Nú styttist í fósturtalningu. Hún verður uppúr 15. febrúar.
Spenningur?? Já
Molinn kveður
Jæja nú er þetta allt að koma hjá Þórði. Hann fékk sýkingu um
daginn og fór á sýklalyf. Núna er þetta allt að koma. Farinn
að geta notað hendina, sem hann gat ekki gert þegar sýkingin
kom. Það á að taka saumana á föstudaginn og þá verður
þetta mun betra fyrir hann
Nafna mín er búin að gista tvær nætur hjá okkur. Hún fór
með mér í fjárhúsin í morgun. Hún hitti Elízu og gaf henni
brauð
Mjög sátt
Svo er áhuginn á stöfum mikill
Hún skrifaði þetta. Ekkert smá flott hjá henni. Bara ný orðin
4 ára
Hún fór svo á fótboltaæfingu
Hún stóð sig vel og nú er hún farin heim
Fullt tungl í dag. Mynd tekin í morgun
Mynd tekin í kvöld. Ský fyrir tunglinu, þannig að það sést
ekki allt
Ný orðin 4 ára og farin að hafa áhuga á stöfum
Við fórum á svellið í dag. Frekar kalt
Mjög dugleg á skautum
Sólin farin að skína og hita smá
Sólin skín
Það er mikið búið að vera úti að leika í dag. Strákarnir komnir
með hokký kylfur og pökk
Ég var að kenna nöfnu minni á skauta. Þeir eru að vísu alltof
stórir á hana. Hún þyrfti að fá þá minni
Hún var dugleg að æfa sig
Allir að leika sér
Svo kom þessi flotti regnbogi
Komnir 8 dagar frá aðgerð hjá Þórði. Aðgerðin sem gekk vel
er að virka. Dofinn er horfinn úr hendinni.
Hann fékk að vísu sýkingu í sárið, í dag. Hann fór til læknis
og fékk sýklalyf. Nú er bara að vera þolinmóður og bíða þar
til sárið grær. En þvílíkur munur fyrir Þórð að hafa ekki dofa
í hendinni
25-102 Kládía. Mynd tekin 16. maí 2025
Kládía, undan 22-019 Krukku og 23-720 Valver. Mynd tekin
29. september 2025
Kládía. Mynd tekin 15. janúar 2026. Hún er þrílembingur
Þetta er mamma hennar, Krukka
Hún var þrílembd gemlingur 2023
Fjórlembd tveggjavetra 2024
Og þrílembd í fyrra 2025
Hún er búin að eiga 10 lömb á þremur árum
Hún er dökkmóflekkótt. (Sýnist vera svört á þessari mynd)
Tunglið í kvöld. Tekið á símann
Strákarnir fóru aftur á skautasvellið og léku sér
Bara gaman
Tunglið í dag. Mynd tekin á símann
Allt gott að frétta úr fjárhúsunum
Smá útivera. Komið flott svell á túnið. Strákarnir kunna að
meta það
Þetta er ekki stórt svell, en hægt að skauta á því, já og
hlaupa
Æi, það var ein að ganga upp 24. janúar. Þá er burðardagur
hjá henni 16. júní. Hún hefur verið að láta, því hún gekk
3. desember og hefur ekki gengið síðan, fyrr en í fyrradag.
Ætli hún verði ekki sónuð geld, vegna þess að það verður
liðinn of stuttur tími frá fangi
Mynd tekin kl. 11:11 í morgun
Mynd tekin kl. 11:35
Mynd tekin kl. 14:45
Og þessi líka kl. 14:45
Jæja loksins sólarpönnukökur
Dágóður stafli sem tekið var vel á
Tekið vel á pönnukökunum
Víkingur spilaði æfingarleik við 5. flokk kk Þórs (hann er í
6. flokk) Þeir töpuðu 5 á móti 6 mörkum
Við fórum og horfðum á leikinn
Tunglið í dag. Tekið á símann
Nafna mín gisti eina nótt hjá okkur. Gaman að hafa hana
hjá okkur
Og nú er hún farin heim sem Píla
Sund á Þeló og ís á eftir
Svo var farið á leiksvæðið við skólann
Mjög gaman hjá þeim
Sólin komin alveg í ljós. Ég bakaði vöfflur í dag. Ég verð að
baka pönnukökur seinna. Ég hafði ekki tíma í það núna
Bóndadagur Ég á fjóra. Þórður sveiflaði sér í Avantinn og
setti upp rúllu. Hann getur allt einhentur Hann ber sig
vel og kvartar ekkert
Ég færði þeim bóndadagsgjöf. Lego var það
Þeir voru mjög ánægðir með gjafirnar
Svo fengu þeir líka segul dót. Hægt að setja saman
Þórður fór í aðgerð á hendi, í dag. Það var verið að laga, eða
vonandi laga dofa sem hann er búinn að vera með í mörg
ár. Hann er líka með dofa í hinni hendinni og það á að laga
það seinna. Bara önnur hendi í einu.
Hann var nú ekki slappari en svo, eftir aðgerðina, að hann fór
með mér í fjárhúsin. Hann tók ekki annað í mál, en að sópa
garðann. Ég gat enganvegin stoppað hann í því
Og svo mokaði hann moðinu upp í karið
Ég er nú ekki viss um að læknirinn sem skar hann yrði
ánægð með að sjá þetta
Þarna sýnir hann okkur það sem hann er með á hendinni til
að hlífa umbúðunum. Hann er með sundpoka á hendinni
Aðgerðin gekk vel og við vonum að hún skili árangri
Við Þórður fórum á Greifann að fá okkur að borða í
hádeginu
Þórður fékk sér grillað lamb
Og ég fékk mér Verona pitsu.
Þetta er nauðsynlegt svona annað slagið
Ekki mikill snjór hjá okkur
Nafn:
Farsími:
Tölvupóstfang:
Afmælisdagur:
Heimilisfang:
Staðsetning:
Um:
Einar Breki, kom í heiminn
atburður liðinn í
14 ár
4 mánuði
21 daga
Haukur Nói, kom í heiminn
11 ár
6 mánuði
24 daga
Birgitta Ósk, kom í heiminn
4 ár
22 daga
Eldra efni
© 2026 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is