
|
Flettingar í dag: 4928 Gestir í dag: 27 Flettingar í gær: 7715 Gestir í gær: 76 Samtals flettingar: 1844741 Samtals gestir: 82546 Tölur uppfærðar: 2.4.2025 06:33:35
17.11.2024 17:31
 |
Blásarinn kominn í starf. Simmi blés hér allt í dag
 |
 |
Við tókum bílana af stæðinu og Simmi blés af því. Gott að
eiga góð tæki
 |
 |
Þessir voru duglegir að leika sér úti
Fjárhús, mokstur, leikur og sund í dag
Molinn kveður
|
|
|
|
|
16.11.2024 18:48
 |
Við tókum snjósleðann út í dag. Það voru ánægðir drengir
sem fengu að keyra hann
 |
Rikki
 |
Víkingur
 |
Alexander
Svo var leikur í snjónum. Eins og ég sagði, snjórinn er svo
mikið leikfang 
 |
 |
 |
 |
 |
Góð útivera í dag
 |
Snjótittlingarnir mættu eins og snjórinn
 |
 |
Ég átti maís handa þeim
Það var mjög mikið rok í nótt og snjórinn skóf í skafla.
Veðrið í dag er búið að vera þokkalegt
Molinn kveður
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
15.11.2024 17:36
 |
Jæja það breyttist veðrið í dag. Rokið og hitinn búið í bili og
komin snjókoma. Mjög góð skipti
 |
 |
Auðvitað var farið út að leika í snjónum
 |
 |
Úti í nærri tvo tíma
 |
Ég var með þeim úti "að leika". Snjórinn er svo mikið leikfang
 |
Svona var skyggnið. Þarna sést ef vel er gáð, gamla fjósið
 |
Já lítið skyggni
Molinn kveður
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
14.11.2024 17:18
 |
Offa nýklippt. Hún er með doppur um allt
 |
Líka Dís
 |
Litfríð að vonast eftir brauði frá Þórði
 |
Litlu hrútarnir sem fæddust í sumar. Við vorum að taka þá
frá gimbrunum. Við hættum ekki á neitt hahaha
Það er nú meira rokið þessa dagana. Búið að vera rok í
nærri viku
Molinn kveður
|
|
|
|
13.11.2024 20:53
 |
Unnar á Þúfnavöllum kom og klippti ærnar, í dag. Við vorum
með úrvals lið með okkur, til að hjálpa okkur
 |
Þetta gekk hratt og vel
 |
Gott að þetta er búið
 |
Þær voru ánægðar með tugguna eftir þetta
 |
Strákarnir dunduðu sér við að perla áður en við fórum í
fjárhúsin. Nú verður perlað fram að jólum 
 |
Við erum búin að fá fullorðinsmerkin í lömbin. Ég skrifaði
ofan í tölustafina, því þeir eru svo daufir. Við byrjuðum á
því í fyrra að skrifa á merkin og það kemur vel út
Molinn kveður
|
|
|
|
|
|
12.11.2024 19:07
 |
Við flokkuðum ærnar í morgun, fyrir rúning á morgun. Hvítu
ærnar í annari krónni og mislitu í hinni. Það verður geggjað
þegar búið verður að rýja þær
 |
Þessi Álft er hér á Möðruvöllum með 5 gæsum. Ég held að
þetta sé ungi. Er samt ekki viss. Skrítið að þessi 6 haldi saman.
Þau eru búin að vera í marga daga saman hér
 |
Hér eru fjórar gæsir sem eru með þeim á efri myndinni
 |
Ég held að þetta sé ungi. Allavega er hann grár
Molinn kveður
|
|
|
|
11.11.2024 18:13
 |
Hrútaskráin var að koma út á netinu. Ég er búin að setja link
af henni hér til hliðar, hjá hinum hrútaskránum
|
Þessi hrútur Fastus er frá okkur. Við settum nokkrar gimbrar
á undan honum, í haust
 |
Heyið er grænt og gott. Þær taka vel í það
Molinn kveður
|
|
|
10.11.2024 19:14
 |
Við kláruðum að setja niður gólfið og setja upp
skilrúmið/milligerðina, eftir að við gáfum kindunum. Svakalega
er ég ánægð að þetta er búið. Við vorum mjög heppin með
veðrið
 |
Kindurnar þurftu að vera úti eina nótt. Þær voru ánægðar að
koma inn og fá sér tuggu
 |
Það á að klippa þær á miðvikudaginn
Svakalega góð helgi hjá okkur. Strákarnir allir fjórir duglegir
og þeir fengu umbun fyrir, sem var sund, ís í Ísbúðinni, pitsu
og gos. Þeir voru þakklátir með það 
Molinn kveður
|
|
|
09.11.2024 18:09
 |
Við byrjuðum að taka upp gólfið í miðhúsinu þegar við vorum
búin að gefa kindunum í morgun. Þarna er verið að taka
skilrúmið niður
 |
Og þarna er byrjað að taka upp gólfið
 |
Strákarnir voru svo svakalega duglegir í allan dag. Þeir eldri
við að hjálpa okkur og þeir yngri að leika sér
 |
Þarna er búið að taka upp tvö bil. Gólfið er í 5 bilum
 |
Síðasta bilið tekið upp og Simmi að moka út
 |
Simmi var ekki lengi að moka út og keyra skítnum á túnið
 |
Þegar Simmi var búinn að moka út, þá fórum við í að setja
gólfið niður aftur. Við kláruðum þrjú og hálft bil. Við ætlum
að klára á morgun
 |
Þetta köllum við eitt bil. Það er lengdin á plönkunum/spítunum
sem bilið er
Mjög góður dagur í dag og mikið gert
Molinn kveður
|
|
|
|
|
|
|
|
08.11.2024 18:53
 |
Við náðum að klára gólfið í dag. Við settum líka hurðirnar í
og lokuðum þeim
 |
Svo settum við líka upp skilrúmið. Þá er syðsta húsið búið.
Við tökum svo gólfið upp í miðhúsinu á morgun. Vonandi
náum við að setja það aftur niður þegar búið verður að
moka út úr því
 |
Strákarnir fundu músina aftur, sem þeir náðu um daginn
 |
Möðruvallakirkja í morgun
Molinn kveður
|
|
|
|
07.11.2024 19:08
 |
Búið að moka út og þá er að setja gólfið aftur niður
 |
 |
Við settum bara tvö bil niður í dag. Við ætlum að klára gólfið
á morgun
 |
Það verður æðislegt þegar þessi vinna er búin
Það er búið að vera mikið rok í dag. Samt ekki eins hvasst og
á Akureyri
Molinn kveður
|
|
|
|
06.11.2024 17:22
 |
Allt autt. Hiti og mikið rok í dag
 |
Að bíða eftir skólarútunni
 |
Sólin að kíkja
 |
Við tókum upp síðasta bilið í syðsta húsinu og tókum hurðirnar
af. Nú er allt tilbúið fyrir mokstur
 |
Simmi mokaði út í dag. Þarna er hann alveg að verða búinn
 |
Og þarna tekur hann síðustu skófluna
 |
Búinn að moka út. Nú þurfum við að setja gólfið niður á
morgun. Það þarf svo að moka út úr miðhúsinu. Ég held að
það þurfi ekki að moka út úr nyrsta húsinu
 |
Strákarnir að lesa
 |
Stafastuð
 |
Við fórum í göngutúr í Hálsaskóg
 |
Þar sáum við Glókoll
 |
 |
Hann dansaði fyrir okkur. Gaman að rekast á hann
Molinn kveður
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
05.11.2024 18:53
 |
Tekið í morgun
 |
 |
 |
Hiti úti og allt autt
 |
Ærnar settar inn seinni partinn. Þær eru sáttar við þetta
fyrirkomulag. Settar út eftir gjöf/át á morgnana og inn fyrir
seinni gjöf
 |
 |
Allar á gjöf
Molinn kveður
|
|
|
|
|
|
|
04.11.2024 19:40
 |
Það er ekki búið að moka út ennþá, en það kemur að því.
Við gefum kvölds og morgna og setjum ærnar út á daginn,
þær sem eru í ullinni ennþá
 |
Möðruvallakirkja í morgun
Molinn kveður
|
|
03.11.2024 18:36
 |
Í gær fórum við í sund á Hrafnagili og í dag fórum við í sund
á Dalvík. Dagurinn í dag endaði með því að okkur var boðið
í vöfflukaffi hjá vinafólki okkar á Dalvík. Ég hef aldrei séð
drengina borða eins og þeir borðuðu í vöfflukaffinu. Þeir
tóku vel á því. Takk fyrir elsku vinir Sigrún og Oliver  
Frábærir sunddagar og strákarnir í skýjunum
Molinn kveður
|
|
|

|
 |
|
 |
|

clockhere Birgitta Lúðvíksdóttir 820-7756 23. júlí, 1962 Möðruvellir 3 Hörgársveit Áhugamanneskja um sauðfjárrækt. Er með kindur á Möðruvöllum í Hörgársveit Einar Breki, kom í heiminn atburður liðinn í 13 ár 6 mánuði 18 daga Haukur Nói, kom í heiminn atburður liðinn í 10 ár 8 mánuði 21 daga Birgitta Ósk, kom í heiminn atburður liðinn í 3 ár 2 mánuði 19 daga Tenglar
|
|
 |
|
 |
|

|