Þetta er síðan hennar Birgittu Lúðvíks.


Flettingar í dag: 5410
Gestir í dag: 6
Flettingar í gær: 5532
Gestir í gær: 39
Samtals flettingar: 2902788
Samtals gestir: 93364
Tölur uppfærðar: 20.12.2025 13:48:01

25.09.2024 19:14

Enn vantar 6 hausa af fjalli

Okkur vantar 3 ær og 3 lömb af fjalli. Hér eru myndir af þeim

17-354 Þrasa. Hún á nú líklegast eftir að koma, því það 

vantar líka báða hrútana hennar

Hér er annar

Og hér er hinn. Þeir eru báðir hlutlausir

18-404 Læna. Lömbin hennar eru komin og það er mjög

líklegt að hún hafi ekki haft sumarið af

18-420 Þúst. Hún fór geld á fjall og er ekki komin. Líklegast

hefur hún, eins og Læna, ekki haft sumarið af

Hrútur undan 23-041 Æsu og 23-723 Ratipong. Æsa er komin,

en ekki hann. Hann er arfhreinn T137 og ég sé mikið eftir 

honum. Vonandi á hann eftir að skila sér

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

24.09.2024 19:51

Nokkrar samanburðarmyndir

Hrútur undan 20-521 Offu og 23-722 Brútusi. Hann er með 

T137. Fyrri myndin er tekin 15. júní. Seinni myndin er tekin

16. september

Gimbrin á móti. Hún er líka T137. Fyrri myndin tekin 15. júní

og seinni myndin 20. september

Hrútur undan 22-013 Vanadís og 23-723 Ratipong. Hann er

bæði T137 og N138. Fyrri myndin er tekin 15. júní og seinni

tekin 16. september

Hrútur undan 15-215 Þernu og Brútusi. Hann er T137. Fyrri

myndin er tekin 16. júní og seinni myndin 16. september

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

23.09.2024 17:10

Forystuféð okkar

Þetta er forystuféð okkar

18-409 Elíza

Egedía, undan Elízu og Maxímus

Hrútur á móti, Ísar

23-044 Eyvör. Hún er undan Elízu og 17-861 Fjalla

23-727 Maxímus

Ég fór í göngutúr innan um féð. Ég sá Elízu og kallaði á hana.

Hún kom hlaupandi til mín, ásamt lömbunum og Eyvör. Þau

fengu brauð og voru ánægð með það

Þórður gaf út rúllur í dag. Hann setti 3 rúllur. Lömbin og

ærnar röðuðu sér við þær og fóru strax að éta. Beitin er 

langt komin og þá er bara að gefa rúllur

Þarna raða þau sér við rúlluna

Og líka við þessa

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

22.09.2024 18:32

Tunglið

Tunglið í kvöld

Þessa mynd tók ég 20. september

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

21.09.2024 17:15

Aðrar göngur

Ég fór með drónann upp í fjall til að reka kindurnar af stað

Þessi horfði bara á drónann, en lét sig á endanum

Eins með þessi. Þau horfðu bara, en æddu svo af stað

 

Þessi voru upp í Katlinum

 

 

Þessar voru niður við girðingu

 

Þessi voru upp í Katlinum og ég kom þeim niður úr honum

Svo er ég komin í fyrirstöðu þarna

 

Þessi var með mér

Veðrið var mjög gott

 

Við fengum enga kind. Okkur vantar 3 ær og 3 lömb

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

20.09.2024 16:36

Gæsahræða

Við vorum að gefast upp á gæsinni. Ég held að það hafi verið

nokkur hundruð fuglar. Allavega mjög margar gæsir

Þær voru að hugsa um að éta allt grasið frá kindunum

Þórður tók á það ráð að leggja vélinni ofarlega á nýræktinni

og fjórhjóli neðar. Við höfum ekki séð neina gæs á

nýræktinni eftir þetta. Vonandi koma þær ekki aftur. Við 

þurfum að hafa grasið fyrir kindurnar

Við fengum 10 lömb í gær. Við vigtuðum þau í morgun.

Meðalvigtin á þeim var 46,5 kg. Þessi systkin voru 50 og 60 kg.

Þau eru undan 19-460 Larisu og 23-724 Arró

Þessir uppeldisbræður voru 44 og 49 kg. Þessi hyrndi er 

undan 22-014 Gátu og 23-726 Pixa. Hann var 49 kg. Hann er

með ARR arfgerð. Kollótti er undan 17-311 Selju og 23-721

Fastusi og var 44 kg. Hann er með T137

Gimbur undan 17-330 Stássu og 23-720 Valver. Hún var 46

kg. og er með T137. Hún verður sett á smiley

Hrútur undan 22-012 Gormu og 23-725 Dúdda. Hann er með

ARR. Þessi mynd var tekin 17. júní

Hann hefur heldur betur breyst. Ég hélt að hornin yrðu

öðruvísi, miðað við myndina af honum í júní. Þessa mynd

tók ég í dag

Tunglið í kvöld

Tunglið í kvöld, tekið á annari stillingu

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

 

19.09.2024 16:46

Fórum yfir ærnar í dag

Við fórum yfir ærnar í dag/kvöld. Okkur vantar 3 ær. Ein fór

geld á fjall, ein er með tvö lömb og ein er líklegast dauð, því

lömbin hennar eru komin. 

Ég held að okkur vanti 3 lömb. Tvö með móður sinni og 

eitt lamb þar sem móðirin er komin. Það er sárt ef það er

dautt, því það er hrútur sem er arfhreinn T137 sad

Við ætlum að vigta lömbin á morgun, þessi sem komu í dag

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

18.09.2024 16:18

Höfðinginn okkar

Í gær hefði þessi höfðingi orðið 96 ára. Hann var fæddur

17. september 1928 og lést 04. september 2010. Þessa mynd

tók ég af honum 21. ágúst 2010, 14 dögum áður en hann 

lést. Hans er sárt saknað heart Blessuð sé minning þín elsku

Haukur

Fyrri myndin var tekin 16. júní. Hann var strax orðinn stór

og flottur í vor. Seinni myndin var tekin 16. september. Hann

var 56 kg. Þetta er hrútur undan París og Fastusi

 

Fyrri myndin var tekin 23 maí. Seinni myndin tekin

16. september. 60 kg. hrútur undan Þyrey og Fastusi

 

Við förum yfir ærnar á morgun og þá kemur í ljós hvað vantar

margar

 

 

 
 

 

 

Molinn kveður

 

 

 

17.09.2024 16:08

Forystulömb

Mynd tekin 8. júní. Gimbur undan Elízu og Maxímus

Mynd tekin 16. september

Mynd tekin 8. júní. Hrútur undan Elízu og Maxímus

Mynd tekin 16. september

 

Þessi forystulömb fá líklegast bæði að lifa. Allavega gimbrin.

Hún er komin með nafn. Hún heitir Egedía

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

16.09.2024 15:49

Flott lömb

Við sóttum eina með tvö lömb, í morgun. Hún kom í réttina.

21-002 Krúella með hrút og gimbur undan 23-721 Fastusi.

Þau eru bæði T137. Hrúturinn var 49 kg. og gimbrin var 47 kg.

18-409 Elíza með hrút og gimbur undan 23-727 Maxímus.

Gimbrin var 38 kg. og er með N138 og hrúturinn var 40 kg.

Hrútur undan 19-475 Þyrey og Fastusi. Hann er með T137

og var 60 kg.

Þetta er gimbrin á móti. Hún er með H154 og var 45 kg.

Gimbrar undan 17-376 Fóu og 23-724 Arró. Þær eru báðar

með ARR og H154. Þær voru 42 og 44 kg.

Hrútur undan 20-521 Offu og 23-722 Brútusi. Hann er T137

og var 52 kg. Gimbrin á móti var 39 kg.

Gimbur undan 20-496 Fnjósk og 23-724 Arró. Hún er H154

og var 42 kg. Hrúturinn á móti var 48 kg.

Gimbur undan 23-032 Floxý og 23-723 Ratipong. Hún er með

C151 og var 47 kg.

Hrútur undan 19-469 Æðey og Brútusi. Hann er T137 og var

53 kg. Gimbrin á móti var 45 kg.

Hrútur undan 15-215 Þernu og Brútusi. Hann er með T137

og var 47 kg. Gimbrin á móti var 40 kg

Hrútur undan 17-358 Pysju og Arró. Hann er með

ARR og N138. Hann var 46 kg. Gimbrin á móti var 44 kg.

Gimbur undan 22-021 Kotru og Fastusi. Hún er T137 og var

46 kg. Gimbrin á móti var 47 kg.

Hrútur undan 22-013 Vanadís og Ratipong. Hann er með 

T137 og N138. Hann var 44 kg. Gimbrin á móti var 40 kg. og

það er mynd af henni hér fyrir neðan

Systur undan 15-244 Ræmu og 23-720 Valver. Þær eru báðar

með T137 og voru 38 og 39 kg.

Gimbur undan 18-404 Lænu og Arró. Hún er með ARR og

V136. Hún var 40 kg. Gimbrin á móti var 38 kg.

Hrútur undan 20-506 Marey og 23-725 Dúdda. Hann er með

ARR. Hann var 49 kg. 7. september. Hann er orðinn þyngri

núna. Hann verður vigtaður aftur aðra helgi. Hann er

þrílembingur og hin lömbin voru vigtuð 7. september og 

voru þá 32 og 43 kg.

Gimbur undan Vanadís og Ratipong. Hún er með T137 og

N138. Hún var 40 kg. Hrúturinn á móti er hér fyrir ofan og 

var 44 kg.

Hrútur undan 21-001 París og Fastusi. Hann er með T137 og

N138. Hann var 56 kg. 

Gimbur undan 20-515 Rúbý og Dúdda. Hún er með ARR og 

var 49 kg. Hrúturinn á móti var 52 kg.

 

Mörg flott lömb með góðar greiningar. Það verður erfitt að

velja ásetning. Það verður ekki hægt að setja allt á, en restin

verður að fara í húsið hvíta sad

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

15.09.2024 19:24

11 ár á Möðruvöllum

Í dag eru komin 11 ár síðan við fluttum í Möðruvelli 3. Okkur

líður vel í sveitinni. Þetta er gömul mynd af okkur smiley

Já Möðruvellir 3

 

 

Við vigtuðum 83 lömb í dag og meðalvigtin á þeim var

44,9 kg.

 

Við eigum eftir að fara yfir ærnar, en okkur vantar 15 lömb

af fjalli. Vonandi koma þau næstu helgi, en þá eru aðrar

göngur

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

14.09.2024 19:03

Réttir í dag og 13 ára afmæli

Göngur í dag. Veðrið var fínt til að byrja með, en svo varð

kallt og fór að snjóa. Ég fór í fyrirstöðu með Damian, Rikka

og Leó

 

 

Kindurnar renna heim í rétt

 

Við Helga Dóra systir. Hún kom og gekk fyrir okkur heart

Við Helga systir og Rúnar frændi heart

Við Helga og Damian

Elíza mætti með hrútinn og gimbrina

 

 

 

 

 

 

 

 

Eyvör dóttir Elízu mætti líka í dag. Gaman að fá þær allar

heim

 

Það var klárað að rétta, en við ætlum að vigta lömbin á

morgun. Eftir það kemur í ljós hvað okkur vantar af fjalli

Þessi ömmu og afa gullmoli varð 13 ára í dag. Til hamingju

með afmælið elsku Einar Breki okkar heart Við knúsum þig

seinna

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

13.09.2024 17:22

10 lömb komu heim í dag

Við fengum 5 ær og 10 lömb, á Staðarbakka í dag

 

18-439 Hilda með hrút og gimbur undan 23-722 Brútusi.

Hrúturinn var 53 kg. og gimbrin var 47 kg. Gimbrin (þessi 

hvíta) er með T137. Hilda gerir það gott

16-279 Bytta með hrút og gimbur undan 23-724 Arró.

Hrúturinn er með ARR  og var 49 kg. og gimbrin er með

N138 og var 41 kg.

 

Við vigtuðum 10 lömb og meðalvigtin á þeim var 44 kg.

 

Svo eru göngur á morgun smiley

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

12.09.2024 14:34

25 lömb heim í gær

Við fengum 25 lömb í gær. Við vigtuðum þau í morgun og

vigtin er bara góð á þeim. Meðalvigtin á þessum 25 lömbum

var 46.1 kg.

Hrútur undan 23-050 Baddý og 23-726 Pixa. Hann var 47 kg.

Hann er með arfgerðina N138. Hann gekk undir 22-022 Skútu

Hrútar undan 21-009 Valíu og 23-722 Brútusi. Þessi sem er

meira flekkóttur var 50 kg og er með T137. Hinn var 46 kg.

Við þurfum að skoða þennan betur til ásetnings. Hann er

álitlegur

Gimbur undan 19-444 Höpp og 23-724 Arró. Hún var 42 kg.

Hún er með N138. Hrúturinn á móti henni var 51 kg. og er

með ARR og N138

Hrútur og gimbur undan 19-469 Æðey og Brútusi.

Hrúturinn var 53 kg. og gimbrin 45 kg. Hrúturinn er T137

Hrútur undan 19-474 Þebu og Arró. Hann var 50 kg. og er

með ARR

Bræðurnir undan Valíu

Hrútur undan 20-521 Offu og Brútusi. Hann var 52 kg. og er

með arfgerðina T137

Gimbrin á móti var 39 kg. og er með T137

Þessi fæddist sem gimbur. Við tókum eftir því í vor að það 

komu hrútshorn á hana. Það er ódæmigert kyn á þessu

lambi. Það var 41 kg. með T137 og er undan 20-514 Dendý

og 23-720 Valver

Gimbur undan 22-109 Ágústu og Brútusi. Hún var 43 kg.

þegar við vigtuðum lömbin hér heima, 7. september. Hún

er með arfgerðina C151

Búið að gera vagninn klárann og meiri segja ná í eina ferð

með lömb hingað. Simmi var okkur innanhandar við 

aksturinn heart

Nú erum við komin með nokkra unga. Guðrún Helga var

að unga út Easter Egger eggjum. Við verðum með þá til að 

byrja með eða alveg. Veit ekki alveg, en kannski verðum við

með nokkrar. Þetta eru 15 ungar, en það verða ekki allt

hænur úr þessu. Það verða nokkrir hanar

Við erum með einn vinnumann sem ætlar að sjá um þá. Hann

eyðir miklum tíma í að horfa á og spjalla við þá

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

11.09.2024 20:08

Nokkur lömb komin heim

Við keyrðum að réttinni, til að athuga hvort það væru komnar

kindur í ganginn. Það voru nokkrar kindur í ganginum

 

Við fórum á vinnubílnum og rákum kindurnar í réttina

Við áttum nokkrar kindur. Þarna er Valía með hrútana sína.

Annar þeirra var í blogginu í gær. Þessi flekkótti. Gaman að

sjá lömbin sem komu í dag

19-444 Höpp kom. Hún er með hrút og gimbur undan

23-724 Arró. Hrúturinn er ARR og N138

20-514 Dendý með tvo hrúta undan 23-720 Valver. Hvíti

hrúturinn er með T137

19-469 Æðey mætti með lömbin sín. Þau eru undan

23-722 Brútusi. Hrúturinn er T137

22-024 Mantra og gimbrin hennar undan 23-721 Fastusi.

Hún er með H154

16-270 Sif með gimbur undan 23-035 Lensu og 23-723

Ratipong (þessi hvíta). Hún er með T137. Svarta gimbrin er

undan 17-363 Garúsku og 23-725 Dúdda og gengur undir

Sif

Kerran tilbúin að breytast í fjárflutningakerru

Klár í fjárflutning

 

Við ætlum að vigta lömbin á morgun

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 



clockhere

Nafn:

Birgitta Lúðvíksdóttir

Farsími:

820-7756

Afmælisdagur:

23. júlí, 1962

Heimilisfang:

Möðruvellir 3

Staðsetning:

Hörgársveit

Um:

Áhugamanneskja um sauðfjárrækt. Er með kindur á Möðruvöllum í Hörgársveit

Einar Breki, kom í heiminn

atburður liðinn í

14 ár

3 mánuði

6 daga

Haukur Nói, kom í heiminn

atburður liðinn í

11 ár

5 mánuði

8 daga

Birgitta Ósk, kom í heiminn

atburður liðinn í

3 ár

11 mánuði

6 daga

Tenglar

Eldra efni