Þetta er síðan hennar Birgittu Lúðvíks.


Flettingar í dag: 2681
Gestir í dag: 108
Flettingar í gær: 631
Gestir í gær: 50
Samtals flettingar: 1159683
Samtals gestir: 63418
Tölur uppfærðar: 27.7.2024 15:38:01

03.05.2023 18:39

30 lömb

Kl. 02:17 í nótt

Og kl. 5 í morgun

Mamman með dæturnar og allar sofa vært. 17-369 Babúska

með gimbrar undan 20-603 Sagosen

Þórður setti upp fuglahús, sem tengdamamma bjó til og gaf

okkur fyrir nokkrum árum. Hann var rétt búinn að setja það

upp, þegar þröstur bjó til hreiður í húsinu. Það verður gaman

að fylgjast með smiley

Hreiðrið í húsinu

 

30 lömb. Sauðburður byrjar rólega. 15 bornar

4 einlembur, þar af einn gemlingur

4 þrílembur

7 tvílembur, þar af 3 gemlingar

Núna er 1 með eitt

1 með þrjú og 13 með tvö

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

02.05.2023 14:42

Geldféð sett út

Tunglið í gærkvöld

19-463 Linsa með tvær gimbrar og einn hrút undan 22-717

Vívalda

Hrútarnir settir út í dag. Þeir voru settir í hólfið við gömlu

fjárhúsin. Við settum líka smá gimbrarnar út, en þær fóru í 

rjómahólfið. Við ákváðum að hafa þær ekki hjá hrútunum

til að losna við að fá lömb í göngunum í haust smiley

Þeir voru bara rólegir

Tvær gimbrar og einn hrútur undan 17-328 Dyngju og 20-604

Grilli

Systkinakúr. Lömbin hennar Linsu

 

22 lömb

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

01.05.2023 18:15

12 lömb

Það bar engin í nótt, en þessi bar í morgun. Þetta er 16-279 

Bytta. Hún kom með tvær gimbrar undan 22-717 Vívalda

(T137)

Hér er hún í afslöppun með gimbrarnar sínar

Svo bar einn gemlingur. Það kom bara hausinn á fyrra

lambinu og það tók smá tíma að koma hausnum inn og ná

lambinu aftur út. Þetta er 22-016 Saga með gimbrar undan

22-711 Flóna. Þau eru að ná sér og komin á fætur

Vinnumennirnir okkar

Við erum búin að vera í fjárhúsunum í allan dag, eða svona

næstum því. Hér er verið að næra sig smiley

 

12 lömb smiley

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

30.04.2023 18:57

Það mætti nú fara að koma vor

Þessir fengu að gista með mér í fjárhúsunum í nótt. Það bar

engin og það hefur engin borið í dag

Allt í rólegheitunum

15-226 Dós. Þær eru nokkrar sem sitja á rassinum þessa

dagana

Og eru alveg að springa

 

Apríl mótið var í gær og Damian er í fjórða sæti. Þá er maí

mótið eftir og þá eru þessi mánaðarmót búin

 

Æi afhverju þetta??? Það er hrikalega kalt úti þessa dagana.

Það mætti nú fara að koma vor

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

29.04.2023 15:51

8 lömb

Fjórar bornar og komin 8 lömb

Skel, bar um hádegi og kom með kónginn. Hún er eini

gemlingurinn sem er einlembd 

18-436 Hlökk kom með þrjú í gærkvöld. Tvær gimbrar og 

einn hrút. Þau eru undan 19-597 Ótta

Þetta lamb sem er mest hvítt, er hrútur. Drottningin er þarna

til hægri

Svo báru þessar systur í nótt. Ég vaktaði þær á 45 mín. fresti.

Þær voru að til tvö í nótt. Eftir það vaknaði ég á tveggja tíma

fresti og fór fram að athuga hvort einhver væri að bera

Þetta er hún 22-026 Marta með gimbrar undan 22-711 Flóna

Og þetta er hún 22-024 Mantra með hrút og gimbur undan

Flóna.

Nú er smá hlé held ég þannig að ég ætti að geta sofið í nótt,

eitthvað meira en síðustu nótt. Þær eiga ekki tal fyrr en 1. maí.

Þessar vildu bara ekki bíða eftir 1. maí smiley

Þá er að klára að setja þetta upp

Og það tókst að klára þetta. Þarna eru 10 einstaklingsstíur.

Þá eru klárar 30 einstaklingsstíur í hlöðunni smiley

Þessir eru búnir að leika sér í allan dag. Þarna eru þeir með

segulkubba. Þeir njóta sín tveir í dag og á morgun. Bubbi 

fór suður að keppa, fór í morgun og kemur á morgun. Damian

fór í gær í stuðning á Akureyri og kemur á morgun. 

Ég held að þessir tveir ætli að gista með mér í fjárhúsunum í

nótt

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

28.04.2023 15:57

Sauðburður byrjaður

Þá er nú sauðburður skollinn á. Þessi lambakóngur fæddist

í dag. Hann er undan 22-020 Skel og 22-711 Flóna

Skel er eini gemlingurinn sem er einlembdur

Hann er alveg ágætt gemlingslamb. Móflekkóttur.

 

Það eru svo þrjár að byrja að bera. Tveir gemlingar tvílembdir

og ein þrílemba. Vonandi gengur það vel hjá þeim.

 

Ég hélt að það þyrfti ekki að fara að vakta þær fyrr en á 

morgun, en ég ætla að sofa í fjárhúsunum í nótt. Fyrsta nóttin

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

27.04.2023 17:48

Stari

Við settum tvö fuglahús upp á þessa kofa sem eru í garðinum

okkar. Svo í gær, þá sá ég að Starinn var farinn að kíkja þarna

inn. Hann er búinn að vera á fullu að bera inn lauf, greinar

og fl. Vonandi ætlar hann að verpa þarna. Það verður svo

gaman að fylgjast með smiley

Starinn að fara inn

 

Og það sem hann er að bera inn

 

 

Það er nú ekki komið hreiður ennþá. Sjáum hvað verður

Damian sá um matinn í kvöld. Hann grillaði hamborgara

Girnilegt

Allir ánægðir með matinn

Nú styttist í lömbin

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

26.04.2023 19:19

Íslandsmet í skólahreysti

Þelamerkurskóli tók þátt í skólahreysti, í kvöld

Bubbi tók þátt í upphífingum og dýfum

Hér er hann í upphífingum

 

Og hér í dýfum

 

Ester Katrín í Þelamerkurskóla gerði nýtt Íslandsmet í 

hreystigreip. Hún hékk í 17:18 mín. Svakalega flott hjá henni

 

 

 

Sandra og Jósef tóku þátt í hraðaþraut

Ester Katrín tók líka þátt í armbeygjum

 

Þetta var glæsilegt hjá þessum krökkum smiley

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 
 

 

25.04.2023 19:19

Stari með langan gogg

Þessi Stari er með mjög langan gogg. Hann er búinn að vera

hérna mjög lengi. Efri goggurinn er lengri en sá neðri

Það sést betur á þessari mynd. Þarna er hann að gæða sér

á fitu af hrossakjöti

Þessi Stari er með venjulegan gogg

Stari

Skógarþröstur

 

Sílamáfur

Sílamáfur tekur flugið

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

24.04.2023 18:57

Kalt, en fallegt veður

Veðrið var fallegt í dag, en það var kalt. Ég held að það eigi

að vera kalt alla vikuna. Vonandi verður maí góður og hægt

verði að setja ærnar út fljótlega eftir burð

15. október 2022, 22-014 Gáta

18. apríl 2023, Gáta. Hálft ár á milli mynda

 

Kindurnar eru orðnar þungar á sér

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

23.04.2023 17:54

Klippa klaufir

Þrílembur í afslöppun

Við klipptum klaufirnar á þessum hóp (gimbrar, smá/haustlömb),

í dag

Og þennan hrúta hóp (smá/haustlömb)

Við tókum líka hrútana og klipptum klaufirnar á þeim

Þessi flotti vinur okkar hjálpaði okkur 

 

Það eru svo margar lóur hérna á túnunum. Líklegast um

100 í hópum

Fallegur fugl

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

22.04.2023 17:07

Langafi og langamma

Þessi fallegi gullmoli fæddist í nótt. Þetta er dóttur, dóttur 

sonur Þórðar. Hann gerði okkur að langafa og langömmu heart

Já við urðum eldri í nótt smiley

Við skelltum okkur í það að undirbúa sauðburðinn. Við náðum

í garðana til að setja í hlöðuna  

Þarna erum við búin að þrífa og taka til, til að setja upp 

einstaklingsstíur

Við þrifum og tókum til þarna uppi og þetta er fyrir 15 

lambær

Við erum búin að bera inn gólfið fyrir stíurnar

Og garðarnir komnir inn

Við erum líka búin að færa afrúllarann. Nú er þetta allt að 

koma. Við eigum bara eftir að koma stíunum upp og þá er

allt tilbúið

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

21.04.2023 17:14

10 dagar

Allt í rólegheitunum í fjárhúsunum. Þær eru að safna orku fyrir

tímann sem framundan er.

Við dundum okkur eitthvað í fjárhúsunum á morgun

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

20.04.2023 18:46

Gleðilegt sumar

Gleðilegt sumar og takk fyrir veturinn, kæru síðuvinir

Vinnumennirnir okkar eru orðnir fjórir. Nú erum við með

fjóra stráka í Þelamerkurskóla smiley Þeir verða fjórir þar til 

skóla lýkur í vor smiley

Ungur nemur, gamall temur. Hér er Þórður að kenna Bubba

á dráttarvélina, til að slóðadraga

Og Bubbi kominn á stað

Og Damian búinn að læra og kominn af stað

Sumardagurinn fyrsti og þá er nú góður matur. Grillmatur smiley

Eftir hádegi fórum við í girðingarvinnu. Í fyrra haust gerði

brjálað veður sem olli því að girðingin sem liggur suður-norður

fór á hliðina. Staurarnir brotnuðu af þunganum af snjónum

og rokinu

Strákarnir duglegir að hjálpa okkur

Þarna erum við búin að gera við

Svo eru líka brotnir staurar á þessum kafla

Og við gerðum við þetta líka. Nú er fjárhúshólfið og

rjómahólfið orðið fjárhelt að nýju.

Veðrið í dag var alveg frábært. Góður hiti og sól

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

19.04.2023 17:52

Kaffitími í fjárhúsunum

Kaffitími í fjárhúsunum, í lok morgungjafar. Nú styttist í að 

maður verði í fjárhúsunum allann sólahringinn. Það verður

29. apríl. Fyrstu ærnar eiga tal 1. maí. Kollóttar ær ganga 

styttra með og það eru nokkrar sem eiga tal fyrsta daginn

og geta þess vegna borið fyrr smiley

Það er orðið þurrt á túnum og tími kominn til að slóðadraga

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 



clockhere

Nafn:

Birgitta Lúðvíksdóttir

Farsími:

820-7756

Afmælisdagur:

23. júlí, 1962

Heimilisfang:

Möðruvellir 3

Staðsetning:

Hörgársveit

Um:

Áhugamanneskja um sauðfjárrækt. Er með kindur á Möðruvöllum í Hörgársveit

Einar Breki, kom í heiminn

atburður liðinn í

12 ár

10 mánuði

13 daga

Haukur Nói, kom í heiminn

atburður liðinn í

10 ár

15 daga

Birgitta Ósk, kom í heiminn

atburður liðinn í

2 ár

6 mánuði

13 daga

Tenglar