Þetta er síðan hennar Birgittu Lúðvíks.


Flettingar í dag: 1455
Gestir í dag: 79
Flettingar í gær: 631
Gestir í gær: 50
Samtals flettingar: 1158457
Samtals gestir: 63389
Tölur uppfærðar: 27.7.2024 08:40:20

24.03.2022 19:01

Fuglarnir í garðinum okkar

Krummi fékk smá mat

Það eru búnir að vera tveir til þrír hrafnar hér í vetur

Við höfum verið dugleg að gefa þeim afgangs mat

Það eru nokkrir dagar síðan Starinn kom. Þeir voru 15 hér í 

dag

 

Franskar kartöflur og sósa

Flottur fugl

 

 

Það eru nokkrir dagar síðan skógarþrösturinn kom

Hann er bara einn

Auðnutittlingurinn er búinn að vera hér í allan vetur

Þeir voru uppundir tíu hér í garðinum í dag

 

Það er ekki mikill snjór

Og enn er tjörn á túninu. Strákarnir léku sér þar í dag

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

23.03.2022 17:26

Útivistardagur Þelamerkurskóla

Í dag var útivistardagur Þelamerkurskóla, í Hlíðarfjalli

Flottir vinir sem tóku þátt í deginum

Damian í góðum gír, í fjallinu

Og Alexander líka í góðum gír

Veðrið var svakalega gott. Við vorum svo heppin smiley

Alexander fór margar ferðir í stólalyftuna. Bæði með

einhverjum og svo aleinn. Svakalega duglegur heart

Þarna kemur hann niður brekkuna með einum starfsmanni 

skólans

Ég er svo stolt af strákunum okkar

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

22.03.2022 18:58

Skíðaskóli, dagur 2

Skíðaskóli, dagur 2. Hefði átt að vera dagur 4, ef það hefði 

ekki verið lokað í fjallinu þá daga

Minn maður braut ísinn og fór í stólalyftuna. Ég er svo stolt 

af honum. Núna geta þeir bræður farið saman í stólalyftuna heart

Fyrsta ferðin

Og svo er brunað niður. Hann var svo ánægður með daginn

 

Svona var skyggnið annað slagið. Þoka 

Og svo var bjart nokkrum mínútum síðar

 

Krakkarnir stóðu sig svakalega vel. Mikil framför á þessum 

tveim dögum. Svo er útivistardagur á morgun og þá fara 

allir úr skólanum, í fjallið

 

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

21.03.2022 16:45

Bleyta

Þessa mynd tók ég í morgun. Komin sæmileg tjörn

 

Auðvitað þurfti að brjóta klakann sem kominn var á tjörnina

Og að sulla í leiðinni

 

Týri missir ekki af neinu. Hann vill vera með í öllu

 

 

Rennandi blautir bræður

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

20.03.2022 17:59

Allt á floti

Þessa mynd tók ég í gær, 19. mars

Og þessa mynd tók ég í morgun 20. mars

Eins með þessa, tekin í gær

Og þessi tekin í morgun

 

Það er gjörsamlega allt á floti

Bílastæðið er einn vatnsflaumur

Vatnselgur

Það var ekki hægt að fara á skóm á milli íbúðarhúss og

bílskúrs. Bara stígvélafæri

Já allt á floti

Fyrir ofan íbúðarhúsið

 

Svo er komin svakaleg tjörn á túninu fyrir neðan íbúðarhúsið

 

Meðfram veginum. Svakalega mikil

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

19.03.2022 18:59

Snjókoma, rigning og rok

Það snjóaði í morgun, en fór svo að rigna

 

Það var lélegt skyggni á tímabili

Möðruvallakirkja

 

Átta starar í garðinum hjá okkur

 

Þeir eru farnir að undirbúa sig með hreiðrin í fjárhúsunum.

Þeir eru búnir að verpa þar í nokkur ár. Gaman að fylgjast 

með þeim

 

Þessir komu í ljós, þegar heyrúllurnar voru teknar inn

 

Lífið í fjárhúsunum eftir morgungjöf

Fullorðnu hrútarnir orðnir búttaðir

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

18.03.2022 19:00

Rafmagnsbíll

Við vorum að kaupa okkur rafmagnsbíl. Ford mustang,

Mach-E LR AWD 100% rafbíll

Glæsilegur bíll

 

 

 

Skrítið veður í morgun. Sól og skafrenningur

Á leiðinni í skólann. Snjókoma, skafrenningur og sól

 

Ég grillaði ekki í dag smiley

 

Við hjónin keyptum okkur svona húfur með bæjarnúmerinu

 laugh smiley

 

Puttarnir mínir á hægri hendi, þola ekkert álag. Það opnast

æðar inní þeim við hið minsta. Ég held að þetta sé liðagigt

Puttarnir eru bláir í nokkra daga eftir blæðingu

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

17.03.2022 18:08

Útför Öllu

Elsku móðursystir mín, hún Alla

 

Í dag kvöddum við í hinsta sinn, frænku mína, hana Öllu

Við horfðum á útförina í streymi

 

Falleg athöfn heart

Mamma er ein af 7 systrum. Hér eru þær ásamt foreldrum 

sínum (ömmu og afa)

Fallegar og samrýmdar systur. Já mjög samrýmdar. Ég held 

að ég hafi aldrei vitað um svona samrýmdar systur. Þær eru

fjórar farnar í sumarlandið og  þrjár eru á lífi. Mamma er yngst.

Efriröð frá vinstri:

Alla, Palla, Bibba, Fríða og Ása

Neðriröð frá vinstri:

Lilla (mamma) og Ninna

Blessuð sé minning ykkar elsku Alla, Palla, Bibba og Ninna heart

 

Veðrið í dag er búið að vera vetrarveður

Mjög hvasst og snjókoma/skafrenningur

Auðnutittlingar við stofugluggann

 

 

 
 

 

Molinn kveður

 

16.03.2022 18:58

Skíðaskólinn, dagur eitt

Skíðaskóli hjá 1. - 4. bekk í Þelamerkurskóla, í Hlíðarfjalli.

Í gær átti að vera skíðaskóli, dagur eitt, en fjallið var lokað.

Dagur eitt var í dag. 

Alexander í græna hópnum

Góður dagur í fjallinu

 

Þetta er sjöunda árið sem ég tek þátt í skíðaskólanum. 

Þelamerkurskóli býður krökkunum í 1. - 4. bekk skíðakennslu

í fjóra daga. Í framhaldi af þeim dögum, þá er útivistardagur

og þá fara allir nemendur og starfsmenn skólans í fjallið. 

Algjör snilld hjá flottum skóla smiley

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

15.03.2022 18:50

28. apríl

Sauðburður byrjar 28. apríl

Það eru 18 ær sem eiga tal þann dag:

5 þrílembur

11 tvílembur og 

2 einlembur

 

Svo 29. apríl eiga 9 ær tal:

1 fjórlemba

3 þrílembur 

3 tvílembur  (þar af einn gemlingur)  

2 einlembur

 

Og 30. apríl eiga 14 ær tal:

1 fjórlemba

3 þrílembur

8 tvílembur  (þar af einn gemlingur)

2 einlembur

 

Það eru þá 41 ær sem eiga tal fyrstu þrjá dagana og 

koma með 91 lömb

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

 

14.03.2022 20:09

Tveggja mánaða gullmoli

Þessi fallegi gullmoli er tveggja mánaða 

í dag. Það sem tíminn er fljótur að líða

Fallega, fallega ömmu og afa gull

Hún er brosmild og falleg

 

Fallegt í morgun

 

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

13.03.2022 18:18

Vor í lofti

Sólin er farin að hita vel upp. Þó það sé bara um eitt stig í 

hita, þá er mikil sólbráð

Það er ekkert svo mikill snjór hér. Ég held bara að vorið sé 

komið, já eða er að koma smiley

 

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

12.03.2022 19:22

Grillið tekið út

Nú er grillið komið út og þá er það auðvitað notað

Hamborgari með beikoni

Að elda úti og losna við allt sull inni, er snilld smiley

Alveg geggjaður matur

 

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

11.03.2022 17:33

Þær eru mættar

Þessar mættu í dag

Nú er stutt í vorið

 

 

Já það var vorfílingur í okkur í dag

Hitinn fór í tveggjastafatölu smiley Rétt yfir 10 stig 

Snjórinn fyrir ofan íbúðarhúsið er að bráðna og þá kemur 

flóð milli bílskúrs og íbúðarhúss

 

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

10.03.2022 19:05

Að flokka kindur

Við kláruðum að flokka þrí-og fjórlemburnar 

í morgun. Nú eru þær allar í þessari kró, 

nema ein fjórlemba sem við erum með hjá

gemlingunum. Hún hefur það gott þar

 

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

 



clockhere

Nafn:

Birgitta Lúðvíksdóttir

Farsími:

820-7756

Afmælisdagur:

23. júlí, 1962

Heimilisfang:

Möðruvellir 3

Staðsetning:

Hörgársveit

Um:

Áhugamanneskja um sauðfjárrækt. Er með kindur á Möðruvöllum í Hörgársveit

Einar Breki, kom í heiminn

atburður liðinn í

12 ár

10 mánuði

13 daga

Haukur Nói, kom í heiminn

atburður liðinn í

10 ár

15 daga

Birgitta Ósk, kom í heiminn

atburður liðinn í

2 ár

6 mánuði

13 daga

Tenglar