Þetta er síðan hennar Birgittu Lúðvíks.


Flettingar í dag: 506
Gestir í dag: 4
Flettingar í gær: 1101
Gestir í gær: 5
Samtals flettingar: 2766756
Samtals gestir: 92527
Tölur uppfærðar: 9.11.2025 10:19:46

29.10.2024 19:13

Myndaspjöldin komin á vegginn

Við settum myndirnar af kindunum/ásetningnum í vetur, á

vegginn í fjárhúsunum

Gaman að hafa myndir af öllun kindunum

Ég tók myndirnar og Þórður bjó til spjöldin

 

Þórður að hefta spjöldin upp á vegg

Hann bjó til þessi spjöld líka. Upplýsingar um hverja kind

Það er líka gott að hafa þetta upp á vegg í fjárhúsunum

 

Algjör snilld

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

28.10.2024 18:58

9 í heimili þessa daga

Einar Breki að keyra vinnubílinn. Hann stóð sig vel í akstrinum

Ömmugullmolarnir mínir heart

Fjórir fóru í skólann í morgun og þrjú fóru með okkur í

fjárhúsin

 

Maxímus og nafna

Maxímus er gæfur og vill láta klappa sér

Útivera í rigningunni. Þeir eru í boltaleiknum yfir

Nafna mín að sulla í vatni

Yfir

 

Allir blautir og glaðir

Og kakó í kaffitímanum. Það þarf að vera nóg að gera hjá

þeim þessum heart

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

27.10.2024 19:12

Fjörið er hér

Við erum rík þessa dagana. Þrír ömmu og afa gullmolar

bættust í hópinn okkar í nokkra daga heart

Og nóg að gera í eldhúsinu, en bara gaman. Fjárhúsferðir,

og sundferðir, já og út að leika þessa dagana.

Þetta gengur ótrúlega vel heart

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

26.10.2024 15:29

Vinnufólkið okkar

Við erum með hjálp í fjárhúsunum þessa dagana. Það vantar

tvo í hópinn

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

25.10.2024 13:33

Fallegt í morgun

Svona var himininn í morgun

Systkinin að knúsast

Nafna mín dugleg að hjálpa til í fjárhúsunum. Hér er hún

að brynna litlu lömbunum

Og sópa

Við látum ærnar út á daginn og svo aftur inn seinnipartinn

23-052 Persía og 23-030 Þáma

23-050 Baddý

23-032 Floxý

23-045 Anímóa

24-068 Sissa

24-082 Arða

 

24-059 Fregn

Aðeins að kíkja á mig

 

 

 
 

 

Molinn kveður

 

 

24.10.2024 18:08

Ömmu og afa gullmolar

Þessi mynd er tekin í morgun

Tveir ömmu og afa gullmolar mættir í hús og ætla að vera

hér í nokkra daga heart

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

23.10.2024 16:26

Bleikur dagur

Strákarnir okkar taka þátt í bleika deginum

Við tókum sumrungana undan ánum í dag. Þeir eru orðnir

nógu stórir til að bjarga sér. Þeir eru komnir í smálamba

hópinn

Við tókum ærnar inn um daginn, en við settum þær svo aftur

út. Það var svo gott veður. Við settum þær inn í dag og ætlum

að setja þær út á daginn ef veðrið verður gott. Þá fá þær hey

inni, en ekki úti

Þær voru ánægðar að koma inn og tættu í sig tugguna

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

22.10.2024 16:05

Sumrungarnir okkar

Sumrungar undan 23-726 Pixa

24-121 Alex, undan 16-285 Brók. Hann fæddist 9. júlí. Hann

er með arfgerðina R171. Hann var 31 kg. 12. október.

Mynd tekin 6. október

24-083 Alexía. Hún er á móti Alex. Hún var 28 kg. 12. október.

Hún er hlutlaus.

Mynd tekin 11. október

24-084 Dagga, undan 18-397 Dáfríð. Hún fæddist 14. júlí.

Hún er með arfgerðina R171. Hún var 29 kg. 12. október

Mynd tekin 30. september

24-085 Dalla. Hún er á móti Döggu. Hún var 34 kg. 12. október.

Hún er með H154.

Mynd tekin 30. september

24-122 Láki, undan 19-463 Linsu. Hann fæddist 19. júlí.

Hann er með arfgerðina R171. Hann var 33 kg. 12. október.

Mynd tekin 7. október

24-123 Lási. Hann er á móti Láka. Hann var 28 kg. 12. október.

Hann er hlutlaus.

Mynd tekin 7. október

24-086 Glóý, undan 20-522 Glósu. Hún fæddist 3. ágúst.

Hún er með arfgerðina R171. Hún var 33 kg. 12. október.

Mynd tekin 6. október

24-124 Golli, undan 22-011 Glás. Hann fæddist 5. ágúst.

Hann er hlutlaus. Hann var 26 kg. 12. október.

Mynd tekin 9. október

24-087 Gul. Hún er á móti Golla. Hún var 21 kg. 12. október.

Hún er hlutlaus.

Mynd tekin 9. október

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

21.10.2024 16:10

Vinnufólkið okkar

Við vorum með flott vinnufólk í fjárhúsunum í morgun. Frí

í skólum og leikskóla. Við erum með börn í þremur skólum.

VMA, Hlíðarskóla og Þelamerkurskóla. Nafna mín er í 

leikskóla sem var líka í fríi. Flottur hópur

2 ára, 8 ára, 11 að verða 12 ára, 14 ára og

15 að verða 16 ára

Svo voru drullupollarnir nýttir vel

 

Sullum drull og drullum sull

Ég fékk hjálp við að gefa

Nafna mín

Gullmolarnir mínir

Þessi flotti ömmugullmoli er búinn að ná ömmu sinni í hæð.

Bara 13 ára heart

Hann er meira en gullmoli, hann er gull í gegn

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 
 

20.10.2024 13:52

Hrútarnir okkar

23-720 Valver  M:21-009 Valía  F:22-712 Króli

T137

23-727 Maxímus   Forystuhrútur

N138

24-731 Galsi  M:22-014 Gáta  F:23-726 Pixi

R171

24-732 Völlur  M:21-009 Valía  F:23-722 Brútus

T137

24-733 Púki  M:21-001 París  F:23-721 Fastus

T137 og N138

24-734 Garpur  M:22-012 Gorma  F:23-725 Dúddi

R171

24-735 Fenox  M:20-496 Fnjósk  F:23-724 Arró

R171

24-736 Lúði  M:23-053 Lúpína  F:23-723 Ratipong

T137/T137

24-737 Þytur  M:19-474 Þeba  F:23-724 Arró

R171

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

 

19.10.2024 12:47

Rúningur

Unnar á Þúfnavöllum kom og klippti veturgömlu ærnar,

gimbrarnar og hrútana. Hér eru þær veturgömlu

Og gimbrarnar

Þær systur 24-076 Rist og 24-077 Renta

 

Það gekk hratt og vel að klippa. Þau komu bara vel undan

ullinni, enda erum við búin að gefa rúllur út í nokkurn tíma

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

18.10.2024 09:49

N138, H154 og C151 gimbrar

24-054 Egedía. Hún er undan 18-409 Elízu og

23-727 Maxímus. Hún er með arfgerðina N138. Hún er

tvílembingur og var 46 kg. 12. október. Hrúturinn á móti

henni var 43 kg. 28. september. Þetta er forystugimbur

24-059 Fregn. Hún er undan 23-032 Floxý og 23-723 Ratipong.

Hún er einlembingur og var 55 kg. 12. október. Hún er með

arfgerðina C151 

24-062 Kilja. Hún er undan 22-021 Kotru og 23-721 Fastusi.

Hún er arfhrein H154. Hún er tvílembingur og var 52 kg. 

12. október. Gimbrin á móti henni var 54 kg. 8. október

24-065 Ársól. Hún er undan 22-109 Ágústu og 23-722 Brútusi.

Hún er með arfgerðina C151. Hún er einlembingur, en móðir

hennar dó frá henni þegar hún var mánaðargömul. Hún var

51 kg. 12. október. Hún bjargaði sér vel, móðurlaus

 

Nú eru allar ásetnings gimbrarnar komnar í þrjú blogg. 

Smá/sumar lömbin eftir

 

Það á að klippa lömbin, hrútana og veturgömlu á morgun.

 

Við rákum nær allar inn, og ætlum bara að gefa þeim inni, í

staðin fyrir að gefa út

Við ætlum að hýsa þær í nótt. Við förum nú að taka þær 

inn líka. Miklu betra að gefa inni, en úti

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 
 
 

17.10.2024 12:13

T137 gimbrar

24-057 Kempa. Hún er undan 21-002 Krúellu og

23-721 Fastusi. Hún er með arfgerðina T137. Hún er

þrílembingur, en gekk tvö undir. Hún var 49 kg. 28. september

og hrúturinn á móti var 53 kg. sama dag

24-060 Mæja. Hún er undan 16-287 Mollu og Fastusi. Hún

er með arfgerðina T137. Hún er tvílembingur og var 51 kg.

8. október. Hrúturinn á móti henni var 56 kg. 28. september

24-061 Kara. Hún er undan 22-021 Kotru og Fastusi. Hún er

með arfgerðina T137. Hún er tvílembingur og var 54 kg. 

8. október. Gimbrin á móti henni var 52 kg. 12. október

24-063 Hneta. Hún er undan 18-439 Hildu og 23-722 Brútusi.

Hún er tvílembingur og var 53 kg. 12. október og hrúturinn 

á móti henni var 59 kg. 28. september. Hún er með arfgerðina

T137

24-064 Náð. Hún er undan 17-336 Natalíu og Fastusi. Hún 

er með arfgerðina T137. Hún er tvílembingur og var 48 kg.

12. október. Gimbrin á móti henni var 43 kg. 28. september

24-068 Sissa. Hún er undan 17-330 Stássu og 23-720 Valver.

Hún er með arfgerðina T137. Hún er tvílembingur og var

52 kg. 12. október. Hrúturinn á móti henni var 51 kg.

28. september 

24-075 Valka. Hún er undan 22-013 Vanadís og

23-723 Ratipong. Hún er með arfgerðina T137 og N138. Hún

er tvílembingur og var 44 kg. 8. október. Hrúturinn á móti

henni var 47 kg. 28. september

24-076 Rist. Hún er undan 15-244 Ræmu og Valver. Hún er

með arfgerðina T137. Hún er tvílembingur og var 44 kg. 

12. október. Systir hennar er á næstu mynd 

24-077 Renta. Hún er á móti Rist. Hún er líka með arfgerðina

T137.  Hún var 45 kg. 12. október

24-079 Gló. Hún er undan 23-046 Glöð og Ratipong. Hún er

arfhrein T137. Hún er einlembingur og var 45 kg. 8. október

24-080 Viska. Hún er undan 23-029 Valný og Ratipong. Hún

er arfhrein T137. Hún er einlembingur og var 43 kg. 12. október

 

Ég náði þessum myndum í gærkvöld

 

 

 

 

Hér er fult tungl í kvöld

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

16.10.2024 13:52

ARR gimbrar

24-058 Krús. Hún er undan 22-019 Krukku og 23-726 Pixa.

Hún er með arfgerðina R171. Hún er fjórlembingur og gekk

3 undir. Hún var 47 kg. 12. október. Lömbin á móti henni

voru 38 og 44 kg.

24-066 Ferja. Hún er undan 17-376 Fóu og 23-724 Arró. 

Hún er með arfgerðina R171 og H154. Hún er tvílembingur.

Hún var 48 kg. 12. október

24-067 Flóra. Hún er systir Ferju og er líka með arfgerðina

R171 og H154. Hún var 46 kg. 12. október

24-069 Hátíð. Hún er undan 23-049 Heklu og Pixa. Hún er 

með arfgerðina R171 og N138. Hún var 46 kg. 12 október.

Hún er tvílembingur undan gemling og Hekla gekk með þau

bæði. Gimbrin á móti var 46 kg. 28. september

24-071 Rúða. Hún er undan 20-515 Rúbý og 23-725 Dúdda.

Hún er með arfgerðina R171. Hún er einlembingur, en gekk

tvö undir. Hún var 50 kg. 12. október. Við vöndum hrút undir

Rúbý sem var 55 kg. 28. september

24-072 Þyrla. Hún er undan 17-355 Þín og Arró. Hún er með

arfgerðina R171. Hún er tvílembingur og var 49 kg. 12. október.

Gimbrin á móti var 47 kg. 28. september

24-074 Gátt. Hún er undan 23-048 Glettu og Pixa. Hún er 

arfhrein R171. Það þurfti að lóga móður hennar og við

vöndum Gátt og systir hennar undir 17-323 Ingileif. Ingileif

gekk með þrjú lömb. Gátt var 44 kg. 12. október. Lömbin á

móti henni voru 37 og 46 kg. 28. september

24-078 Þöll. Hún er undan 18-422 Þrýstin og Arró. Hún er 

með arfgerðina R171. Hún er tvílembingur og var 45 kg. 

12. október. Hrútur á móti henni var 52 kg. 28. september

24-082 Arða. Hún er undan 23-045 Anímóu og Pixa. Hún er

með arfgerðina R171 og H154. Hún var 47 kg. 12. október.

Hún er tvílembingur undan gemling og hrúturinn á móti 

henni var 51 kg. 28. september. Anímóa gekk með þau bæði

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

15.10.2024 17:01

Nafna mín í heimsókn

Þessi ömmu og afa gullmoli kom í morgun og ætlar að gista

eina nótt hjá okkur. Hún fór í fjárhúsin og hafði gaman að

því

Hún hjálpaði ömmu að sópa

Flott vinnukona heart

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 



clockhere

Nafn:

Birgitta Lúðvíksdóttir

Farsími:

820-7756

Afmælisdagur:

23. júlí, 1962

Heimilisfang:

Möðruvellir 3

Staðsetning:

Hörgársveit

Um:

Áhugamanneskja um sauðfjárrækt. Er með kindur á Möðruvöllum í Hörgársveit

Einar Breki, kom í heiminn

atburður liðinn í

14 ár

1 mánuð

25 daga

Haukur Nói, kom í heiminn

atburður liðinn í

11 ár

3 mánuði

28 daga

Birgitta Ósk, kom í heiminn

atburður liðinn í

3 ár

9 mánuði

26 daga

Tenglar

Eldra efni