Jæja nú er fjórði dagurinn búinn og einn eftir sem verður 26. nóvember.
Mikið sem það verður gott þegar þetta er búið
Við gerðum lítið annað í dag en að glápa og fylgjast með á netinu.
Kindurnar verða settar inn á morgun
Molinn kveður
Já við Þórður eyddum deginum í fósturforeldranámskeið.
Við gerðum lítið annað í dag en að hanga fyrir framan
tölvuna. Mikið verð ég fegin þegar þetta er búið. Fjórði
námskeiðsdagurinn verður á morgun
Ég rétt náði að fljúga og gá að kindunum, áður en myrkrið
skall á
Það er allt autt ennþá og kominn 3. nóvember. Þetta styttir
veturinn að hafa svona veður dag eftir dag
Við ætluðum að hafa þetta svona, en hættum við það
Já við ákváðum að setja upp skilrúmið. Það er svo erfitt að
ná kindunum í svona breiðum króm.
Það á að klippa féð á sunnudaginn. Kannski láta þessir
skeggjuðu, taka þetta skegg af sér í leiðinni
Flottir "feðgar"
Halloween hátíð í skólanum og þessir tilbúnir að mæta
Himininn í morgun. Listaverk nánast alla daga
Úti þvottadagur í dag. Við þvoðum gluggana að utan. Ekki
veitti af, því þeir voru orðnir mjög skítugir
Og vestur veggurinn var líka mjög skítugur. Sá skítur kom
þegar veðrið var brjálað um daginn
Við náðum að þrífa hann að mestu
Við héldum áfram með hitaþráðinn
Þórður að störfum. Hann náði að klára þetta
Grænn hitaþráður við vatnsrörið. Það ætti allavega ekki að
frjósa undir gólfinu, í vetur
Þráðurinn kominn í samband og byrjaður að hita vatnsrörið
Þessi gullmoli er pabbi minn og hann á afmæli í dag. Til
hamingju með afmælið elsku pabbi
Megnið af deginum eyddum við í fjárhúsunum
Við vorum að setja hitaþráð við vatnslögnina sem liggur
undir gólfinu. Við þurftum að taka grindurnar upp til að
komast að vatnslögninni
Við verðum með færri kindur í vetur og erum að reyna að
varna því að vatnið frjósi
Þetta gekk alveg þokkalega vel. Við kláruðum ekki alveg, en
klárum á morgun
Þetta merki kemur á götuna, þegar maður kemur að bílnum
í myrkri. Lýsir upp götuna Ford mustang
Hvammshlíðardagatalið er komið í hús. Karólína er engum
lík. Hún er snillingur í öllu. Ég mæli með þessu flotta
dagatali
Það er svo margt fróðlegt sem kemur fram í þessu dagatali
Hún er virkilega vel að þessum hvatningarverðlaunum komin
Staðarhnjúkur
Í morgun
Í kvöld
Við tókum sýni úr ásetningslömbunum. Við tökum svo sýni
úr ánum þegar þær eru komnar á hús
Stararnir komu í garðinn í dag. Þeir voru eitthvað um 20
saman
Þetta er fallegur fugl
Yfirlitsflug í dag og þessar ekki langt frá hvor annari. Þær eru
flottar saman. Þær fá að vera saman í kró í vetur
Nokkrar á hólnum
Fallegt veður dag eftir dag
Það sést vel inn í Staðarskarðið
Kindurnar eru enn úti. Við fórum með brauð til þeirra og
þær þáðu það með þökkum
Búbba með brauðsneið
Þær verða úti eitthvað lengur
Gemlingarnir okkar
Ásetningur ´22-´23
Árgangur ´13 - 1 ær
Árgangur ´15 - 10 ær
Árgangur ´16 - 14 ær
Árgangur ´17 - 25 ær
Árgangur ´18 - 30 ær
Árgangur ´19 - 19 ær
Árgangur ´20 - 24 ær
Árgangur ´21 - 8 ær
Árgangur ´22 - 17 gemlingar
Hrútar 11
Sauðir 6
Smálömb 7
Samtals 172 hausar í vetur
Það eru nokkrar ær, sem hefðu átt að fara í sláturhús,
en björguðu sér með því að koma með lamb/lömb í
sumar/haust
Við ætlum svo að sjá til með gemlingana hvort við
hleypum til þeirra allra eða sleppum nokkrum
Við settum upp skilrúm í syðsta húsinu. Við vorum að hugsa
um að sleppa því að setja það upp, en ákváðum að það væri
betra að hafa það
Við tókum til úti, við fjárhúsin, íbúðarhúsið og refaskálann,
í gær. Við fórum með fulla kerru af rusli, í morgun, í Terra
Akureyri. Gott að hreinsa svona til áður en snjórinn kemur
Ég flaug drónanum yfir kindurnar. Það var alveg merkilegt
að sjá þessar tvær vera saman, eða þannig. Þær eru alltaf
saman þessar flottu systur
Staðarhnjúkur og Staðarskarð
Hörgáin
Möðruvellir 3, 4 og 5
Fallegt veður bæði á morgnana og kvöldin. Þessi er tekin í
morgun
Og þessi seinni partinn
Tunglið í dag. Ég held að ég hafi aldrei séð það svona lítið
Stari, vinur okkar
Við settum fullorðinsmerkin í öll lömbin, í dag. Gorma
Haddý
Ágústa og litlu lömbin fengu líka merki
Tekið úr fjallshólfinu
Kindurnar á beit í kálinu
Þær nota þennan hól mikið
Elíza og samrýmdu systurnar, Læpa og Læna. Þær eru alltaf
Já, há, það hvellsprakk á bílnum. Það er nú ekki oft sem dekk
springur nú til dags. (Skeði oft í gamla daga) Ég var á bílnum,
náði ekki að losa varadekkið (það er undir bílnum). Það var
fast og ekki hægt að losa það. Enginn tjakkur og lykill í bílnum.
Eða ég veit ekki hvar það er. Leitaði mikið. Ég hringdi í vin (Þórð)
og hann kom með tjakk og lykil. Við tókum dekkið undan og
fórum með það á verkstæði, ásamt einu nagladekki.
Nagladekkið var sett á felguna og núna er bíllinn á þremur
sumardekkjum og einu vetrardekki. Næsta skref, hvernig
losar maður varadekkið og hvar er tjakkurinn og felgulykillinn
í bílnum. Við verðum að komast að því
Jæja þessi snjósleði er okkar. Við erum að kaupa hann. Það
verður gaman að draga strákana á skíðum/bretti í vetur
Geggjað verður að eiga sleða
Nafn:
Farsími:
Tölvupóstfang:
Afmælisdagur:
Heimilisfang:
Staðsetning:
Um:
Einar Breki, kom í heiminn
atburður liðinn í
12 ár
10 mánuði
13 daga
Haukur Nói, kom í heiminn
10 ár
15 daga
Birgitta Ósk, kom í heiminn
2 ár
6 mánuði
Eldra efni
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is