Strákarnir byrjaðir í skóla og þá er það ég sem þarf að ganga
frá endum og merkja rúllurnar sem rúllaðar voru í gær
Þetta var fljótlegt
Þórður stóð sig vel í þessum heyskap í sumar. Ég bjóst að
vísu ekki við öðru
Þarna eru síðustu rúllurnar komnar á vagninn
Og síðasta stæðan klár
TÖÐUGJÖLD. Já heyskap lokið þetta árið
Molinn kveður
Stykki 8 slegið 26. ágúst. Snúið tvisvar og rúllað 29. ágúst,
17 rúllur
Stykki 6 og 7, slegin 27. ágúst. Ekkert snúið. Rúllað 29. ágúst,
18 rúllur á stykki 6 og 9 rúllur á stykki 7
Alls erum við búin að heyja 293 rúllur í sumar
Fyrningar eru 15 rúllur, þá eru alls 308 rúllur til hér
Guðmundur á Þúfnavöllum að rúlla niður á engi
Flott og spræk lömb
Og þessi líka flott og spræk
Töðugjöld á morgun
Við fórum á Hjalteyri í dag og eyddum smá tíma í fjörunni
Svakalega flottur staður
Ég sá dílaskarf
Ég held að þetta sé líka dílaskarfur
Já og þessi
Og ég sá líka himbrima
Þessi flaug yfir. Líklegast að koma frá Grímsey
Þórður sló á enginu í dag
Þarna er hann að slá stykki 7
Og þetta er stykki 6. Hann sló það líka
Hörgársveit
Möðruvellir
Tveir að raka
Og tvö að leika sér
Í morgun var héla á bílunum
Og héla yfir allt túnið
Það var frosið vatnið í hjólbörunum
Klaki. Það er spáð góðu veðri næstu daga. Líklegast verður
rúllað á mánudaginn
Þórður sló restina af heimatúnunum (stykki 8)
Stykki 8. Já restin hér heima. Svo á eftir að heyja niður á
engi
Þórður að snúa. Svo er bara spurning hvort þetta verður
rúllað á morgun eða sunnudaginn
Að bíða eftir skólarútunni. Drónamynd
Fjórir krakkar héðan frá Möðruvöllum að fara í skólann
Ég flaug til að athuga með lömbin
Þau hafa það gott og eru spræk
Frumraun í að baka pitsusnúða
Ég held að það hafi bara tekist sæmilega. Þeir allavega eru
borðaðir
Við keyptum frisbígolf handa strákunum. Hér eru þeir að
setja þetta saman
Komið út í garð
Og þeir farnir að spila. Vonandi nota þeir þetta eitthvað
Ég ákvað að baka muffins. Ein uppskrift endist rétt rúmlega
kaffitímann
Svakalega góðar og borðast vel
Ég flaug drónanum suðureftir til að kíkja á lambféð. Þeir
eru flottir og vel sprækir
Og þau eru flott og vel spræk. Þau eru farin að bíta gras
Þessi fer að verða mánaðargömul
Ég flaug drónanum til að athuga með Mýslu. Ég sagði í gær
að hún yrði borin innan þriggja daga. Hún er þarna á þessari
mynd byrjuð að bera
Við ákváðum að taka hana heim í fjárhús og láta hana bera
þar. Hún fékk nefnilega ekki frið fyrir hrútum (heimalingum),
sem eltu hana um allt
Hún bar tveimur hrútum og það gekk vel
Við fórum svo með hana aftur suður á tún. Lömbin eru stór
og spræk
Þessir hrútar (heimalingar) eru pínu að bögga hana. Hún er
nú dugleg að stanga þá frá
Þétt bar 27. júlí
Og Fleyta bar 9. ágúst
Strákarnir að bíða eftir skólarútunni. Fyrsti skóladagurinn
Nú er hægt að fljúga drónanum. Spóinn og tjaldurinn farnir
með ungana, já eða ungarnir orðnir stórir. Þeir hafa verið svo
pirraðir út í drónann þegar ég hef flogið honum, þegar unga
tímabilið er. Ég hef tekið pásu í flugi, í nánast tvo mánuði yfir
sumarið. En já nú get ég flogið. Ég er búin að fylgjast með
þessari í dag. Hún er komin að burði. Hún verður borin innan
þriggja daga
Litlu lömbin hafa það gott. Nota hitann frá mömmu sinni
Algjör krútt
14-184 Dyrgja með hrút undan 18-593 Hamri
Embla með hrútana sína.
Gráa og flekkótta gimbrarnar eru móðurlausar. Þær eru
undan 14-256 Skrítlu og 20-607 Dúa. Þær voru bara
mánaðargamlar þegar Skrítla drapst. Við létum þær eiga sig
og þær hafa bara spjarað sig vel
Fallegar systur
Ég flaug um allt
Möðruvellir 3
Ég tók þessa mynd í gærkvöld. Tunglið er lítið núna
Þessa mynd tók ég í gær eftir hádegi. Það sést aðeins glitta
í tunglið
Þessi smyrill kom í heimsókn í morgun. Ég stökk út til að
mynda. Hann var rólegur. Þegar ég var búin að smella
nokkrum myndum af honum þá flaug hann. Þegar hann var
kominn í loftið, þá var annar smyrill sem hóf sig á loft. Það
var þá annar fugl sem ég sá ekki fyrr en hann flaug burt
Gaman að fá að mynda þennan fugl
Svo var ég svo heppin að ná að mynda þennan krossnef.
Ég fór í Kjarnaskóg með strákana og fékk mér göngutúr um
skóginn og sá þá þennan fugl
Ég hef aldrei séð hann, nema á myndum
Mér finnst ég vera mjög heppin að hafa séð hann
Gönguleiðin um skóginn
Þessi flaug yfir
Tunglið í dag
Við fórum og gáfum kindunum brauð og kíkkuðum á lömbin
Þessi litlu eru svo spræk. Þau koma til okkar og vilja klapp
Þrjár stærðir af lömbum
Svo falleg. Gaman að fara til þeirra og knúsa þau
Fá sér smá sopa
þessi er að flýta sér að stækka
Lúlli Laukur heimalingur
Pála Púrra heimalingur
Jóna Jarðaber heimalingur
Emma epli heimalingur
13-115 Embla með hrúta undan 18-591 Vita
Hrútarnir undan Emblu og Vita
17-362 Klippa og 15-212 Dúna. Þær eru geldar og hafðar
heima ef þeim hefði dottið í hug að koma með lömb í sumar
Hnikar
Brúsi og Kaldi
Kaldi, Lási og Hnikar
Tandri
Brúsi
Jalli
Viti
Hér eru nokkrar kindur og lömb. Myndir teknar í vor og svo
fyrir stuttu
Litfríð
Lömbin hennar Veru
Pysja
Hugljúf
Muska
Við fórum til að athuga hvort við sæum eitthvað af kindunum
okkar. Við gengum upp ganginn og upp að girðingu. Við sáum
nokkrar kindur frá okkur
20-522 Glósa með gimbur (þessi svarta) undan 21-704 Tandra.
Glósa var fimmlembd. Hún er líka með hrút (þrílembing) undan
18-434 Kingu og 20-605 Bæron. Hún var svo langt frá okkur
að það var ekkert hægt að láta hana sýna okkur lömbin. Þau
liggja bara þarna á bakvið hana
14-144 Kista með tvær gimbrar undan 21-701 Brúsa.
Það var eins með Kistu. Hún var svo langt frá okkur að það
var ekki hægt að taka betri myndir
20-518 Sæla með hrút og gimbur undan 21-704 Tandra
15-193 Hugljúf með hrúta undan 19-597 Ótta
20-500 Muska með hrút undan 21-704 Tandra og hrút undan
17-314 Slettu og 21-705 Kalda
17-325 Litfríð með hrút og gimbur undan 21-703 Jalla
Svo sáum við þennan fugl á veginum, rétt við Mela. Þessi
dúfa er ómerkt. Ég þurfti að negla niður svo ég mundi ekki
keyra á hana
Flottur fugl
Við fórum á Dalvík, að horfa á ömmu og afa gullmola spila
fótbolta með KA
Flottur strákur
Aðdragandi að marki. Hér rekur hann boltann sem endar í
marki
Hann er þarna með boltann
Og enn er hann með boltann
Markmaðurinn ætlar að ná boltanum
En það tókst ekki. Boltinn endaði í marki. FLOTTUR
Við fórum með guttana í fjöruna á Dalvík. Þeir eyddu
dágóðum tíma þar
Ég fór í morgun að kíkja á þessi. Þau eru svo mikil krútt. Þau
eru að byrja að stækka. Þeim líður vel og eru spræk
Þessi er líka vel spræk og stækkar vel
Jæja nú er þessi að fara að bera. Hún verður borin eftir
ca. 7 daga, mundi ég halda. Það verður spennandi að sjá
hvað hún kemur með
Við fórum í girðingarvinnu í morgun
Settum upp þetta hlið. Nú er girðingin (sem við breyttum)
orðin klár. Nú þurfum við ekki að taka hana niður og setja
upp tvisvar á ári. Þessi fær að standa
Maríuerluungi
Nú styttist í göngur og réttir. Göngurnar verða 10. september.
Hlakka til að fá kindurnar heim. Þessi mynd er tekin í fyrra í
réttunum
Nafn:
Farsími:
Tölvupóstfang:
Afmælisdagur:
Heimilisfang:
Staðsetning:
Um:
Einar Breki, kom í heiminn
atburður liðinn í
13 ár
6 mánuði
18 daga
Haukur Nói, kom í heiminn
10 ár
8 mánuði
21 daga
Birgitta Ósk, kom í heiminn
3 ár
2 mánuði
19 daga
Eldra efni
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is