Þetta er síðan hennar Birgittu Lúðvíks.


Flettingar í dag: 4928
Gestir í dag: 27
Flettingar í gær: 7715
Gestir í gær: 76
Samtals flettingar: 1844741
Samtals gestir: 82546
Tölur uppfærðar: 2.4.2025 06:33:35

20.07.2024 17:53

Ömmu og afa gullmoli í heimsókn

Nafna mín kom í dag til okkar og ætlar að gista hjá okkur

eina nótt

Við fórum og gáfum kindunum brauð

Hún klappaði þeim og gaf þeim brauð. Hún sagði að þessi

væri mjúk

Þrír gullmolar heart

Sólveig hitti kindina sína, Rakel. Þær höfðu engu gleymt

Nafna að klappa Rakel

Í góðu stuði

Gimbur undan 23-049 Heklu og 23-726 Pixa. Hún er með

arfgerðina ARR og N138

Gimbur undan 16-291 Rakel og 23-721 Fastusi. Hún er með

arfgerð H154

Hrútur undan 21-001 París og 23-721 Fastusi. Hann er með

T137 og H154

23-049 Hekla með gimbrar undan 23-726 Pixa. Önnur með

ARR og N138 og hin með N138 

Gimbur undan 18-428 Kvísl og 23-722 Brútusi. Hún er með

T137

Fá sér brauð að borða

Verktakinn kom til að bera á túnin sem við heyjuðum núna

seinast. Það eru túnin 9 og 5. Þá er búið að bera á allt aftur

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

19.07.2024 17:58

Sauðburður

Ég vaktaði Linsu á klukkutíma fresti í nótt. Svo er ég búin að 

horfa á hana í allan morgun. Um eða fyrir hádegi þá byrjaði

hún að bera

Hún átti tvo stóra og fallega hrúta

Faðirinn er 23-726 Pixi með arfgerð ARR

Við mörkuðum lömbin og sprautuðum þau gegn

lambablóðsótt og settum líka í þau selen

Svo fengu þau að fara út í góða veðrið með mömmu sinni

Sólveig okkar kom til okkar 17. júlí og verður til 24. júlí. Við

buðum henni að koma og vera hjá okkur heart

Gaman að fá hana til okkar heart Hún tók á móti lömbunum,

með mér í dag

 

Næsta á tal 29. júlí

 

Við slóum graðinn í dag. Ekki veitti af. Mikið gras

Við fengum góða hjálp

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

18.07.2024 19:14

Sauðburðarvakt

Jæja þá byrjar sauðburðarvaktin. Þessi á tal á morgun og við

settum hana inn í dag

Ég mun fylgjast með henni, þar til hún ber. Ég fór yfir

síðustu ár hjá henni og hún hefur alltaf borið á tali, 

þannig að hún ætti að bera í nótt eða á morgun

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

 

17.07.2024 18:47

Afmælisveisla

Hér var mikið stuð í dag. það var haldið upp á þrjú afmæli, ja

allavega tvö. Tveir ömmu og afa gullmolar, önnur varð 17 ára

26. júní og hin 4 ára í dag. Frændi þeirra varð 34 ára í dag

Svakalega flott kaka

Regnbogakaka

Fallega ömmu og afa gull

Og fallegu ömmu og afa gull

 

Svo flott heart

Æi elsku molarnir okkar

Allir að borða ís

Við Þórður með ömmu og afa gullmolann sem varð 4 ára

í dag

Elsku nafna mín. Hún er alveg orðin sátt við þá gömlu heart

Við að spjalla saman

Lömbin sem fæddust 14. júlí

Og lömbin sem fæddust 9. júlí

18-393 Klanka með hrút og tvær gimbrar undan 23-722

Brútusi. Þau eru öll með T137 arfgerð

Gimbur

Gimbur 

Og hrútur. Flott lömb

Kindurnar koma alltaf til að fá brauð

 

Mjög gaman að gefa þeim brauð

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

16.07.2024 18:07

Fljót í Skagafirði

Við fórum smá rúnt á húsbílnum, í dag

Við keyrðum til Ólafsfjarðar og í átt að Lágheiði

 

Við stoppuðum við Reykjarétt í Ólafsfirði og fengum okkur

að drekka

 

 

Veðrið var æðislegt. Við Reykjarétt í Ólafsfirði

 

 

Myndir sem koma á eftir eru allar teknar út um gluggann, á

leiðinni

Við keyrðum svo Lágheiði. Svakalega mórauð áin þarna

 

Þarna vorum við að koma niður af Lágheiði. Áin alveg

svakalega mórauð

Knappstaðakirkja. Hin árlega messa í þessari kirkju, var í

fyrradag

Reykjarhóll

Molastaðir. Mitt æskuheimili heart

Bjarnagil

Saurbær

Minna-Holt. Með réttu, þá ætti þetta að vera í minni eign.

Jón heitinn sagði að þegar hann yrði allur, þá ætti ég að eiga

þessa jörð. En það varð nú ekkert úr því. Jón var mikill vinur

minn

Ef vel er að gáð, þá sést í þakið á húsi þarna í skógarreitnum

vinstra megin á myndinni. Mamma og pabbi áttu þennan

sumarbústað og við vorum mikið þarna. Þau ásamt fleirum

smíðuðu hann

Austur Fljót

Félagsheimilið á Ketilási

Kaupfélagið á Ketilási

Lambanes

Sauðanes

 

Við keyrðum svo í gegnum Siglufjörð, Ólafsfjörð, Dalvík og 

svo heim. Mjög góð ferð heart

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

15.07.2024 19:09

Fyrri heyskap lokið

Guðmundur á Þúfnavöllum kom og rúllaði fyrir okkur, á

stykki 9 og 5. Það voru nú ekki nema 4 rúllur á stykki 9 og 

14 rúllur á stykki 5.  Þetta var nú bara hreinsun þessi sláttur

á þessum stykkjum. Við fórum eftir hádegi og gengum frá

endunum og merktum rúllurnar. Við vorum nú ekki lengi 

að gera þetta

Fjallsstykkið

Þórður fór svo og náði í rúllurnar

 

 

Þórður að setja síðustu rúlluna í stæðuna

Þórður er svona nánast búinn að sitja í vélinni í eina viku. 

Hann er búinn að standa sig alveg svakalega vel heart

Litlu lömbin hafa það gott í góða veðrinu

Þessi hyrnda er næst, 19 júlí

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

14.07.2024 05:34

Alltaf nóg að gera í sveitinni

Eins og ég sagði í gær, þá setti ég ærnar inn í gærkvöld, því

það er auðveldara að vakna á nóttunni og kíkja í myndavélina

til að athuga hvort eitthvað er að gerast

Ég vaknaði á klukkutíma fresti til að athuga með þessa. Hún

átti tal 16. júlí. Ég sá á henni í gærkvöld að hún var eitthvað

óróleg. Ég var alveg viss um að hún væri að fara að bera, um

þrjú leitið í nótt. Um sex leitið var hún farin að rembast. Ég

fór uppeftir og ég mátti ekki seinni vera. Það var kominn 

haus út. Ég náði að setja hann inn og ná í fæturnar. Restin 

gekk mjög vel og út komu tvær flottar gimbrar

Önnur er alveg bjarthvít, en hin er litur 12 eða jafnvel litur

13. Það er möguleiki að þær séu með ARR arfgerð smiley

Móðirin er 18-397 Dáfríð og faðirinn 23-726 Pixi

Þórður snéri á báðum stykkjunum, 5 og 9

Við fengum verktaka til að bera á túnin, á milli slátta. Hann 

bar á öll túnin, nema þessi tvö sem verið er að heyja á

Þórður tilbúinn með sekkina

Það er enn svona mikið í Staðaránni

Hún flæðir í áttina að refaskálanum

Mjög mikil þessa dagana

Við mörkuðum og sprautuðum lömbin gegn lambablóðsótt,

í dag og settum líka í þau selen

Þau fengu svo að fara út með mömmu sinni

Við fórum í fjöruna á Gásum. Vatnið sem er þarna er alveg

að verða horfið í einhvern gróður

Allt í gróðri

Staðarskarðið

Súlur. Tekið frá Gásum

Og svo í framhaldi af Súlum

 

Hjalteyri

Endurvarpstöðin í Vaðlaheiði. Tekið frá Gásum

Flugvél, líklegast að fara til Grímseyjar

 

Verið í leik í fjörunni á Gásum

 

 

 

 

 

Fjör á Gásum

 

 

Afi með afagullmolann sem fékk að fara með honum smá

rúnt í vélinni

Hún var ekkert hrædd í vélinni heart

Þórður garðaði upp á báðum stykkjunum. Klárt fyrir rúllun

á morgun

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

 

13.07.2024 15:23

Þórður kláraði að keyra heim rúllunum

Þórður kláraði að keyra heim rúllunum í morgun

 

Rúllurnar af nýræktinni

Meðan Þórður var að keyra heim rúllunum, fórum við á stjá.

Við fórum og gáfum kindunum brauð

 

Þær komu hlaupandi þegar þær sáu okkur

Líka þessi með litlu lömbin

Við eigum eftir að fá að vita úr fjórum arfgerðarsýnum. Sýnið

úr þessari gimbur er eitt af því. Þetta er gimbur undan 

23-045 Anímóu og 23-726 Pixa

Þetta er hrúturinn á móti henni. Hann er með arfgerðina

H154

Við fórum svo upp í fjallshólf til að leita að þeirri næstu sem

á að bera. Við fundum hana upp við fjallsgirðingu. Það er 

þessi kollótta. Hún á tal 16. júlí. Þessi við hliðina á henni á

tal 19. júlí, þannig að við tókum hana með

Við rákum þær inn með nokkrum kindum og settum hinar

svo út

Við settum svo þessar út og erum með þær í fjárhúshólfinu.

Ég ætla svo að setja þær inn í kvöld, þannig að það sé hægt

að fylgjast með þeim í myndavélinni

Þórður sló tvö stykki í dag. Stykki 9 (fyrir ofan íbúðarhúsin)

og fjallsstykkið, stykki 5

Á meðan hann var að slá, fórum við á Hjalteyri

 

 

 

 

 

 

Við vorum þar nærri þrjá klukkutíma

 

Ég sá nokkra fugla og myndaði þá

Sandlóa

Skógarþröstur

Kría

Æðakolla

Álft. Það voru samt fleiri fuglategundir

Svo var aðeins hoppað

 

 

Aurskriða sem fór held ég í fyrra við Fagrabæ. Mynd tekin

frá Hjalteyri

 

Ég tók nokkrar myndir af vatnavexti í Staðará og Hörgá

Staðaráin í vexti

 

 

Áin búin að éta undan tunnunni sem við vorum með upp á

bakkanum fyrir girðinguna

 

 

 

 

Svakalegir vatnavextir

 

Við enduðum svo á að fara í sund á Þeló

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

12.07.2024 15:06

10 ára afmælisgullmoli

Já eins og teljarinn hér til hliðar segir til um, þá er þessi

gullmoli orðinn 10 ára

Amma með gullinu sínu. Þegar ég spurði hann hvað ég gæti

gefið honum í afmælisgjöf, svaraði hann: Mig langar í bollurnar

sem þú gerir amma. Þær eru bestar. Auðvitað tók amma út

hakk og græjaði bollur fyrir afmælisgullmolann

Þetta eru steiktar kjötbollur

Ég steiki þær og sker þær svo yfir miðjuna og steiki þær

aftur þar sem skurðurinn er. Þetta er mjög gott og fljótlegt

að græja

Ég setti svo 4 í pakkningu og vagumpakkaði

 

Þetta fékk hann í afmælisgjöf ásamt öðru heart Til hamingju

með afmælið elsku ömmugull

Við fórum í sund á Hrafnagili áður en við fórum í afmælið. 

Við tókum tvo ömmugullmola með okkur heart

Þórður var byrjaður að keyra heim rúllum fyrir kl. 8 í morgun

Hann kláraði stykki 8 og stykki 3 og er langt kominn með

stykki 2

Hann er öflugur þessi elska. Slæmt fyrir hann að eiga konu

sem hefur ekki mikinn áhuga á vélum og vill helst ekki keyra

þær crying Á meðan hann er að keyra heim, finnum við okkur

eitthvað að gera á meðan

Langt kominn með stykki 2

 

Komnar flottar stæður

 

 

 

Æi litlu krúttin

 

Ég held að þessum lömbum langi í útilegu. Þau liggja undir

húsbílnum og hafa það gott

Þau eru þarna undir honum að aftan

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 
 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

11.07.2024 16:38

Rúllurnar keyrðar heim

Við fórum niður á engi og gengum frá endum og merktum

rúllurnar. 47 rúllur

Strákarnir duglegir að hjálpa

Þórður keyrði heim rúllunum af stykki 1, Nunnuhólsstykkinu.

11 rúllur

Hann keyrði öllu heim af enginu. 47 rúllur

Hann á þá eftir að keyra heim af stykki 2 (nýræktinni),

stykki 3 (fjárhústúninu) og stykki 8 (fyrir neðan íbúðarhúsin)

Það er að myndast flott stæða hjá honum. Duglegur heartheart

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

10.07.2024 16:58

Heyskapur

Við kláruðum að ganga frá endum og merkja rúllurnar af

nýræktinni, 60 rúllur. Strákarnir eru duglegir að hjálpa mér

við þessa vinnu

Þórður sló stykki 6 niðri á engi, í gærmorgun. Hann snéri

líka í gær. 

Hann snéri aftur í morgun og svo garðaði hann upp, seinni

partinn í dag. Guðmundur á Þúfnavöllum kom svo í kvöld

til að rúlla

Það voru 47 rúllur af stykki 6 á enginu

Við mörkuðum og sprautuðum lömbin gegn lambablóðsótt

í morgun og settum líka selen í þau. Þau fengu svo að fara

út í góða veðrið

Þau hafa það gott með mömmu sinni

Gimbrin

Og hrúturinn

Stór og flott lömb

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

09.07.2024 14:19

Sauðburður og heyskapur

Guðmundur á Þúfnavöllum kom í gærkvöld og rúllaði stykki

8 (fyrir neðan íbúðarhúsin). Það voru 17 rúllur á því stykki

17 rúllur á stykki 8

Strákarnir að ganga frá endum og merkja rúllur

Guðmundur kom aftur í morgun og hélt áfram að rúlla. Hann

rúllaði allt. 

Það voru 45 rúllur af stykki 3 (fjárhústúnið)

60 rúllur af stykki 2,  nýræktinni

Og 11 rúllur af stykki 1, nunnuhólsstykkinu

Þá eru komnar 133 rúllur

Við gengum frá endum og merktum rúllur af öllu, nema

nýræktinni. Við gerum það á morgun

16-285 Brók, ein af lamblausu ánum (átti tal í gær) er búin að 

vera hér heimavið í marga daga. Ég hef getað fylgst með 

henni

Í gær, lét hún sig hverfa. Hún fór upp í fjallshólf. Ég fór svo út

í gærkvöld og sá hana hvergi. Ég fór og leitaði að henni og sá

hana ekki. Þórður fór svo með mér að leita og við fundum 

hana. Hún var efst í fjallshólfinu. Við rákum hana inn í fjárhús

og ákváðum að hafa hana inni í nótt

Ég setti upp myndavélina og ég vaknaði á tveggja tíma fresti

í nótt og gáði að henni

Hún bar svo um fimmleitið í dag, tveim lömbum

Hrútur og gimbur undan 23-726 Pixa. Hann er með ARR

arfgerð. Við tökum sýni úr þeim á morgun og mörkum þau.

Svo fá þau að fara út með móður sinni

Hún er alveg alsæl með lömbin sín

Þarna eru þau að hvíla sig eftir hopp og skopp. Þau byrjuðu

að leika sér klukku tíma eftir að þau komu í heiminn. Mjög

stór og flott lömb

 

Næsta lamblausa á, á tal 16. júlí

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

08.07.2024 18:08

Heyskapur

Þórður snéri öllu í dag

 

Svo var allt garðað

Þarna er verið að garða upp á nýræktinni

Ég er búin að kíkja á þessa annað slagið í dag. Hún hlýtur að

fara að bera. Talið er í dag hjá henni

Maríuerluungi að fá sér rúgbrauð

Jaðrakan

Spóaungi

Kría með síli í gogginum

Lóa

Hrossagaukur

 

Maríuerluungi

Flugvél sem flaug yfir. Líklegast að fara út í Grímsey

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 
 

07.07.2024 19:02

Heyskapur

Þórður snéri öllu í dag. Hann snéri tvisvar á nýræktinni

 

Þórður að snúa á stykki 8 (fyrir neðan íbúðarhúsin)

Brók komin á steipirinn. Hún á tal á morgun

23-051 Skyssa með hrúta undan 23-726 Pixa. Annar er með

ARR og H154 og hinn er með N138. Stór og flott

gemlingslömb

23-047 Gloría með hrúta undan 23-726 Pixa. Báðir með ARR

Gimbur undan 17-330 Stássu og 23-720 Valver. Þessi mynd

er tekin 17. júní. Hún er nú líklegast orðin stærri núna. Hún

er með T137 arfgerð. Mjög trúlega sett á

Gimbur undan 20-506 Marey og 23-725 Dúdda. Hún er með

ARR og verður mjög líklega sett á. Mynd tekin í dag

Þrílembingar undan 20-501 Mön og 23-725 Dúdda.

Gimbrarnar eru báðar ARR

 

Rjúpa sem varð á vegi mínum í dag. Hún var með 8 unga

Spói 

Þota sem flaug yfir í dag

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

06.07.2024 19:37

Sauðburður að skella á

16-285 Brók á að bera eftir tvo daga. Hún var geld og við 

settum hrút hjá henni og þessum geldu ám. Hún er orðin

frekar mikil og komið mikið undir hana. Vonandi gengur 

henni vel að bera. Ég ætla að reyna að fylgjast með henni

eins og ég get. Faðir lambanna verður Pixi 23-726

Gimbur undan 23-049 Heklu og 23-726 Pixa. Hún er með

arfgerðina ARR og N138

Hin gimbrin undan Heklu. Hún er með N138

Hekla með gimbrarnar sínar og þyggja brauð. Hún gengur

með þær báðar

16-291 Rakel með hrút og tvær gimbrar undan 23-721 Fastusi

Hrútur undan 23-053 Lúpínu og 23-723 Ratipong. Hann er

arfhreinn T137

Hér er hinn á móti og hann er líka arfhreinn T137. Hún gengur

með þá báða

20-507 Logey með hrút og tvær gimbrar undan 23-724 Arró.

Hrúturinn og önnur gimbrin eru með ARR arfgerð. Hún 

gengur með þau öll

19-479 Ásgerður með hrúta undan 23-725 Dúdda. Einn er

með ARR arfgerð

Gimbur og tveir hrútar undan 17-325 Litfríð og 23-720 Valver.

Annar hrúturinn er með T137 arfgerð

Gimbrar undan 22-019 Krukku og 23-726 Pixa. Þær eru báðar

ARR. Hún var fjórlembd og gengur með þrjú. Eitt var vanið

undir aðra á

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 



clockhere

Nafn:

Birgitta Lúðvíksdóttir

Farsími:

820-7756

Afmælisdagur:

23. júlí, 1962

Heimilisfang:

Möðruvellir 3

Staðsetning:

Hörgársveit

Um:

Áhugamanneskja um sauðfjárrækt. Er með kindur á Möðruvöllum í Hörgársveit

Einar Breki, kom í heiminn

atburður liðinn í

13 ár

6 mánuði

18 daga

Haukur Nói, kom í heiminn

atburður liðinn í

10 ár

8 mánuði

21 daga

Birgitta Ósk, kom í heiminn

atburður liðinn í

3 ár

2 mánuði

19 daga

Tenglar

Eldra efni