Þetta er síðan hennar Birgittu Lúðvíks.


Flettingar í dag: 1224
Gestir í dag: 36
Flettingar í gær: 631
Gestir í gær: 50
Samtals flettingar: 1158226
Samtals gestir: 63346
Tölur uppfærðar: 27.7.2024 04:44:26

24.12.2021 23:08

Gleðilega hátíð kæru síðu-vinir

Gleðileg jól kæru síðu-vinir emoticon


Við byrjuðum daginn á því að gefa kindunum



Fallegt veður í morgun


Við borðuðum léttreyktan lambahrygg


Tveir spenntir að bíða eftir að fá að opna pakkana


Þórhallur var með okkur í kvöld


Við erum líka orðin spennt fyrir kvöldinu





Molinn kveður


23.12.2021 23:34

Þorláksmessa


Möðruvallakirkja í morgun


Möðruvellir 3


Við fengum falleg jólablóm frá góðum vinum


Ég var búin að öllu í dag, nema skipta um á rúmunum og það geri ég á morgun. Þegar ég var búin í dag ákvað ég að baka eina uppskrift af góðu mömmukökunum og þá er ég búin að baka fjórar uppskriftir. Ég held að ég hafi aldrei verið búin að öllu svona snemma. Ég hef alltaf ætlað að vera búin, en aldrei tekist fyrr en núna emoticon

Ooohhh þær eru svo góðar

Nóg til emoticon


Þessi fallega ömmu og afa gull kom í dag ásamt foreldrum sínum og ætla þau að vera hjá okkur fram á sunnudag emoticon





Molinn kveður


22.12.2021 21:51

Fengitíminn að klárast


Nú er gangmálið liðið og engin búin að ganga upp. Vonandi verður það þannig áfram

Við erum með dagsetningar á öllum nema rétt rúmlega 20. Í fyrra vantaði þær á 70 ær. Það auðveldar manni á sauðburði að hafa dagsetningar


Strákarnir duglegir í morgunverkunum með okkur





Molinn kveður


21.12.2021 20:41

Vetrarsólstöður


Staðarskarð í morgun

Vetrarsólstöður
Sólstöður eða sólhvörf er sú stund þegar sól fer lengst frá miðbaug himins til norðurs eða suðurs. Sólstöður eru tvisvar á ári, sumarsólstöður á tímabilinu 20.-22. júní, þegar sólargangurinn er lengstur og vetrarsólstöður 20.-23. desember, þegar hann er stystur


Sólargeislar yfir Akureyri í morgun


Frostrósir á bílrúðunum

Það eru tré á framrúðunni á bílnum okkar emoticon


Þórhallur kom og skreytti tréð. Það er klárt fyrir 24 emoticon





Molinn kveður


20.12.2021 21:34

4 dagar til jóla


Staðarskarðið í morgun


Sólargeislar í morgun


Tunglið í dag


Við þvoðum alla gluggana á húsinu, í dag. Þeir voru orðnir frekar óhreinir. Við vorum næstum því of sein, því það var að koma frost. Við þvoðum líka bílinn, því ekki veitti af


Ég bakaði tvær uppskriftir af mömmukökum í dag. Ég var búin að baka eina uppskrift, en þær kökur kláruðust í dag. Ég ætla að baka eina uppskrift í viðbót, fyrir jól og tvær uppskriftir milli jóla og nýjárs. Þetta er það eina sem ég baka fyrir jólin og þær eru í MIKLU uppáhaldi hjá öllum hér á heimilinu og líka á fleiri heimilum emoticon
















Molinn kveður


19.12.2021 20:40

Fjórði sunnudagur í aðventu


Englakerti
Við kveikjum fjórum kertum á
brátt kemur gesturinn
og allar þjóðir þurfa að sjá
að það er frelsarinn


Tunglið í Staðarskarðinu í morgun

Sólargeislar í morgun









Himininn logar yfir Hlíðarfjalli


19. desember og nánast allt autt


Við fengum okkur sjónvarpsskenk, undir sjónvarpið í holinu





Molinn kveður


18.12.2021 19:26

Jólaundirbúningur


Jólasveinarnir komnir í stofugluggann


Við keyptum hillur í stofuna. Við ætlum að setja myndir á þessar hillur, en myndirnar fara ekki upp fyrr en eftir jól. Núna verður jólaskraut á þeim


Stofan er farin að líta betur út


Við ætlum að hafa sófana svona yfir jólin. Svo breytum við eftir jól


Þarna er hillan sem við settum upp í dag


Jóladúkurinn kominn á eldhúsborðið





Molinn kveður


17.12.2021 20:36

Besta ástundun í skák


Flotti gullmolinn okkar fékk viðurkenningu (bikar) fyrir bestu ástundun í skákinni. Þetta er í annað sinn sem hann fær þessa viðurkenningu. Hann er duglegur að mæta í skák og hefur gaman af því að tefla


Í dag var jólaball í skólanum. Þeir eru svo krúttlegir á þessari mynd emoticon



Svo flottir gullmolar


Ég held að við Þórður getum farið að vinna hjá Rúmfatalagernum, að setja saman húsgögn. Í dag settum við saman kommóðu

Sem við ætlum að hafa í forstofunni við aðalinnganginn

Bara flott kommóða





Molinn kveður


16.12.2021 21:19

Húsgögn


Við keyptum hillu handa Damian til að setja í herbergið hans

Hann setti hana saman

Hann kláraði að setja hana saman og raðaði öllum kubbabílunum, sem hann er búinn að setja saman, í hillurnar. Hann er snillingur í að setja saman kubba. Gerir það algjörlega sjálfur og þarf enga hjálp


Við keyptum líka skenk sem við verðum með undir sjónvarpinu í stofunni

Við settum hann saman og þá kom í ljós galli á annari skúffunni, þannig að við gátum ekki sett hana saman. Við verðum að fara á morgun og fá rétta hlið í skúffuna





Molinn kveður


15.12.2021 20:07

9 dagar til jóla


Fengitíminn gengur vel. Það eru ca. 5 dagar eftir af gangmálinu og eitthvað um 70 sem eiga eftir að fá skráningu. Líklegast hafa einhverjar farið framhjá okkur en það kemur í ljós eftir 5 daga hvað þær hafa verið margar


Gemlingarnir verða gæfari með degi hverjum emoticon


Við erum búin að kaupa leiðaskreytingu, til að setja hjá litla gullmolanum okkar, á aðfangadag


Kubbakarl. Þvílíkt sem hann getur leikið sér með kubba. Hann dýrkar þá emoticon


Og þessi segir að það séu 9 dagar til jóla. Hann er orðinn mjög spenntur





Molinn kveður


14.12.2021 19:22

10 dagar til jóla


Komið jólatré úti, við hinn innganginn. Það eru þá útijólatré við báða inngangana



Tekið í morgun


Möðruvallakirkja í morgun






Molinn kveður


13.12.2021 21:12

Jólaskraut

Ég setti jólaljós í 5 glugga í dag

Stofuglugginn, jólatréð, skrifstofuglugginn og eldhúsgluggarnir



Stofugluggarnir

Holið og stofugluggarnir







Molinn kveður


12.12.2021 19:28

Þriðji sunnudagur í aðventu


Hirðakerti
Við kveikjum þremur kertum á
því konungs beðið er,
þótt Jesús sjálfur jötu og strá
á jólum kysi sér


Gullin okkar þrjú, í fjárhúsunum í morgun

Nú er Sólveig farin suður. Hún er búin að vera hjá okkur í 9 daga. Við erum strax farin að sakna hennar. Það var svo gaman að fá hana hingað til okkar

Það er mikil vinátta á milli hennar og Týra. Hér eru þau að kveðjast emoticon


Það hefur bara varla komið snjór í vetur. Þessi mynd er tekin í dag





Molinn kveður




11.12.2021 20:57

Afmæli


Elsku fallegi strákurinn okkar er 13 ára í dag. Hann opnaði afmælispakkana og dreif sig svo með okkur í fjárhúsin. Hann eyddi svo deginum með mömmu sinni. Góður dagur hjá honum

Sæll og glaður


Fengitíminn gengur vel. Við erum búin að skrá niður rétt rúmlega helminginn af ánum. Gott að vera með dagsetningu á sauðburði emoticon





Molinn kveður


10.12.2021 20:15

Samrýmdar systur


Þær eru svo ótrúlegar þessar samrýmdu systur. Núna eru þær að ganga báðar. Í fyrra báru þær á sama sólahring og í vor báru þær líka á sama sólahring. Þær fara ekki langt frá hvor annari. Þetta eru þær 18-403 Læpa og 18-404 Læna. Alveg hreint ótrúlegar

Læpa og Læna


Þau máluðu piparkökur í dag og hlustuðu á jólasveinasögu


Hörgársveit


Möðruvallakirkja



Við erum búin að setja ljós á annað tréð sem okkur var gefið






Molinn kveður




clockhere

Nafn:

Birgitta Lúðvíksdóttir

Farsími:

820-7756

Afmælisdagur:

23. júlí, 1962

Heimilisfang:

Möðruvellir 3

Staðsetning:

Hörgársveit

Um:

Áhugamanneskja um sauðfjárrækt. Er með kindur á Möðruvöllum í Hörgársveit

Einar Breki, kom í heiminn

atburður liðinn í

12 ár

10 mánuði

13 daga

Haukur Nói, kom í heiminn

atburður liðinn í

10 ár

15 daga

Birgitta Ósk, kom í heiminn

atburður liðinn í

2 ár

6 mánuði

13 daga

Tenglar