Jæja ég talaði um það í gær, að fuglarnir hefðu horfið í góða
veðrinu sem kom um daginn. Í nótt kom smá föl og viti menn,
þeir mættu nokkrir í dag. Ég er forvitin að vita hvar þeir
halda sig þegar veðrið er gott.
Ég tók nokkrar myndir
Molinn kveður
Mikið sem ég sakna fuglanna sem voru hér í garðinum. Þetta
er bókfinka og hún var hér alla daga í einn og hálfan mánuð.
Ekki veit ég hvert þessir fuglar fara. Þeir koma og fá korn
þegar veðrið vesnar. Veðrið er búið að vera svo gott að þeir
hurfu allir. Kannski koma þeir aftur til okkar þegar byrjar að
snjóa
Gimbrarnar eru orðnar svo flottar, enda éta þær mikið
Eins og ég sagði í bloggi, 14. febrúar, þá settum við geldu
ærnar hjá hrút. Þær eru búnar að vera hjá honum í 10 daga
og það hefur engin gengið ennþá. Ég kíki alltaf annað slagið í
myndavélina og hef ekki orðið vör við að þær séu að ganga.
Gangmálið er nú ekki búið enn og kannski eiga þær eftir að
ganga. En svo getur verið að þær séu fengnar. Að þær hafa
fengið seint, þannig að það hafi ekki sést í sónarnum. Ég
veit samt að ein þeirra á eftir að ganga, því hún er búin að
ganga oft og ekki fest fang. Hún er líklegast ónýt. En það
verður spennandi að sjá hvort þær hinar, eigi eftir að ganga.
Það kemur í ljós í byrjun mars
Unnar kom og tók snoðið af kindunum
Við vorum með hörku lið með okkur og þetta gekk mjög vel
Nafna mín og mamma hennar komu í heimsókn í fjárhúsin
Nafna mín að tala við frænda sinn
Egedía að fylgjast með mér. Það munar ekki miklu að hún
verði gæf. Ég gaf henni klapp eftir að snoðið var tekið af
henni, og hún kvartaði ekki
Gemlingar
Fullorðnu ærnar
Gemlingarnir
Ég fór með þrjá í fjallið í dag
Klárir í brekkurnar
Það er frekar snjólétt í fjallinu
Það er alveg nauðsynlegt að hafa með sér nesti
Smá slökun áður en haldið er áfram á skíðum
Það á að taka snoðið af kindunum á morgun
Það er eins og síðustu daga, mjög gott veður
Allt autt
Við fórum í Kjarnaskóg í dag. Þar eru listaverkin ennþá um
allan skóg
Og þessir mættir á svellið í skóginum
Þetta er eitt listaverkið af mörgum. Ömmu og afa strákurinn
okkar gerði þetta fyrir nokkrum árum
Við hittum líka þá sömu og voru í Hálsaskógi í gær
Þeir hljóta að elta okkur
Það er þónokkur klaki á göngustígunum í Kjarna. Ekki gott
að ganga þar
Þessi minnisvarði er þar
Í minningu Ármanns Dalmannssonar, Skógarvarðar, sem hóf
hér skógrækt árið 1947
Við fórum líka í Lystigarðinn og þessi varð á vegi mínum.
Svartþrastarkerling
Þrír að leika sér og einn á skákæfingu
Við fórum í göngutúr í Hálsaskógi, í dag. Við rákumst á
nokkra úlfa á leið okkar um skóginn
Alveg svakalegir úlfar
Þeir urðu fljótt vinir okkar og slógust í hópinn
Auðvitað voru tekin nokkur dansspor á ísnum
Þessi steinn er við göngustíginn og þar er búið að setja
lítinn álf
Flottur þessi litli álfur
Við heyrðum í fuglum, en sáum engann
Ég tók nokkrar myndir af tunglinu í morgun
Tunglið er frekar eins og sólin þarna. Ég tók þessar myndir
á símann
Tveir á skautum og tveir í golfi
Golfsveifla
Leikur á svelli
Veðrið þessa dagana. Vá!! Bara vorveður. Það er eins gott að
við fáum þetta ekki í bakið seinna
21. apríl eiga tal, tvær þrílembur, fimm tvílembur og
ein einlemba. Vonandi tekst að venja undir þessa
einlembu
22. apríl eiga tal, fjórar þrílembur, tvær tvílembur og
einn tvílembdur gemlingur
23. apríl eiga tal, tvær þrílembur, tvær tvílembur,
ein einlemba og einn einlembdur gemlingur
Þetta verður gaman
Þarna sést heim að Möðruvöllum. Bara vor í loftinu
Ekki er mikill snjór hjá okkur. Það er búið að vera vor í loftinu
í marga daga. Vonandi fáum við þetta ekki í bakið seinna
Seinni parturinn í dag
Ég fór í Lystigarðinn í dag og náði mynd af þessum
Svartþresti
Svartþröstur. Þetta gæti verið ungur karlfugl.
Sýnist goggurinn vera að fá gulan lit
Við settum geldu ærnar hjá hrút, í dag. Þær eru 7.
24-735 Fenox var settur til þeirra
Ég setti upp myndavélina til að geta fylgst með því hvort og
hvenær þær ganga
Gunnar og Jón komu og töldu fóstrin í ánum
Talið var í 88 fullorðnum ám og 24 gemlingum
Gemlingar (árgangur ´24) eru 24
11 með 1, fóstrin drepast í þrem
13 með 2, eitt fóstur drepst hjá einni
samtals 37 fóstur, eða þá 33 fóstur
1,54 lömb á gemling
Tveggjavetra (árgangur ´23) eru 17
3 með 1
1 með 3
samtals 32 fóstur, eða þá 31 fóstur
1,88 lömb á kind
Þriggjavetra (árgangur ´22) eru 12
2 með 0
4 með 2, eitt fóstur drepst hjá einni
6 með 3
samtals 26 fóstur
2,16 lömb á kind
Fjögravetra (árgangur ´21) eru 5
3 með 2
2 með 3
samtals 12 fóstur
2,40 lömb á kind
Fimmvetra (árgangur ´20) eru 16
2 geldar
1 með 1
4 með 2
9 með 3
samtals 36 fóstur
2,25 lömb á kind
Sexvetra (árgangur ´19) eru 12
2 með 1
6 með 2
4 með 3
2,17 lömb á kind
Sjövetra (árgangur ´18) eru 15
1 geld
8 með 2
samtals 30 fóstur
2,0 lömb á kind
Áttavetra (árgangur ´17) eru 10
samtals 16 fóstur
1,60 lömb á kind
Níuvetra (árgangur ´16) er 1
1 með 2
samtals 2 fóstur
Fullorðnar ær 2,05 lömb
Gemlingar 1,54 lömb
Þetta gerir þá 1,94 í heildina
Geldar ær eru með í þessum meðaltölum
Alls eru þetta 217 talin fóstur, en þau verða 211,
því það drepast 6 fóstur
Gunnar kemur á morgun og telur fóstrin í ánum
Og þá verður maður að hafa góðan mat. Lambasneiðar í
raspi
Möðruvallakirkja í morgun
Og í kvöld
Þessir báðu um að fara hátt upp í loft
Í dag voru þrír í fríi og einn í skóla
Við tókum langa útivist í dag. Við fórum upp að Staðará og
þar var leikið
Verið að brjóta snjóbrúna
Tveir fóru í gegnum rörin í ræsinu
Svo fóru þeir að renna sér á klakanum
Staðarhnjúkur
Enginn snjór. Bara smá klaki
Nafn:
Farsími:
Tölvupóstfang:
Afmælisdagur:
Heimilisfang:
Staðsetning:
Um:
Einar Breki, kom í heiminn
atburður liðinn í
14 ár
4 mánuði
8 daga
Haukur Nói, kom í heiminn
11 ár
6 mánuði
10 daga
Birgitta Ósk, kom í heiminn
4 ár
Eldra efni
© 2026 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is