygjur

Bolungarvík

Við fórum í sund á Bolungarvík

Súðavík

Við erum komin í botn Álftafjarðar og ætlum að gista hér. 

Strákarnir komnir í og við Hestafjarðará

Æðislegur staður

 

 

 

 

Ferðin okkar í dag

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

21.07.2023 12:32

Ferðalag, dagur 3

Þessa mynd tók ég í gærkvöld. Þá var flóð

 

 

Og í morgun var fjara.

Strákarnir fóru í fjöruna strax í morgun

 

 

Patreksfjörður

 

 

 

Þórður þvoði bílinn á Patreksfirði

Articfish, laxa sláturhús. Eða við höldum það 

Tálknafjörður

Kirkjan í Tálknafirði

 

Ég get ekki séð það, að það sé hægt að hafa athafnir í þessari

kirkju. Ég fór aðeins út úr bílnum og þá tóku á móti mér 

grimmar kríur. Þær gogguðu í mig og skitu á mig 

Bíldudalur

Bíldudalur

Við fórum á Skrímslasetrið á Bíldudal. Það var eitthvað

fyrir strákana. Hér koma nokkrar myndir

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Það var gaman að koma þarna við og sjá

 

Við fórum svo áfram og inn í Selárdal. Hér koma myndir á 

leið okkar þangað

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Brautarholt, þar sem Samúel bjó

Ég læt myndirnar tala sínu máli

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þetta er Selárdalur

 

Uppsalir þar sem Gísli bjó

 

 

Það var gaman að koma þarna. Það er svo langt síðan við

fórum þangað 20+ ár

Á leiðinni aftur til Bíldudals

 

Strákarnir skelltu sér í sund í Reykjafirði

Dynjandi

 

Göngin yfir til Þingeyrar

Þingeyri

Við ætlum að gista á Valseyri í botni Dýrafjarðar

Og það er enn ein fjaran þar sem strákarnir geta leikið sér

 

 

 

 

Þetta er ferðin okkar í dag, þetta gula. Þetta rauða er þar sem

við ætlum að gista

 

 

 

 

Molinn kveður

 
 

20.07.2023 19:50

Ferðalag, dagur 2

Við sváfum vel á þessum stað. Strákarnir léku sér í fjörunni

áður en farið var að sofa og svo strax þegar þeir vöknuðu

Frábær staður

Það voru margir selir þarna

Þeir voru að vísu langt frá og þess vegna ekki alveg skýrar

myndir

Þessa mynd tók ég rétt eftir að við lögðum af stað í morgun

Þarna er búið að brúa yfir Gilsfjörð og stytti leiðina talsvert

Og þarna er verið að brúa yfir Þorskafjörð

Þorskafjörður, held ég

 

Við stoppuðum rétt áður en við komum að Flókalundi og 

fengum okkur að borða

Og auðvitað var það við fjöru svo strákarnir gætu leikið sér

 

 

Allir glaðir

Þarna eru þeir að leika sér

Á Kleifaheiði

 

 

Þegar við komum niður af heiðinni

 

Stálskipið við sunnanverðan Patreksfjörð

 

 

Við héldum svo áfram og fórum niður á Rauðasand

 

Á Rauðasandi. Þarna sést Látrabjarg

Sauðbæjarkirkja á Rauðasandi

Rauðasandur

Svona hefur sandurinn fokið allsstaðar. Það var ljós sandur

um allt

Þarna er flugvöllur. Veit samt ekki alveg með hann. Allt í 

drasli þarna 

Patreksfjörður

Já og enn er sandur

 

 

Við fórum á Flugminja- og Minjasafnið á Hnjóti

Þetta er líkan af björguninni, þegar breski togarinn Dhoon

strandaði við Látrabjarg. Ef vel er að gáð, þá sjást menn þarna

á klettinum vera að síga niður að skipinu sem sést líka á 

þessari mynd

 

Látrabjarg, þar sem skipið strandaði

 

 

 

 

 

Gaman að koma þarna. Það er mjög langt síðan við fórum

þangað

Patreksfjörður og Táknafjörður við hliðina

Ef vel er að gáð, þá er þessi bíll þarna hægra megin

á myndinni. Hann hefur verið heppinn að fara ekki lengra

 

 

 

 

Við fórum svo niðuð að Kollsvík

Og keyrðum svo til baka og ætlum að vera hér í nótt. Það er 

við fjöruna í Skápadal við Patreksfjörð 

Og strákarnir komnir niður í fjöru

Hér verður gott að vera. Trúlega fara strákarnir í fjöruna

þegar þeir vakna

Ferðin okkar í dag

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

19.07.2023 12:11

Ferðalag, dagur 1

Jæja þá er nú komið að því. Við lögðum af stað í smá ferðalag,

í dag. Það voru spenntir strákar sem lögöu af stað með 

okkur

Við vorum ekki viss hvert ferðinni var heitið þegar við

lögðum af stað, en við keyrðum vestur á bóginn. Við fengum

okkur smá hressingu á planinu í Víðigerði

Við fórum Laxárdalsheiði og stoppuðum þegar við komum

af heiðinni, fremst í Laxárdalnum, smá stund. Við leyfðum

strákunum að fara niður að á og fá smá hreyfingu

Þar voru sandlóupar með tvo unga

Litlir og sætir

 

Sandlóan lét eins og hún væri vængbrotin 

Hún var hrædd um að við tækjum ungana, en svo var ekki

Við enduðum á að leggja rétt norðan við Búðardal og þar 

ætlum við að vera í nótt

Steikja lauk

Og steikja fisk

Já steiktur fiskur í matinn

Strákarnir voru ánægðir með staðinn og fóru niður í fjöru

Alveg himneskt

Stefnan er tekin á vestfirðina

 

 

 

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

18.07.2023 18:56

Fuglar

Maríuerla að gefa unganum sínum að borða

 

Ánægur ungi

Það eru eitthvað á þriðja, já eða fjórða tug af Auðnutittlingum

hér. Þeir þyggja fóðrið

 

 

 

Þeir eru gæfir

Hettumáfur að fá sér ís, fyrir utan Ísbúðina á Akureyri

Þeir eru ótrúlega gæfir

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 



clockhere

Nafn:

Birgitta Lúðvíksdóttir

Farsími:

820-7756

Afmælisdagur:

23. júlí, 1962

Heimilisfang:

Möðruvellir 3

Staðsetning:

Hörgársveit

Um:

Áhugamanneskja um sauðfjárrækt. Er með kindur á Möðruvöllum í Hörgársveit

Einar Breki, kom í heiminn

atburður liðinn í

12 ár

10 mánuði

13 daga

Haukur Nói, kom í heiminn

atburður liðinn í

10 ár

15 daga

Birgitta Ósk, kom í heiminn

atburður liðinn í

2 ár

6 mánuði

13 daga

Tenglar