Lifeline Lamb & Ewe steinefnastampurinn er einstakur
að sinni gerð þar sem samsetningu hans er ætlað að tryggja
sem best heilbrigði ófæddra lamba og lambánna um leið.
Við erum byrjuð að gefa þetta steinefni
Það vantaði ekki, þær réðust á fötuna
Algjörlega sólgnar í þetta
Það verður fljótt að klárast úr fötunum
Molinn kveður
Enn er auð jörð. Ég vona svo innilega að við fáum þetta ekki
í bakið í vor
Við fengum vin okkar (Gest) til að taka af hornunum á litlu
sumrungunum. Hornin vaxa frekar leiðinlega. Stefna beint
inn í haus. Þeir eru í góðum málum núna
Jæja nú er svo komið með mig, að ég þarf að fá nýtt hné. Ég
var hjá lækni í morgun og þetta var niðurstaðan. Þetta er
hægra hnéð. Ég fer í aðgerð í júní, júlí eða ágúst. Líklegast
verður það í ágúst. Brjóskið er algjörlega búið og það er
bara bein í bein. Ég er svo fegin að þurfa ekki að fara núna
fyrir sauðburð. Ég er ekki viss um að ég hefði þegið það að
fara þá. En þessi tími í ágúst er bestur fyrir mig
Jæja loksins eru ærnar farnar að ganga. Það eru þrjár af
sjö gengnar. Vonandi festa þær fang. Nú er spurning hvort
hinar ganga eða eru fengnar. Ein af þeim á allavega eftir
að ganga, því hún hefur ekki hingað til fest fang.
Þessar þrjár eiga tal 18. og 19. júlí
Fjórir að gera sig klára fyrir fjallið
Veðrið var mjög gott
Sólin að hverfa bak við fjöllin
Þegar strákarnir eru orðnir svona góðir á skíðum og hverfa
upp í fjallið, þá er tími til að fara að hreyfa sig. Ég fékk mér
göngutúr upp að strýtuhóteli
Alveg að verða komin upp
Útsýnið er flott þarna uppi
Stólalyftan
Strýtan
Hótelið við Strýtuna
Kellan komin niður aftur. Góður göngutúr
Komið að heimferð, eftir góðan dag í fjallinu
Jæja ég talaði um það í gær, að fuglarnir hefðu horfið í góða
veðrinu sem kom um daginn. Í nótt kom smá föl og viti menn,
þeir mættu nokkrir í dag. Ég er forvitin að vita hvar þeir
halda sig þegar veðrið er gott.
Ég tók nokkrar myndir
Mikið sem ég sakna fuglanna sem voru hér í garðinum. Þetta
er bókfinka og hún var hér alla daga í einn og hálfan mánuð.
Ekki veit ég hvert þessir fuglar fara. Þeir koma og fá korn
þegar veðrið vesnar. Veðrið er búið að vera svo gott að þeir
hurfu allir. Kannski koma þeir aftur til okkar þegar byrjar að
snjóa
Gimbrarnar eru orðnar svo flottar, enda éta þær mikið
Eins og ég sagði í bloggi, 14. febrúar, þá settum við geldu
ærnar hjá hrút. Þær eru búnar að vera hjá honum í 10 daga
og það hefur engin gengið ennþá. Ég kíki alltaf annað slagið í
myndavélina og hef ekki orðið vör við að þær séu að ganga.
Gangmálið er nú ekki búið enn og kannski eiga þær eftir að
ganga. En svo getur verið að þær séu fengnar. Að þær hafa
fengið seint, þannig að það hafi ekki sést í sónarnum. Ég
veit samt að ein þeirra á eftir að ganga, því hún er búin að
ganga oft og ekki fest fang. Hún er líklegast ónýt. En það
verður spennandi að sjá hvort þær hinar, eigi eftir að ganga.
Það kemur í ljós í byrjun mars
Unnar kom og tók snoðið af kindunum
Við vorum með hörku lið með okkur og þetta gekk mjög vel
Nafna mín og mamma hennar komu í heimsókn í fjárhúsin
Nafna mín að tala við frænda sinn
Egedía að fylgjast með mér. Það munar ekki miklu að hún
verði gæf. Ég gaf henni klapp eftir að snoðið var tekið af
henni, og hún kvartaði ekki
Gemlingar
Fullorðnu ærnar
Gemlingarnir
Ég fór með þrjá í fjallið í dag
Klárir í brekkurnar
Það er frekar snjólétt í fjallinu
Það er alveg nauðsynlegt að hafa með sér nesti
Smá slökun áður en haldið er áfram á skíðum
Það á að taka snoðið af kindunum á morgun
Það er eins og síðustu daga, mjög gott veður
Allt autt
Við fórum í Kjarnaskóg í dag. Þar eru listaverkin ennþá um
allan skóg
Og þessir mættir á svellið í skóginum
Þetta er eitt listaverkið af mörgum. Ömmu og afa strákurinn
okkar gerði þetta fyrir nokkrum árum
Við hittum líka þá sömu og voru í Hálsaskógi í gær
Þeir hljóta að elta okkur
Það er þónokkur klaki á göngustígunum í Kjarna. Ekki gott
að ganga þar
Þessi minnisvarði er þar
Í minningu Ármanns Dalmannssonar, Skógarvarðar, sem hóf
hér skógrækt árið 1947
Við fórum líka í Lystigarðinn og þessi varð á vegi mínum.
Svartþrastarkerling
Þrír að leika sér og einn á skákæfingu
Við fórum í göngutúr í Hálsaskógi, í dag. Við rákumst á
nokkra úlfa á leið okkar um skóginn
Alveg svakalegir úlfar
Þeir urðu fljótt vinir okkar og slógust í hópinn
Auðvitað voru tekin nokkur dansspor á ísnum
Þessi steinn er við göngustíginn og þar er búið að setja
lítinn álf
Flottur þessi litli álfur
Við heyrðum í fuglum, en sáum engann
Ég tók nokkrar myndir af tunglinu í morgun
Tunglið er frekar eins og sólin þarna. Ég tók þessar myndir
á símann
Tveir á skautum og tveir í golfi
Golfsveifla
Leikur á svelli
Veðrið þessa dagana. Vá!! Bara vorveður. Það er eins gott að
við fáum þetta ekki í bakið seinna
21. apríl eiga tal, tvær þrílembur, fimm tvílembur og
ein einlemba. Vonandi tekst að venja undir þessa
einlembu
22. apríl eiga tal, fjórar þrílembur, tvær tvílembur og
einn tvílembdur gemlingur
23. apríl eiga tal, tvær þrílembur, tvær tvílembur,
ein einlemba og einn einlembdur gemlingur
Þetta verður gaman
Nafn:
Farsími:
Tölvupóstfang:
Afmælisdagur:
Heimilisfang:
Staðsetning:
Um:
Einar Breki, kom í heiminn
atburður liðinn í
13 ár
6 mánuði
18 daga
Haukur Nói, kom í heiminn
10 ár
8 mánuði
21 daga
Birgitta Ósk, kom í heiminn
3 ár
2 mánuði
19 daga
Eldra efni
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is