Mömmukökur verða til
Ég sigraði letina í dag og bakaði tvær uppskriftir af
mömmukökum, eða kossum eins og ég kalla þær. Jólin koma
ekki ef þær eru ekki bakaðar hér á þessu heimili. Ég á eftir að
baka fleiri uppskriftir af þeim, því þær eru svo góðar
Molinn kveður
Það er komið rúmt gangmál, en það komu tvær inn í dag,
sem við vorum ekki með dagsetningu á. Annað hvort eru
þær bara að byrja að ganga, eða hafa verið að ganga fyrstu
dagana og við ekki tekið eftir því. En þær gengu í dag. Þá
eru 3 fullorðnar og 7 gemlingar ekki með fangskráningu.
Það voru 4 sem gengu upp í dag, frá fyrsta deginum
(fyrir utan þessar tvær sem komu inn í dag)
Kvöldmatur borðaður
Þórður fann stað fyrir tréð og setti það þar. Þetta kemur
bara mjög vel út
Flott tré
Ég setti seríu í þessa glugga. Suðurgluggarnir í stofunni. Svo
þarf ég að fara að baka mömmukökur. Ég ætla að baka fimm
uppskriftir af þeim Kannski byrja ég á tveim uppskriftum
á morgun
Jæja loksins fór ég í það að setja jólaljós í gluggana hjá okkur.
Og jólaskraut, já og aðventuljósin. Eldhúsglugginn
Og eldhúsglugginn
Langflottasta jólaskrautið komið í eldhúsgluggann
Við höfum fengið svona myndaplatta, hvert ár. Það fyrsta
árið 2013. Þá var bara einn drengur. Árið 2014 bættist við
annar drengur. Svo 2022 bættist við stúlka. Núna eru þau
þrjú sem prýða gluggann okkar
Eldhúsborðið orðið jólalegt
Meðan ég var að skreyta inni, þá fóru þeir til Gísla í
Dagverðartungu og völdu jólatré sem Gísli gaf okkur. Þetta
er stórt og flott tré
Þarna eru þeir búnir að setja jólaseríu á tréð. Við finnum
stað fyrir það úti á morgun
Nú er komin sería í þessa glugga. Ég læt svo seríu í
stofugluggana að sunnan, á morgun
Eldhúsgluggarnir
Skrifstofuglugginn og stofuglugginn að austan
Nú eru komnir 15 dagar í gangmálinu og okkur vantar
skráningu á fangi hjá 12 ám. Þetta eru aðalega gimbrar
sem okkur vantar. Ég á ekki von á að það verði fleiri sem
við náum. Nú fer að koma í ljós hvort einhverjar ganga upp
Það voru glitský aftur í morgun. Þetta eru nú ekki góðar
myndir. Ég tók þær á leiðinni til Akureyrar í gegnum rúðuna
á bílnum
Og þessa líka
Glitský á himni í morgun. Hér koma nokkrar myndir, því ég
gat ekki valið einhverja eina mynd
Við gengum frá ullinni í morgun. Ég segi nú bara loksins. Það
er alltaf svo mikið að gera hjá okkur, að við höfum látið þetta
sitja á hakanum
Nú er þessi flotti drengur orðinn 16 ára. Svakalega sem
tíminn flýgur áfram. Hann fékk afmælispakka í morgun og
þetta tæknilegó var í einum pakkanum
Hann var nú ekki nema fjóra klukkutíma að byggja þetta.
Hann er svo mikill legó snillingur. Til hamingju með 16 ára
afmælið elsku Damian minn
Hér er heldurbetur tekið á því með lærdóminn
Þeir læra og læra á hverjum degi
Skrifa og lesa. Ég var að kaupa þessa segultöflu. Þar er hægt
að skrifa og þurrka út. Góðir vinir að læra
Fjárhúslífið gengur vel. Við erum komin með fangdag á 81
á. Ég er ekki viss um að við náum að skrá fang á allar ærnar,
eins og í fyrra. Hrútarnir eru svo rólegir að það er erfitt að
sjá þegar þær eru að ganga
Það er aldeilis búin að vera hláka. Rok og um 12 stiga hiti
þegar hlýjast var. Það var kl. 2 í nótt
Snjórinn nánast allur horfinn
Vindurinn sló upp í 37 m/s kl. 1 í nótt
Vinnufólkið okkar í morgun
Nafna mín náði að gera eina kind gæfa í morgun. Það var
hún Fóa sem elskaði að leyfa henni að klappa sér
Sú stutta var ánægð með Fóu. Hún ætlar að vera kindakona
eins og amma hennar þegar hún verður stór
Nú er um að gera að nota snjóinn áður en hann fer. Það er
að koma hláka og þá fer líklegast allur snjórinn
Sleðinn á fullu
Nafna mín er í heimsókn og gistir tvær nætur hjá okkur
Strákarnir skiptust á að draga hana á sleðanum
Í dag var sparifatadagur hjá þremur og jólapeysudagur hjá
einum. Þeir voru ánægðir með þessar jólapeysur og
jólahúfur. Það eru jólaljós á húfunum og fjórar stillingar á
ljósunum
Damian var svo heppinn að hitta Pál Óskar í VMA. Ánægður
með sig
Möðruvallakirkja í morgun
Ég fer alltaf með strákana á snjósleðanum niðureftir til að
bíða eftir skólarútunni. Við erum búin að fara á sleðanum í
nokkrar vikur. Það er gott að hafa snjóinn
Snjósleðinn var notaður í útiveru í dag
Fengitíminn langt kominn. Komnar skráningar á rúmlega 60
ær. Það voru 16 ær sem gengu fyrsta daginn. Þær verða
áreiðanlega nokkrar sem ganga upp af þeim
Við gömlu gerðum okkur lítið fyrir og fórum í mat á
Greifann í hádeginu. Við fengum okkur lambafile.
Þetta bragðaðist vel
Gamla sátt við matinn. Ég var samt að hugsa um
að fá mér pitsu, en ákvað að borða lambakjöt.
Þetta gerum við ekki oft. Mörg ár síðan við fórum
út að borða síðast
Allt gott að frétta úr fjárhúsunum. Hrútarnir standa sig vel.
Við erum komin með fangdag á rétt um 50 ám
Við Þórður vorum að versla. Við keyptum þennan sófa í
holið og þetta litla sófaborð. Sófinn sem var þarna var
orðinn ónýtur. Strákarnir eru mjög ánægðir með þessi kaup
Og þessa eldhússtóla. Hinir voru orðnir ónýtir
Svo fékk ég rafmagnshægindastól. Núna get ég
heldur betur hvílt lúin bein
Nafn:
Farsími:
Tölvupóstfang:
Afmælisdagur:
Heimilisfang:
Staðsetning:
Um:
Einar Breki, kom í heiminn
atburður liðinn í
13 ár
6 mánuði
18 daga
Haukur Nói, kom í heiminn
10 ár
8 mánuði
21 daga
Birgitta Ósk, kom í heiminn
3 ár
2 mánuði
19 daga
Eldra efni
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is