Þetta er síðan hennar Birgittu Lúðvíks.


Flettingar í dag: 1338
Gestir í dag: 60
Flettingar í gær: 631
Gestir í gær: 50
Samtals flettingar: 1158340
Samtals gestir: 63370
Tölur uppfærðar: 27.7.2024 06:13:25

18.05.2023 18:23

5 ær eftir

Þetta er nú meiri kindin. Hún var ekki alveg viss með lömbin 

sín hvort hún ætti að stanga þetta eða hitt. Hún var alveg

vilt í nokkra daga eftir að hún bar. Hún varð svo sátt við þau

þegar við settum hana með öðrum kindum. Þá þurfti hún

að verja þau. Hún lét svona líka í fyrra. Mjög skrítið. Núna

er hún sátt við þau. 16-280 Glitbrá með gimbrar undan

20-603 Sagosen

20-500 Muska með hrút og gimbur undan 22-712 Króla

Gimbur undan 17-370 Karþagó og 19-597 Ótta. Þarna sést

hvernig búið er að réttast úr eyranu. Þegar merkin eru sett í,

þá hanga eyrun, en svo með tímanum réttast þau

17-364 Þóra að gæða sér á brauði

Og þessi hrútur líka undan 16-305 Elinóru og 22-717 Vívalda

Maríuerla að undirbúa hreiðurgerð

Auðnutittlingur

Starinn ákvað að gera sér hreiður í dráttarvélinni. Þórður er

búinn að vera að rúnta með eggin og svo núna ungana. 

Hann hefur bara tekið þessu rólega greyið. Þórður hefur 

samt reynt að nota þessa vél eins lítið og hægt er

Starinn að gefa ungunum orma

 

5 ær eftir

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

17.05.2023 18:35

6 ær eftir

Við fórum upp í fjall til að gera við fjallsgirðinguna. Það þurfti

að gera við í ánni og lægðinni norðan við hana

 

Veðrið var mjög gott í dag. Við opnuðum hliðin þannig að 

núna kemst féð upp í fjallshólf. Allt opið og féð kemst um allt

 

6 ær eftir

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

16.05.2023 18:05

8 ær eftir

Við settum lambærnar út í morgun. Núna eru óbornu ærnar

inni og ær með yngstu lömbin

Þær voru ánægðar að komast út

Systkinalúr

Gemlingarnir voru líka ánægðir að komast út.

Þetta er 22-022 Skúta með gimbur undan 22-711 Flóna

22-019 Krukka með gimbrar undan Flóna

 

Nú eru 8 eftir að bera

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 
 

15.05.2023 18:43

13 ær eftir

Strákarnir á Möðruvöllum 3 að bíða eftir skólabílnum

Það er misjafnt uppeldið hjá kindunum. Sumar þeirra eru

með lömbin algjörlega hjá sér

En aðrar ráða ekkert við þau. Þau láta mömmurnar ekkert

segja sér að liggja kyrr, meðan þær borða

Það hefur ekki komið þetta vonda veður eins og spáð var. 

Það kom smá hríð í morgun en ekkert meira. En það er frekar

kalt. Við ætlum að setja ærnar út á morgun

Það eru allar einstaklingsstíurnar fullar, núna þegar allar

ærnar eru inni. Við bjuggum til smá pláss í hlöðunni fyrir 

nokkrar lambær

Fullur garðinn af lömbum

 

Það eru 13 ær eftir að bera

Komin 248 lömb, 111 hrútar og 137 gimbrar

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

14.05.2023 17:53

Vont veður framundan

Jæja nú er spáin ekki góð fyrir morgundaginn

Það á að snjóa

 

Óbornu ærnar

Við ákváðum að setja allt lambféð inn og hýsa það þar til á

þriðjudaginn, til öryggis ef veðrið verður vont

Þær hafa það nú gott þó þær þurfi að vera inni

 

Allt fullt inni í hlöðu

Þetta verður betra þegar veðrið er gengið yfir

Verið að sá í flagið. Robbi sá um það

 

20 ær eftir

233 lömb, 102 hrútar og 131 gimbrar

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

13.05.2023 16:00

23 ær eftir

Við settum ærnar út í morgun, þær sem við settum út og

aftur inn í gær. Þær eru búnar að vera í góðu veðri í dag, en

svo fór að rigna seinnipartinn og við settum þær inn. Það á 

að vera leiðinlegt veður á morgun og mánudaginn. Við 

setjum ekkert meira út í bili

Það eru 23 ær eftir

Það eru komin 226 lömb, 98 hrútar og 128 gimbrar

 

Ég verð að fara að hvíla mig, því ekki gat ég það í nótt. Vonandi

bera þær ekki í nótt, en mega byrja strax kl. 7 í fyrramálið smiley

Já ég verð að fá að sofa eitthvað smiley

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

12.05.2023 16:06

31 ær eftir

Systurnar bornar. Þetta er 22-018 Kópelía með hrút og gimbur

undan 22-711 Flóna

Og systir hennar 22-019 Krukka kom með þrjár gimbrar. Ein

þeirra kom dauð. Þær eru undan Flóna

Hrútur og gimbur undan 22-025 Moniku og Flóna

Hrútur og gimbur undan 22-021 Kotru og Flóna

Gimbur undan 21-001 París og 22-715 Vísi

Gimbur undan 20-493 Hjörní og Vísi

Gimbrar undan 16-298 Búbbu og 19-597 Ótta

15-619 Eyrún með tvær gimbrar og einn hrút undan 22-714

Ægi

 

Við vorum búin að setja þessi út, en settum þau inn aftur

þegar fór að rigna. Þau voru ánægð að komast inn

 

31 ær eftir að bera. Búið að vera rólegt í dag og það bar engin

í nótt. Ég náði að hvílast vel í nótt. Nú er spurning hvernig 

næsta nótt verður

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

11.05.2023 17:53

37 ær eftir

Enn fækkar í húsunum. 37 eftir að bera. Nú fer þetta að verða

viðráðanlegt, þá semsagt rólegra. Ég er ekki búin að sjá hvort

einhverjar hafa gengið upp. Ef ekki, þá líkur sauðburði 20. maí

 

Gott fyrir þær að fá að vera úti í þessu góða veðri. Það á nú

að kólna á sunnudaginn. Þá setjum við eitthvað af þeim inn

Enn er unnið í flaginu

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 
 

10.05.2023 18:05

Sauðburður

Þeim fækkar ört. Þetta eru ærnar sem eftir eru að bera. Þær

eru 46. Við erum búin að vera alveg á haus í sauðburði. Nú

fer að hægjast á vinnunni og ég get sofið meira á nóttunni.

Ég svaf ekki mikið síðustu nótt, því það báru svo margar. Ég

ætla að fara að leggja mig

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

09.05.2023 16:42

143 lömb

Þetta eru allar ærnar sem eftir eru að bera, eitthvað um 60.

Við erum búin að setja þær í tvær krær. Enn er þónokkur 

vinna eftir í sauðburði.

 

Það eru komin 143 lömb. 68 hrútar og 75 gimbrar

 

18-409 Elíza með hrút og gimbur undan 17-861 Fjalla. Hún

bar í gær og fékk að fara út í dag. Hún var frekar ánægð með

það

Í dag, var byrjað að vinna stykkið sem við höfðum fyrir kálið.

Simmi er að plægja það

Simmi að plægja

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

08.05.2023 15:21

119 lömb

Við settum fleiri lambær út í dag. Ég held að það séu komnar

eitthvað um 60 lambær út. Svakalega sem það léttir

sauðburðinn að geta sett svona út. Þær hafa það nú mjög gott

 

Það eru komin 119 lömb, 56 hrútar og 63 gimbrar

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

07.05.2023 15:48

110 lömb

Forystu gimbur og hrútur undan 15-236 Hexíu og 17-861 Fjalla.

 

Nú er sauðburður á fullu og það eru komin 110 lömb. Ég

gleymdi að taka saman hvað ærnar, sem eru bornar, eru

margar. Tek það saman á morgun

Þessar systur liggja alltaf saman. Þær eru aðeins farnar að 

venjast því þegar ég labba garðana og er að athuga hvort

einhver sé að bera. Þær eru undan 14-143 Kiðu og 21-703

Jalla. Þessi fremri er þrílembd og hin tvílembd

Við erum búin að vera í fjárhúsunum í allan dag. Litli stubbur

er búinn að gera svona fínt bú. Hann hefur sett vatn í "tjarnir"

Mikill dundari

Við elduðum í fjárhúsunum í dag. Hamborgari og franskar. 

Allir ánægðir smiley

Veðrið var æðislegt í dag

Mála steina og gera listaverk

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

06.05.2023 17:56

Áburður borinn á túnin

Við fengum Hlyn verktaka í að bera áburð á túnin. Hann bar

á öll túnin hér heima, nema Nunnuhólsstykkið (nr. 1)

 

Það er búið að vera svo mikið að gera í sauðburði að ég er 

ekki búin að taka saman stöðuna á lömbunum. Núna næstu

daga verður mikið að gera

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

05.05.2023 16:52

69 lömb

Lambærnar sem fóru út í gær, en voru svo settar inn aftur, 

fengu að fara aftur út í dag. Þær verða úti í nótt. Það er búið

að gefa þeim rúllu. Ég held að það fari vel um þær

 

Þær láta fara vel um sig þessar

 

 

Það eru komin 69 lömb

28 hrútar og 41 gimbrar

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

04.05.2023 18:47

47 lömb

24 bornar. Komin 47 lömb. 20 hrútar og 27 gimbrar

Við settum nokkrar lambær út í dag

 

 

Þær voru úti í nokkra klukkutíma og voru svo settar aftur inn.

Lömbin léku sér. Veðrið í dag var mjög gott

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 



clockhere

Nafn:

Birgitta Lúðvíksdóttir

Farsími:

820-7756

Afmælisdagur:

23. júlí, 1962

Heimilisfang:

Möðruvellir 3

Staðsetning:

Hörgársveit

Um:

Áhugamanneskja um sauðfjárrækt. Er með kindur á Möðruvöllum í Hörgársveit

Einar Breki, kom í heiminn

atburður liðinn í

12 ár

10 mánuði

13 daga

Haukur Nói, kom í heiminn

atburður liðinn í

10 ár

15 daga

Birgitta Ósk, kom í heiminn

atburður liðinn í

2 ár

6 mánuði

13 daga

Tenglar