
|
Flettingar í dag: 4928 Gestir í dag: 27 Flettingar í gær: 7715 Gestir í gær: 76 Samtals flettingar: 1844741 Samtals gestir: 82546 Tölur uppfærðar: 2.4.2025 06:33:35
27.05.2023 18:46
 |
Tveir vendir til styrktar Smáranum
 |
Það byrjar snemma
 |
Hörku bardagi
 |
 |
Saltsteinninn alltaf vinsæll
 |
Þrílembingar undan 18-436 Hlökk og 19-597 Ótta
 |
Systurnar 22-019 Krukka og 22-018 Kópelía með lömb undan
22-711 Flóna
 |
Kópelía
 |
Gimbur undan 22-022 Skútu og 22-711 Flóna
Jæja það er búið að vera gott veður hér í dag. Ekkert varð úr
þessu vonda veðri sem átti að koma
Molinn kveður
|
|
|
|
|
|
|
|
|
26.05.2023 18:42
 |
Gimbur undan 15-204 Fleytu og 22-717 Vívalda. Hún er með
arfgerðina T137. Við tókum sýni úr 146 lömbum. Það komu
eitthvað á milli 30 og 40 lömb með T137 og eitthvað á eftir
að bætast við, því það á eftir að koma greining úr nokkrum
sýnum. Við fengum eina gimbur sem er með arfgerðina ARR
 |
Að fá sér brauð
 |
Já það tókst
 |
Gimbrar undan 20-506 Marey og 22-712 Króla
 |
Gimbrar undan 22-019 Krukku og 22-711 Flóna
Og enn verður brjálað veður
 |
 |
Vonandi fer veðrið að skána
Molinn kveður
|
|
|
|
|
|
|
25.05.2023 15:02
 |
17-330 Stássa með hrúta undan 22-714 Ægi
 |
16-279 Bytta með gimbrar undan 22-717 Vívalda
 |
Við settum lambær út í dag. Nú eru bara 4 lambær inni
 |
Þær voru ánægðar með græna grasið
 |
20-504 Marey með gimbrar undan 22-712 Króla. Hún var
þrílembd og átti líka hrút sem fór undir 18-397 Dáfríð
 |
Hrútur og gimbur undan 16-287 Mollu og 19-597 Ótta
 |
Gimbrar undan 22-016 Sögu og 22-711 Flóna |
|
 |
Gimbrar undan 22-026 Mörtu og 22-711 Flóna
 |
Hrútar undan 17-346 Potu og 19-597 Ótta
 |
Hrútur og gimbur undan 20-500 Musku og 22-712 Króla
 |
22-012 Gorma litla að stækka
 |
Hrútur undan 16-278 Seiglu og 20-604 Grilli og gimbur undan
18-423 Þyrlu og 20-603 Sagosen. Seigla var einlembd og
gimbrin var vanin undir hana
 |
20-519 Sylla með gimbrar undan 22-715 Vísi. Hún var þrílembd
og þriðja lambið, gimbur var vanin undir17-355 Þín
 |
Gimbrar undan 20-522 Glósu og 22-712 Króla. Hún var
þrílembd og var þriðja lambið, gimbur vanin undir 22-027
Loppu
 |
Hrútur og gimbur undan 18-416 Aníku og 20-604 Grilli
 |
Gimbur undan 17-357 Dimitríu og 22-714 Ægi. Hún gengur
undir 20-491 Santínu
 |
Molinn kveður
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
24.05.2023 15:03
 |
Þessa mynd tók ég um hádegi í dag. Hvíta línan var miklu
neðar í morgun. Veðrið í dag er bara búið að vera
þokkalegt. Vonandi fer þetta nú að lagast
 |
Kindurnar og lömbin bera sig bara vel í þessu veðri sem
búið er að vera. Þetta er Hexía með lömbin sín
 |
Gimbrar undan 19-444 Höpp 19-597 Ótta
 |
Gimbur undan 18-416 Aníku og 20-604 Grilli
 |
Hrútar undan 18-426 Maríku og 20-603 Sagosen
 |
Gimbur undan 15-214 Snjáku og 22-717 Vívalda
 |
Alltaf gaman að gefa brauð
Molinn kveður
|
|
|
|
|
|
|
23.05.2023 19:35
 |
Þórður að taka sýni og marka síðasta lambið
 |
Já síðasta lambið að sinni
 |
Kindurnar leita mikið í þennan litla skóg. Þær fá skjól þarna
fyrir veðrinu sem búið er að vera og er enn
 |
24 nætur í gamla hjólhýsinu. Það stendur enn fyrir sínu
 |
Gul viðvörun í dag og á morgun. Sumarið kemur seinna
Molinn kveður
|
|
|
|
|
22.05.2023 19:26
 |
Jæja loksins bar síðasta ærin. Hún var sónuð með tvö, en hún
kom með þrjú.
Lömbin eru þá orðin 270
124 hrútar og 146 gimbrar
Og 24 nætur í fjárhúsunum. Nú sef ég heima í nótt 
 |
Gimbrar undan 17-369 Babúsku og 20-603 Sagosen. Þær voru
ánægðar að komast inn þegar veðrið var vont í nótt
 |
Gimbrar undan 16-298 Búbbu og 19-597 Ótta
 |
Þessi grái gemlingur fór á fjall með þetta lamb, í fyrra, en
skilaði sér ekki í haust. Nú er búið að sjást til þeirra, móðirin
með tvö lömb og dóttirin með eitt lamb. Þau skila sér vonandi
núna í haust
 |
Maríuerlan alltaf falleg
 |
 |
Tveir af okkar strákum, fóru í skólaferðalag til
Reykjavíkur, í morgun. Þeir koma til baka á
fimmtudaginn. Hér er Damian í keilu. Þessi ferð
verður mikið upplifelsi fyrir hann
Molinn kveður
|
|
|
|
|
|
|
21.05.2023 18:14
 |
Það bar ein ær í morgun og þá er bara ein eftir. Hún ætlar
mér að sofa í fjárhúsunum 24 nætur
Lömbin eru 267
123 hrútar og 144 gimbrar
Enn er rok. Það dettur niður í smá tíma og kemur svo aftur.
Ég er að verða leið á þessu. Mig langar í logn 
 |
Verktaki (Hlynur) kom og bar á restina hér heima. Stykki 1 og
flagið (stykki 2). Svo bar hann á niður á engi, stykki 6. Þá er
búið að bera á allt hjá okkur
Molinn kveður
|
|
20.05.2023 16:28
 |
Jæja það bar ein í dag og þá eru þær bara tvær eftir. Alveg
að taka enda þessi sauðburður. Ég er búin að sofa 22 nætur
í fjárhúsunum og nú er það spurning hvort næturnar verði
23 þennan sauðburð. Þessar tvær sem eftir eru, eiga tal í
dag. Ef þær bera ekki í kvöld, þá þarf ég að vakta þær í nótt
Lömbin orðin 265
122 hrútar og 143 gimbrar
Það er búið að vera rok síðan í gærkvöld. Kviðurnar fóru í
32 m/s um níuleitið í morgun. Það er ekki gaman að taka
mydnir í svona roki. Vonandi fer að lægja. Það ríkur vel úr
öllum flögum hér í sveitinni og vonandi verður ekki tjón af
því
Molinn kveður
|
19.05.2023 16:52
 |
Nú eru aðeins 14 ær inni, 11 lambær og 3 óbornar
 |
Þessar þrjár eru óbornar. Þær eiga allar tal á morgun. Þá
líkur sauðburði
 |
Gimbrar undan 19-469 Æðey og 20-892 Austra
 |
Gimbur undan 20-493 Hjörný og 22-715 Vísi
 |
Gimbrar undan 15-215 Þernu og 22-717 Vívalda
Nú eru 3 óbornar
Lömbin orðin 263
121 hrútar og 142 gimbrar
Molinn kveður
|
|
|
|
|
18.05.2023 18:23
 |
Þetta er nú meiri kindin. Hún var ekki alveg viss með lömbin
sín hvort hún ætti að stanga þetta eða hitt. Hún var alveg
vilt í nokkra daga eftir að hún bar. Hún varð svo sátt við þau
þegar við settum hana með öðrum kindum. Þá þurfti hún
að verja þau. Hún lét svona líka í fyrra. Mjög skrítið. Núna
er hún sátt við þau. 16-280 Glitbrá með gimbrar undan
20-603 Sagosen
 |
20-500 Muska með hrút og gimbur undan 22-712 Króla
 |
Gimbur undan 17-370 Karþagó og 19-597 Ótta. Þarna sést
hvernig búið er að réttast úr eyranu. Þegar merkin eru sett í,
þá hanga eyrun, en svo með tímanum réttast þau
 |
17-364 Þóra að gæða sér á brauði
 |
Og þessi hrútur líka undan 16-305 Elinóru og 22-717 Vívalda
 |
Maríuerla að undirbúa hreiðurgerð
 |
Auðnutittlingur
 |
Starinn ákvað að gera sér hreiður í dráttarvélinni. Þórður er
búinn að vera að rúnta með eggin og svo núna ungana.
Hann hefur bara tekið þessu rólega greyið. Þórður hefur
samt reynt að nota þessa vél eins lítið og hægt er
 |
Starinn að gefa ungunum orma
5 ær eftir
Molinn kveður
|
|
|
|
|
|
|
|
|
17.05.2023 18:35
 |
Við fórum upp í fjall til að gera við fjallsgirðinguna. Það þurfti
að gera við í ánni og lægðinni norðan við hana
 |
 |
Veðrið var mjög gott í dag. Við opnuðum hliðin þannig að
núna kemst féð upp í fjallshólf. Allt opið og féð kemst um allt
6 ær eftir
Molinn kveður
|
|
|
16.05.2023 18:05
 |
Við settum lambærnar út í morgun. Núna eru óbornu ærnar
inni og ær með yngstu lömbin
 |
Þær voru ánægðar að komast út
 |
Systkinalúr
 |
Gemlingarnir voru líka ánægðir að komast út.
Þetta er 22-022 Skúta með gimbur undan 22-711 Flóna
 |
22-019 Krukka með gimbrar undan Flóna
Nú eru 8 eftir að bera
Molinn kveður
|
|
|
|
|
15.05.2023 18:43
 |
Strákarnir á Möðruvöllum 3 að bíða eftir skólabílnum
 |
Það er misjafnt uppeldið hjá kindunum. Sumar þeirra eru
með lömbin algjörlega hjá sér
 |
En aðrar ráða ekkert við þau. Þau láta mömmurnar ekkert
segja sér að liggja kyrr, meðan þær borða
 |
Það hefur ekki komið þetta vonda veður eins og spáð var.
Það kom smá hríð í morgun en ekkert meira. En það er frekar
kalt. Við ætlum að setja ærnar út á morgun
 |
Það eru allar einstaklingsstíurnar fullar, núna þegar allar
ærnar eru inni. Við bjuggum til smá pláss í hlöðunni fyrir
nokkrar lambær
 |
Fullur garðinn af lömbum
 |
Það eru 13 ær eftir að bera
Komin 248 lömb, 111 hrútar og 137 gimbrar
Molinn kveður
|
|
|
|
|
|
|
14.05.2023 17:53
 |
Jæja nú er spáin ekki góð fyrir morgundaginn
 |
Það á að snjóa
 |
 |
Óbornu ærnar
 |
Við ákváðum að setja allt lambféð inn og hýsa það þar til á
þriðjudaginn, til öryggis ef veðrið verður vont
 |
Þær hafa það nú gott þó þær þurfi að vera inni
 |
 |
Allt fullt inni í hlöðu
 |
Þetta verður betra þegar veðrið er gengið yfir
 |
Verið að sá í flagið. Robbi sá um það
20 ær eftir
233 lömb, 102 hrútar og 131 gimbrar
Molinn kveður
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
13.05.2023 16:00
 |
Við settum ærnar út í morgun, þær sem við settum út og
aftur inn í gær. Þær eru búnar að vera í góðu veðri í dag, en
svo fór að rigna seinnipartinn og við settum þær inn. Það á
að vera leiðinlegt veður á morgun og mánudaginn. Við
setjum ekkert meira út í bili
 |
Það eru 23 ær eftir
Það eru komin 226 lömb, 98 hrútar og 128 gimbrar
Ég verð að fara að hvíla mig, því ekki gat ég það í nótt. Vonandi
bera þær ekki í nótt, en mega byrja strax kl. 7 í fyrramálið 
Já ég verð að fá að sofa eitthvað 
Molinn kveður
|
|
|
|

|
 |
|
 |
|

clockhere Birgitta Lúðvíksdóttir 820-7756 23. júlí, 1962 Möðruvellir 3 Hörgársveit Áhugamanneskja um sauðfjárrækt. Er með kindur á Möðruvöllum í Hörgársveit Einar Breki, kom í heiminn atburður liðinn í 13 ár 6 mánuði 18 daga Haukur Nói, kom í heiminn atburður liðinn í 10 ár 8 mánuði 21 daga Birgitta Ósk, kom í heiminn atburður liðinn í 3 ár 2 mánuði 19 daga Tenglar
|
|
 |
|
 |
|

|