Þetta er síðan hennar Birgittu Lúðvíks.


Flettingar í dag: 1530
Gestir í dag: 85
Flettingar í gær: 631
Gestir í gær: 50
Samtals flettingar: 1158532
Samtals gestir: 63395
Tölur uppfærðar: 27.7.2024 09:23:57

22.07.2022 18:03

Hrútar

18-591 Viti

18-593 Hamar

19-597 Ótti

20-603 Sagosen

20-604 Grillir

20-607 Dúi

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 
 

21.07.2022 18:59

Bændablaðið í dag

21-009 Valía

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

20.07.2022 19:19

Girðingarvinna

Jæja, þá er það girðingarvinnan. Lömbin stungu sér í gegn

í morgun, áður en við komum. Við settum þau inn og 

kláruðum síðustu hliðina, (að vestan)

Það er ekki séns að þau komist út núna nema að stökkva

yfir girðinguna. Hólfið orðið lambhelt yes yes

Þau voru nú ekki ánægð með okkur, en þurfa að venjast því

að vera þarna og hafa nóg að bíta smiley

Þessir bræður eru rólegir og eru bara hér heima. Fara ekki

neitt á flakk. Þeir eru móðurlausir greyin þó það sjáist ekki

á þeim. Þeir eru orðnir stórir og flottir

Hrútar undan 18-401 Rúðu og 18-591 Vita

Verið að leika sér í frisbí

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

19.07.2022 17:56

Dalvík

Ja hérna, ég get sagt ykkur það. Lömbin gátu nú ekki verið

róleg í hólfinu. Þau fóru í gegnum möskvana á vesturhliðinni. 

Þau fóru upp í fjallshólf og þaðan niður á tún. Við ætlum að 

girða síðustu hliðina á morgun. ÞÁ GETA ÞAU EKKI KOMIST

Í GEGN angry

 

Við skruppum á Dalvík í dag. Við fórum á skólalóðina og

krakkarnir léku sér þar. Hér koma myndir frá Dalvík

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Fallegir gullmolar

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

18.07.2022 19:36

Girðingarvinna

Heimalingarnir hafa verið í þessu fjárhúshólfi síðan þeir

hættu á mjólkurfóstrunni. Þeir tóku svo allt í einu upp á því

um daginn, að fara í gegnum möskvana á girðingunni og 

fara þangað sem hugurinn girnist

Við tókum okkur til og settum lambhelt net, á austurhliðina

á hólfinu. Þá var komið lambhelt net á tvær hliðar, norður og

austur. Við vorum ekki alveg búin með austurhliðina, þegar

lömbin voru komin niður á tún. Þau ulluðu bara á okkur.

Þau fóru bara í gegn á suðurhliðinni. Við kláruðum að girða

og rákum þau svo inn. Við settum afganginn af girðingarnetinu

á hluta á suðurhliðinni. Þá fóru þau ekki í gegn. Hafa ekki 

fattað að fara með girðingunni ofar á suðurhliðinni

Lömbin voru ekki sátt. Það er svo skrítið, því þau hafa gott

gras að bíta. Áborið tún. Vatnið alltaf gott, því það rennur

lækur í gegnum hólfið

Já ekki sátt

Við fórum svo og settum net á suðurhliðina. Nú er bara

vesturhliðin eftir, en það er ekki víst að þau fari þar í gegn,

því þau hafa bara sótt í að fara niður á tún en ekki upp í hólf

Möskvarnir orðnir litlir. Þau komast enganvegin í gegnum

þetta. Nú vona ég að þau haldist í hólfinu í allt sumar

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

17.07.2022 19:20

Heimalingar

Gimbur undan 20-505 Læku og 21-704 Tindra

Hrútur undan 14-252 Sprengju og 21-703 Jalla

Gimbur undan 16-288 Jóney og 21-705 Kalda

Gimbur undan 17-313 Moskvu og 21-705 Kalda

 

Þau eru nú ekki að flýta sér að stækka, en hafa samt stækkað

aðeins

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

16.07.2022 17:49

Eyjafjörður

Þessi ömmu og afa gullmoli, varð 6 mánaða fyrir tveim

dögum. Við hittum hana aðeins í dag heart Birtan aðeins of 

mikil fyrir hana heart

Við fórum rúnt inn í Eyjafjörð

 

Veðrið var mjög gott

Hólavatn. Vatnið var spegill

 

Mjög flott

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

15.07.2022 18:47

Seinni áburðardreifing

Við fengum verktaka til að bera áburð á túnin

Við kveiktum smá eld í dag, til að geta grillað sykurpúða. Það

er alltaf fjör

Í gær fórum við rúnt á húsbílnum. Við keyrðum á Blönduós,

fórum svo fyrir skagann. Svakalega gott veður

Skagaströnd. Fæðingarstaður minn

Drangey. Við eigum nú eftir að fara með strákana þangað

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

14.07.2022 18:38

T137

21-009 Valía. Hún var að greinast með arfgerðina T137

Myndin er tekin 22. október 2021

Hér er hún með hrút og gimbur

 

Við tókum einungis sýni úr 20 kindum

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

13.07.2022 18:36

Þrílemburnar keyrðar á fjall

Við jörðuðum Týra í garðinum okkar í morgun

Strákarnir voru duglegir að hjálpa til

 

Elsku Týri, hvíldu í friði heart

16-271 Öld með gimbrar undan 21-701 Brúsa og hrút undan

17-311 Selju og 21-705 Kalda

16-270 Sif með tvo hrúta og eina gimbur undan 21-703 Jalla

16-276 Urta með hrúta undan 20-605 Bæron

Systurnar Læna og Læpa, og Eyrún með þríbbana sína

17-357 Dimitría með tvo hrúta og eina gimbur undan

21-703 Jalla

19-483 Blökk með tvær gimbrar og einn hrút undan

18-591 Vita. Fjórða lambið, gimbur fór undir 17-378 Kleópötru

Systurnar18-403 Læpa og 18-404 Læna. Læpa er með hrúta

undan 20-603 Sagosen og hún er líka með hrút undan

Framtíð og 18-593 Hamri. Við gerðum hana þrílembda.

Læna er með tvo hrúta og eina gimbur undan Sagosen

18-424 Duna með gimbur undan  19-597 Ótta og gimbur 

undan 21-009 Valíu og 21-706 Hnikari. Duna var sónuð með

þrjú, en kom með eitt pínulítið, lifandi (mórauða)

16-286 Dríla með tvær gimbrar undan 21-705 Kalda

 

15-619 Eyrún með gimbrar undan 18-591 Vita og hrút undan

17-314 Slettu og 21-705 Kalda. Við gerðum Eyrúnu þrílembda

17-329 Reka með hrút og gimbur undan 21-705 Kalda og 

hrút undan 18-425 Dælu og 18-591 Vita. Við gerðum Reku

þrílembda

 

Við keyrðum þrílembunum, sem eru 10, og tvílembunum

sem báru seint eða í júní, sem eru 6, inn á Myrkárdal. Þær

voru frelsinu fegnar. Nú eru bara hrútarnir og þrjár ær hér

heima

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

12.07.2022 17:14

Búið að keyra öllum rúllunum heim

Þórður að koma með síðustu rúllurnar neðan af engi

Vel gert Þórður snillingur!!

Hann er nánast búinn að sitja í vélunum í 9 daga, stanslaust.

Duglegur heart

 

Elsku Týri er kominn í sumarlandið. Hann var orðinn gigtveikur.

Átti erfitt með að standa upp. Nú eru þeir Huginn litli að 

leika sér saman heartheartheart

 

 

 

Hvíldu í friði elsku Týri. Þín verður sárt saknað heartheartheart

 

 

Þessi ömmu og afa gullmoli er 8 ára í dag heart Til hamingju 

elsku Haukur Nói minn heartheartheart

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

11.07.2022 15:45

Rúllur á enginu

Við fórum niður á engi og gengum frá endum og merktum

rúllurnar

Strákarnir voru duglegir að vanda. Við vorum ekki lengi að 

merkja og ganga frá endum á 95 rúllum

Þessi fylgdist með að við gerðum þetta vel

Þórður keyrði heim öllum rúllunum af stykki 7, 32 rúllur

Hann fór svo eina ferð af stykki 6. Þá á hann eftir að fara 

þrjár ferðir. Það voru 63 rúllur á stykki 6

Hann er búinn að standa sig alveg svakalega vel í þessum

heyskap. Ég átti að vísu ekki von á öðru með hann heart

Þegar við vorum að ganga frá og merkja rúllurnar, þá sáum

við td. þessa flugu. Ég veit ekki hverskonar fluga þetta er. 

Hún er græn að lit. Minnir á engisprettu smiley

Svo sáum við svakalega margar lúsmý flugur. Þessi til hægri

er lúsmý

Þær eru mjög litlar

Þetta er lúsmý. Þær virðast stórar á þessari mynd, en ég tók

myndina mjög nálægt þeim, þá virðast þær stórar

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

10.07.2022 19:05

Fyrri heyskap lokið

Þórður að garða. Tilbúið að rúlla

Það voru 63 rúllur á stykki 6 og 32 á stykki 7. Samtals 95 rúllur

 

Það er þá búið að rúlla 196 rúllur í fyrri slætti

Þessi gullmoli hélt upp á 8 ára afmælið sitt í dag

Hann verður 8 ára 12. júlí. Flottur ömmu og afa strákur

Hann var með pokemon þema. Flott pokemon terta sem

þau bökuðu. Takk fyrir okkur elsku gull heart

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

09.07.2022 16:09

Heyskapur á enginu

Þórður sló bæði stykkin í gær

Og hann snéri á þeim tvisvar í dag. Vonandi verður hægt

að rúlla þetta á morgun

Sérstakur himinn í morgun

Við skruppum niður á engi í morgun

Fjórir vinir

Svo var það Gáseyrarfjaran. Þeir gátu dundað sér þar

Og þessir líka

 

Krían með síli handa unganum sínum

 

 

Verið að verja sig fyrir kríunni

 

Svo var farið í sund á Þeló

Og líka tekið hopp

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

08.07.2022 14:29

Fyrri heyskapur á enginu

Garðvinna hjá þessum

Þórður kláraði að keyra heim rúllunum. Þarna nær hann í 

síðustu rúlluna

101 rúllur í stæðunni

 

Síðasta rúlllan sett í stæðuna

Fyrri heyskap lokið hér heima

Hann slappar ekkert af. Hann er byrjaður að slá niður á engi

Það eru tvö stykki þar, (stykki 6 og 7)

 

Hann kláraði að slá á enginu. Hann er duglegur karlinn heart

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 



clockhere

Nafn:

Birgitta Lúðvíksdóttir

Farsími:

820-7756

Afmælisdagur:

23. júlí, 1962

Heimilisfang:

Möðruvellir 3

Staðsetning:

Hörgársveit

Um:

Áhugamanneskja um sauðfjárrækt. Er með kindur á Möðruvöllum í Hörgársveit

Einar Breki, kom í heiminn

atburður liðinn í

12 ár

10 mánuði

13 daga

Haukur Nói, kom í heiminn

atburður liðinn í

10 ár

15 daga

Birgitta Ósk, kom í heiminn

atburður liðinn í

2 ár

6 mánuði

13 daga

Tenglar