Þriðji dagurinn í skíðaskólanum var í dag. Þetta er bretta
hópurinn, blái
Guli hópurinn
Rauði hópurinn
Græni hópurinn
Það var bara ágætis veður. Sólin var að reyna að brjótast í
gegnum skýin.
Á morgun verður útivistardagur Þelamerkurskóla og þá
fara allir nemendur og starfsfólk skólans í fjallið
Molinn kveður
Damian tók þátt í mótinu aftur í dag og þetta er lokastaðan
Krakkarnir sem mættu á mótið í dag
Veðrið var alveg svakalega flott í dag
Sól, en frekar kalt. Frostið fór í 19 stig kl. 2 í nótt
Strákarnir í snjókasti
Í 10 stiga frosti. Það virkaði nú ekki kalt miðað við það þegar
það er um 20 stiga frost
Ég grillaði í dag í 10 stiga frosti. Ég held að ég hafi nú bara
aldrei borðað svona góðar grillsneiðar. Kannski er það
kuldanum að þakka
Damian á skákþingi Akureyrar. Fjórar umferðir í dag og þrjár
á morgun. Staðan er þessi eftir daginn í dag
Möðruvallakirkja
Það er ekki lengur auð jörð
Komin smá föl yfir allt
Bubbi og strákarnir í körfuboltanum hjá Þór, lögðu af stað
í morgun, í keppnisferð til Reykjavíkur. Ferðin endaði nánast
áður en hún byrjaði. Til allra hamingju varð ekki alvarlegt
slys
Þetta hefði getað farið verr
Ég fór í fjallið í dag. 1. - 4. bekkur Þelamerkurskóla var í
skíðaskólanum. Veðrið var allskonar í dag
Meðal annars sól
Svo var mikil snjókoma
Krakkarnir stóðu sig vel á skíðum/bretti
Ég frétti að þessir gullmolar (ömmu gull) yrðu í fjallinu í dag.
Það var útivistardagur hjá Hrafnagilsskóla og þeir eru í þeim
skóla. Ég ákvað að fara og hitta þá þar, því ég var hvort eð er
að fara í fjallið þar sem 1. - 4. bekkur Þelamerkurskóla fóru í
skíðaskólann.
Ég var mætt uppúr kl. 10 og var með þeim, ömmu gullunum,
þangað til Þelamerkurskóli mætti.
Alexander mættur í fjallið og fór í græna hópinn
Svona skyggni var í morgun, en svo breyttist það og varð
bara í góðu lagi
Blái hópurinn (bretti)
Góður dagur í fjallinu í dag
Þetta er áttunda árið sem ég tek þátt í skíðaskólanum (hjálpa
krökkunum í skíðaskó og í skíðin, til að þau komist sem fyrst
í kennsluna).
Þelamerkurskóli býður krökkunum í 1. - 4. bekk skíðakennslu
í fjóra daga. Í framhaldi af þeim dögum, þá er útivestardagur
og þá fara allir nemendur og starfsmenn skólans í fjallið.
Algjör snilld hjá flottum skóla
22-020 Skel. Þessi mynd er tekin 13. október '22
Og þessi mynd af Skel er tekin í dag, 7. mars. Hún er komin
með hornahlaup. Gimbrarnar eru orðnar mjög þroskaðar
Skel
22-025 Monika
18-393 Klanka
15-215 Þerna
16-291 Rakel
Smá útivera og göngin skoðuð
Tveir í útiveru
Sólin að brjótast í gegn
Stararnir komnir í heimsókn í garðinn okkar
Þeir hópuðust saman til að éta eitthvað sem þeir fundu. Ég
veit ekki alveg hvað það var
Þeir voru líka við bílskúrinn, að éta eitthvað þar
Ég er búin að gefa þeim epli, brauð, fitu og korn
Þeim finnst eplin góð
Allar myndirnar af Staranum tók ég hér út um glugga
Svartþrastarkerling sem ég hitti í Lystigarðinum
Auðnutittlingur í Lystigarðinum í dag
Vinnumennirnir okkar
Síðasti snjórinn í garðinum. Það breytist nú á næstu dögum
Flugvél sem sveif yfir okkur á Akureyri í dag
Við fórum á Sauðárkrók í dag, í sextugsafmæli hjá mági
mínum
Þessi eðal drengur verður 60 ára 7. mars. Hann bauð í
dýrindis veislu í dag. Til hamingju með stórafmælið
Einar minn og takk fyrir okkur í dag
Ég náði mynd af þessum fuglum í dag, Krossnef. Þessi
appelsínuguli er karlfugl
Og þessi grái er kvennfugl. Ég held það allavega
Krossnefur (karlfugl)
Krossnefur (kvennfugl)
Þessi Auðnutittlingur var að spá í hvað ég væri að gera
Glókollur. Enn næ ég ekki góðri mynd af honum. Hann er
með svo snöggar hreyfingar, að það er erfitt að sjá hann
Glókollur
Auðnutittlingur
Svartþrastarkerling
Smá flug í dag. Allt snjólaust. En það breytist nú um og eftir
helgi
Já allt snjólaust
22-021 Kotra er með þrjú
22-019 Krukka er líka með þrjú
Stari í garðinum okkar
Auðnutittlingur líka í garðinum hjá okkur. Hann er merktur, en
ég næ ekki að lesa á merkið
Einu sinni var hægt að kaupa blöðkumerki (lambamerki) hjá
Plastiðjunni Bjargi. Við notfærðum okkur það. Þeir hættu svo
með þessi merki þannig að við þurftum að skipta yfir í þessi
litlu merki. Það kostar það að það þarf svona nánast að taka
og skoða merkið í eyra lambsins á haustin þegar verið er að
vigta, til að sjá númerið í lambinu
Við ákváðum að fara okkar eigin leiðir í þessum málum og
keyptum fullorðinsmerki sem ekki var búið að prenta á,
klipptum neðan af þeim og skrifuðum númerið á þau.
Blöðku merkin fara í hægra eyrað á lambinu, en litlu merkin
(þessi fyrir ofan) fara í vinstra eyrað. Bæjarnúmerið er á
litlu merkjunum. Það verður allt annað að vinna við vigtun
á lömbunum í haust
Hér sést munurinn á merkjunum. Þessi í miðjunni eru heil,
en þessi til hliðar eru orðin styttri
Hér sést þetta aðeins betur
Ég held að þetta verði algjör snilld
Ég fór í Lystigarðinn í dag og tók þessar myndir af Svartþresti
Karlfugl
Svo fallegur
Og ég held að þetta sé kvennfugl
Svartþrastarkvennfugl
Svo fallegur fugl
Hann hefur nú oft verið stærri, skaflinn, sunnan við hlöðuna.
Núna er þetta bara smá snjór sem eftir er. Þegar hann er
farinn, þá þornar allt við fjárhúsin Það er heldur ekki mikill
snjór í fjallinu
Fjárhústúnið orðið autt, nema þarna neðst. Þar er smá
tjörn sem hlýtur að fara að hverfa
Það var svo mikið vorveður í dag, 10 stiga hiti
Himininn í morgun
Við tókum þrílemburnar og settum þær saman, í sitthvora
króna. Hyrndar saman og kollóttar saman
Við tókum líka þessar tvær geldu ær og settum þær hjá hrút.
Já smá tilraun að sleppa við haustlömbin. Það er þá betra
að þær beri í sumar en í haust
Nafn:
Farsími:
Tölvupóstfang:
Afmælisdagur:
Heimilisfang:
Staðsetning:
Um:
Einar Breki, kom í heiminn
atburður liðinn í
13 ár
6 mánuði
18 daga
Haukur Nói, kom í heiminn
10 ár
8 mánuði
21 daga
Birgitta Ósk, kom í heiminn
3 ár
2 mánuði
19 daga
Eldra efni
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is