Við fórum eina ferð, bæði með kerruna og vagninn,
í dag. Við ætluðum að klára, en ákváðum að skipta restinni
niður á tvo daga. Við klárum þetta á morgun
Þær eru frelsinu fegnar
Molinn kveður
Gleðilegan þjóðhátíðardag kæru síðuvinir
Við fórum á bílasýningu hjá Bílaklúbbi Akureyrar, í dag
Tveggjasæta Farmall
Lítill bíll
Þessi er svakalegur
Stór dagur í dag. Við fórum tvær ferðir með vagninn. Þá er
þetta hálfnað. Við keyrum þrílemburnar ekki á fjall, fyrr en
um mánaðarmótin
Þessar bíða eftir frelsinu
Við vorum með öfluga drengi með okkur í þessu
Við tökum frí á morgun, en ætlum að klára á sunnudaginn
Verið að ganga frá endum og merkja rúllur
Þeir voru byrjaðir fyrir kl. 8 í morgun
Þegar búið var að merkja og ganga frá endum, þá keyrði
Þórður rúllunum heim
Hér eru þær komnar í stæðu, litla stæðu
Hitinn fór í 21,6 um hádegi í dag. Strákarnir fóru í sundskýlu
og fóru í vatnsbyssuslag. Skemmtilegt hjá þeim
Vélin klár með fjárvagninn, fyrir morgundaginn. Við ætlum
að fara fyrstu ferðina á morgun
Við fórum í fjórhjólaferð niður á engi, í svakalega góðu veðri
Allir á hjólum
5 hjól
Kríu ungi
Ég held að þetta séu kríu egg
Verið að skoða egg og unga
Á leiðinni heim
Gæsir með 6 unga
Gæsaungi
Kría
Lómur
Sandlóa
Spói
Óðinshani
Auðnutittlingur
Þórður að raka saman fyrir rúlluvélina
Verktaki (Vignir) kom og rúllaði fyrir okkur
Á stykki 8 voru 21 rúllur
Og auðvitað gáfum við kindunum brauð
Þær kalla á okkur þegar þeim langar í brauð
Flottur hrútur undan Sif og Austra
Gimbur og hrútur undan 15-244 Ræmu og 20-604 Grilli
Gimbrar undan 20-522 Glósu og 22-712 Króla
Glósa var þrílembd og þetta er þriðja gimbrin sem var vanin
undir 22-027 Loppu. Þessi mynd af henni er tekin 29. maí
Sláttur hafinn hjá okkur. Þórður að slá
Svo þurfti að slá kantinn með orfi. Samt ekki mikið, því Simmi
sló kantinn í gær og gerði það vel
Við þurftum líka að raka
Þetta er stykki 8, en það er ekki stórt
Kanturinn orðinn flottur
Þórður snéri einu sinni í dag
Nokkrar kindur að sníkja brauð
Búnar í brauðáti
Þórður að gera klárt fyrir slátt á morgun
Hrútur undan 20-514 Dendý og 22-712 Króla
Lömb undan 20-506 Marey og Króla
Hrútur. Mynd tekin 27. maí. Hann gengur undir 16-270 Sif
Gimbur. Mynd tekin í dag, 12. júní
Hrútur undan 18-439 Hildu og 22-717 Vívalda. Hann ætlar
að verða öngulhyrndur eins og faðirinn. Hann ber arfgerðina
T137
20-521 Offa með hrút og gimbur undan Króla
6 lömb eftir að mynda. Ég náði tveim í dag
Þrílembingar undan 20-496 Fnjósk og 22-715 Vísi
Hrútur
Gimbur
Það eru 14 ær sem ganga með þrjú lömb, fimm ær sem
ganga með eitt og þrjár sem eru geldar
Tveir gemlingar ganga með eitt, einn geldur og restin með tvö
Þessar einstaklingsstíur voru teknar niður í dag
Gólfið úr stíunum
Búið að taka allt niður og á eftir að taka gólfið úr þeim út
Og hlaðan orðin fín eftir sauðburðinn. Við settum garðana
upp, þarna í endanum, því við þurfum ekki að nota þessa
aðstöðu í hlöðunni. Við verðum með færra næsta vetur og
nóg pláss í fjárhúsunum
Nýja hjólið sem við keyptum í gær. Við vorum að stækka
hjólið fyrir minsta stubbinn. Þetta er aðeins stærra en hjólið
sem hann hefur verið að keyra
Hann er mjög ánægður með þetta hjól. Hann er svo flinkur
að keyra
Hjólaflotinn okkar
Auðnutittlingur, kvenfugl. Við erum enn að gefa þeim
Karlfugl
Ungur auðnutittlingur
Aðeins að gefa brauð
Lömbin tæta brauðið í sig
Hrútur undan 16-270 Sif og 20-892 Austra. Hann er með
arfgerðina T137
19-490 Skák með gimbrar undan 19-597 Ótta
Hrútur (sv.fl) undan 20-523 Þyrý og 22-715 Vísi og gimbur
(mófl) undan 17-370 Karþagó og 19-597 Ótta
Strákarnir grilluðu beikon og hamborgara í hádeginu og vá
hvað maturinn var góður
18-409 Elíza með hrút og gimbur undan 17-861 Fjalla
Hér er Fnjósk með tvær gimbrar og einn hrút
Ég náði nokkrum lömbum í dag í myndatöku. Nú eru 8 lömb
eftir. Alveg að hafast
Hrútar undan 17-336 Natalíu og 22-717 Vívalda. Þessi hægra
megin er með arfgerðina T137
Gimbur undan 19-464 Bosníu og 20-603 Sagosen. Hún er
með augnskugga
Forystuhrútur undan 15-236 Hexíu og 17-861 Fjalla
Gimbur undan 17-370 Karþagó og 19-597 Ótta
Ég á eftir að taka myndir af 18 lömbum. Þetta gengur rólega,
en ég held að þetta hafist á endanum
Nú er skólinn búinn og þá byrjar vinnuskólinn. Strákarnir
hjálpuðu okkur í garðvinnu í dag. Myndirnar tala sínu máli
Duglegir strákar
Elsku Fríða, móðursystir mín, lést 20. maí. Hún var jarðsungin
frá Fríkirkjunni í Reykjavík í dag. Blessuð sé minning þín elsku
frænka
Við horfðum í streymi
Í hádeginu ákváðum við að grilla, en gasið kláraðist Ég
þurfti að skella þessu á pönnuna. Það tókst bara vel og
maturinn var góður
Ég losaði 8 poka af brauði á túnið. Eftir smá stund var allt
horfið. Já þær eru brjálaðar í brauð
Lömbin eru líka farin að borða brauð. Það er svo gaman að
ganga innan um féð. Þær róta sér ekki þegar ég labba um
Skólaslit Þelamerkurskóla var í dag. Þrír luku 9. bekk og einn
4. bekk. Nú eru þeir komnir í sumarfrí
Damian fékk framfararverðlaun
Við erum svo stolt af honum
Flottur strákur
Þeir sem ekki sjá þetta, þá stendur þarna:
Sérstök framfaraverðlaun verða í ár veitt nemanda sem hefur
sýnt miklar framfarir í persónuþroska, samskiptafærni og
ábyrgð. Þessi nemandi hefur þurft að læra að takast á við
fjölbreyttar áskoranir í daglegu lífi og hefur í vetur tileinkað
sér margvíslega nýja færni sem mun hjálpa honum mikið í
framtíðinni.
Verðlaun fyrir miklar framfarir hlýtur Damian Jakub Kondracki
Til hamingju elsku Damian
Þórður fór með strákana í fjórhjólatúr niður á engi, meðan
ég tók myndir af lömbum. Ég tók myndir af þeim, þar sem
ég var upp í fjallshólfi. Ekki mjög skýrar myndir enda teknar
af löngu færi
Þeir fundu æðakolluhreiður með ungum í
Hún var ekkert á því að færa sig af hreiðrinu, en gerði það
Hrútar undan 19-476 Lúnu og 22-717 Vívalda
17-358 Pysja með gimbrar undan Vívalda
18-395 Úlla með hrút undan 22-714 Ægi
Það er ekki auðvelt að fá að mynda lömbin hjá þessum hóp.
Yfirleitt er hægt að labba rólega innan um kindurnar og taka
myndir af lömbunum, en það var ekki hægt með þennan hóp.
Þær æddu af stað, upp í skóginn og suðureftir öllu. Ég verð
að læðast að þeim til að ná þessum lömbum. Held að þau
séu eitthvað um 10
18-392 Murta með hrúta undan 20-603 Sagosen
Forystuærnar Hexía og Elíza
Ég náði að mynda 7 lömb í dag. Þá eru eftir 21 lömb
Nafn:
Farsími:
Tölvupóstfang:
Afmælisdagur:
Heimilisfang:
Staðsetning:
Um:
Einar Breki, kom í heiminn
atburður liðinn í
14 ár
1 mánuð
21 daga
Haukur Nói, kom í heiminn
11 ár
3 mánuði
24 daga
Birgitta Ósk, kom í heiminn
3 ár
9 mánuði
22 daga
Eldra efni
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is